Ekkert fast í hendi en „samtalið er enn í gangi“

Viðræður Arion banka og PCC um mögu­leg kaup á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík hafa nú staðið í rúm­lega átta mán­uði. „Samtalið er enn í gangi og ekki ljóst hvenær eða hvernig það endar,“ segir for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs bank­ans.

Engin starfsemi hefur verið í kísilverinu í Helguvík í fimm ár.
Engin starf­semi hefur verið í kís­il­ver­inu í Helguvík í fimm ár. Mynd: Af vef Reykjanesbæjar

„Það er enn sem komið er ekk­ert fast í hendi. Samtalið er enn í gangi og ekki ljóst hvenær eða hvernig það endar. Þó myndi ég halda að við séum að horfa á nokkrar vikur fremur en nokkra mán­uði.“

Þetta segir Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka, inntur eftir stöðu mála á við­ræðum bank­ans við PCC SE um mögu­leg kaup þess síð­ar­nefnda á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík. Það er Stakks­berg, dótt­ur­fé­lag Arion banka sem á kís­il­verk­smiðj­una en PCC SE er meiri­hluta eig­andi PCC BakkiSilicon hf., kís­il­vers­ins á Húsavík.

[adspot]

Við­ræð­urnar hófust form­lega með und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ingar í byrjun árs og hafa því staðið í rúm­lega átta mán­uði. Til stóð að þeim yrði lokið í sumar en eins og fyrr segir eru þær enn í gangi.

[links]Í byrjun sept­em­ber var greint frá því að Gestur Pét­urs­son hefði verið ráð­inn nýr for­stjóri kís­il­vers­ins á Bakka. Hann tók við því starfi af Rúnari Sig­ur­páls­syni. Í til­kynn­ingu kom fram að Rúnar myndi halda áfram störfum fyrir PCC sam­stæð­una, líkt og það var orðað, og ein­beita sér að þró­un­ar­verk­efnum á Íslandi.

Kjarninn sendi Rúnari fyr­ir­spurn um breyt­ing­arnar er þær voru til­kynntar og spurði, í ljósi þess­ara breyt­inga, hver staðan á við­ræðum við Arion banka væri. Þeirri fyr­ir­spurn var ekki svarað.

Engin starfsemi í fimm ár

Kís­il­verk­smiðjan í Helguvík hefur ekki verið í rekstri frá því haustið 2017. Félagið Sameinað Sílikon (United Silicon) átti verk­smiðj­una en rekstur hennar, sem hófst í nóv­em­ber 2016, gekk brös­ug­lega frá upp­hafi og stóð aðeins í tíu mán­uði eða þar til Umhverf­is­stofnun stöðv­aði starf­sem­ina vegna ítrek­aðra bil­ana og kvart­ana íbúa í nágrenni hennar um heilsu­fars­leg óþæg­indi. Sameinað Sílikon var tekið til gjald­þrota­skipta í upp­hafi árs 2018 og eign­að­ist Arion banki eignir þrota­bús­ins í kjöl­farið.

Síðan þá hefur verið stefnt að því að selja verk­smiðj­una. Árið 2019 hófst mat á umhverf­is­á­hrifum þeirra áforma bank­ans að gera end­ur­bætur á henni, end­ur­ræsa hana og stækka með því að bæta þremur ljós­boga­ofnum við þann eina sem fyrir er. Matinu lauk með áliti Skipu­lags­stofn­unar í lok síð­asta árs.

[adspot]

Vilji bæj­ar­yf­ir­valda og íbúa hefur staðið til þess að verk­smiðjan verði rifin. Þórður Ólafur Þórð­ar­son, lög­fræð­ingur Arion banka og stjórn­ar­maður í Stakks­bergi, dótt­ur­fé­lagi bank­ans sem á kís­il­verið í Helguvík, sagði á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis í febr­úar að „það tjón sem þarna yrði á hags­munum við það að flytja verk­smiðj­una í burtu, það er bara svo óskap­legt að það er raun­veru­lega ekki efna­hags­lega boð­legur kostur“.

Íbúar og stjórn­völd í Reykja­nesbæ telja það hins vegar ekki val­kost að ræsa verið aftur, þrátt fyrir þær end­ur­bætur sem fyr­ir­hug­aðar eru á því.

„Okkur er kunn­ugt um þessar við­ræður en erum ekki aðilar að þeim,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ, við Kjarnann. „Við höfum upp­lýst aðila um óbreytta afstöðu Reykja­nes­bæjar.“

Afstaðan er sú að ekki komi til greina af hálfu stjórn­valda í sveit­ar­fé­lag­inu, að kís­il­verið í Helguvík verði ræst að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár