Viðræður standa enn yfir um sölu kísilversins í Helguvík

Arion banki og PCC eiga enn í við­ræðum um kís­il­verið í Helguvík, verk­smiðj­una sem Arion vill selja og PCC, sem rekur kís­il­ver á Húsavík, mögu­lega kaupa. Vilja­yf­ir­lýs­ing var und­ir­rituð í jan­úar og sam­kvæmt henni skal við­ræðum lokið í sumar.

Kísilverksmiðjan í Helguvík hefur ekki verið starfrækt í fjögur og hálft ár.
Kís­il­verk­smiðjan í Helguvík hefur ekki verið starf­rækt í fjögur og hálft ár. Mynd: United Silicon

„Þetta er enn í far­vegi, engin nið­ur­staða enn sem komið er,“ segir Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka, um stöðu við­ræðna við PCC SE, meiri­hluta­eig­anda kís­il­vers­ins á Húsavík, sem lýst hefur áhuga á að kaupa kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík af bank­anum. Vilja­yf­ir­lýs­ing milli Arion og PCC var und­ir­rituð í byrjun árs og sam­kvæmt henni skal við­ræðum lokið í sumar, segir Haraldur Guðni.

Verk­smiðjan í Helguvík hefur ekki verið starf­rækt frá haust­mán­uðum 2017 eða í um fjögur og hálft ár. Félagið Sameinað Sílikon (United Silicon) átti hana en rekst­ur­inn, sem hófst í nóv­em­ber 2016, gekk brös­ug­lega frá upp­hafi og stóð aðeins í tíu mán­uði eða þar til Umhverf­is­stofnun stöðv­aði starf­sem­ina vegna ítrek­aðra bil­ana og kvart­ana íbúa í nágrenni hennar um heilsu­fars­leg óþæg­indi. Sameinað Sílikon var tekið til gjald­þrota­skipta í upp­hafi árs 2018 og eign­að­ist Arion banki, helsti lán­ar­drott­inn félags­ins, eignir þrota­bús­ins í kjöl­farið.

[adspot]

Síðan þá hefur verið stefnt að því að selja verk­smiðj­una. Árið 2019 hófst mat á umhverf­is­á­hrifum þeirra áforma bank­ans að gera end­ur­bætur á henni, end­ur­ræsa hana og stækka með því að bæta þremur ljós­boga­ofnum við þann eina sem fyrir er. Matinu lauk með áliti Skipu­lags­stofn­unar á gaml­árs­dag.

Að mati stofn­un­ar­innar eru fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur lík­legar til að fækka til­vikum sem ljós­boga­ofn er stöðv­aður og stytta tíma sem hann keyrir á skertu afli. Þá eru áform um að losa útblástur um skor­steina en ekki um rjáfur síu­húss, sem bætt var við vegna aðfinnslu Umhverf­is­stofn­unar, lík­leg til að leiða til betri dreif­ingar útblást­ursefna, stöðugri rekst­urs verk­smiðj­unnar og stuðla að bættum loft­gæðum frá því sem áður var. Engu að síður er það álit stofn­un­ar­innar að áhrif við rekstur 1. áfanga verði nokkuð nei­kvæð og áhrif fullrar fram­leiðslu fjög­urra ofna tals­vert nei­kvæð.

[links]Bæj­ar­yf­ir­völd í Reykja­nesbæ eru alfarið mót­fallin því að verk­smiðjan verði end­ur­ræst og rímar það við skoðun íbúa sem í tuga­tali sendu inn athuga­semdir við fyr­ir­ætl­an­irnar í umhverf­is­mats­ferl­inu.

„Ég hef ekk­ert heyrt í PCC eða Arion banka í marga mán­uði,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ, spurður um hvort þessir aðilar hafi verið í ein­hverjum sam­skiptum við bæj­ar­yf­ir­völd í þeim við­ræðum sem þeir eiga nú í.

Vilji bæj­ar­yf­ir­valda og íbúa stendur til þess að verk­smiðjan verði rifin. Þórður Ólafur Þórð­ar­son, lög­fræð­ingur Arion banka og stjórn­ar­maður í Stakks­bergi, dótt­ur­fé­lagi bank­ans sem á kís­il­verið í Helguvík, sagði á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis í febr­úar að „það tjón sem þarna yrði á hags­munum við það að flytja verk­smiðj­una í burtu, það er bara svo óskap­legt að það er raun­veru­lega ekki efna­hags­lega boð­legur kostur“.

Ólafur Hrafn Hösk­ulds­son, fjár­mála­stjóri Arion banka og stjórn­ar­for­maður Stakks­bergs, sagði á fund­inum að þrátt fyrir að búið væri að færa eign­irnar að mestu niður í bókum bank­ans þá fælist „mikil ábyrgð og sóun í því að rífa niður þessa 15-20 millj­arða og ekki kanna til hlítar hvort að hægt sé að gang­setja þarna verk­smiðju sem hægt er að reka í eins góðri sátt við sam­fé­lagið og hægt er og í takti við kröfur eft­ir­lits­að­ila“.

Hann segir stjórn­endur bank­ans hafa skoðað alla mögu­leika í stöð­unni, líka þann að rífa verk­smiðj­una. „Við erum banka­menn, við erum ekki sér­fræð­ingar í sili­kon­fram­leiðslu eða fram­kvæmdum á sili­kon­verk­smiðju, það er ljóst. Það hefur alltaf legið fyrir frá upp­hafi í þessu ferli hjá bank­anum að það verði ekki farið í þetta nema með aðila sem hefur þekk­ingu og reynslu við­eig­andi á þessu sviði.“ Því væri vilja­yf­ir­lýs­ing við PCC „rök­rétt staða í þessu ferli“.

Takmarka uppbyggingu mengandi iðnaðar

Í til­lögu að aðal­skipu­lagi Reykja­nes­bæjar til árs­ins 2035, sem nú er aug­lýst, er kynnt stefnu­breyt­ing varð­andi upp­bygg­ingu í Helguvík. Dregið er tölu­vert úr umfangi iðn­að­ar­svæðis sem „felur í sér minni áhættu á mengun,“ segir í umhverf­is­skýrslu sem gerð var í tengslum við mat á umhverf­is­á­hrifum nýs skipu­lags.

Í Helguvík er enn gert ráð fyrir upp­bygg­ingu iðn­aðar en áhersla lögð á iðnað sem sam­ræm­ist íbúa­byggð, sem er þar í næsta nágrenni, og settir skil­málar um hvers konar iðn­aður megi bæt­ast við, m.a. til að draga úr líkum á að við bæt­ist iðn­aður sem auki á losun flú­ors og brenni­steins­dí­oxíðs. „Mik­il­vægt er að íbúum í nágrenni iðn­að­ar­svæðis verði tryggð heil­næm lífs­skil­yrði og njóti heil­næms og ómeng­aðs umhverfis,” segir m.a. í grein­ar­gerð með aðal­skipu­lags­til­lög­unni. „Breyting á aðal­skipu­lagi stuðlar að bættri heilsu íbúa og dregur úr líkum á mengun í nágrenni við þétt­býlið í Reykja­nesbæ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár