Arion banki hagnaðist um 7,8 milljarða á öðrum ársfjórðungi

Bankinn hagn­að­ist um 7,8 millj­arða á öðrum árs­fjórð­ungi 2021 og arð­semi eigin fjár var 16,3 pró­sent.

Benedikt Gíslason er forstjóri Arion banka og segir hann reksturinn ganga mjög vel.
Benedikt Gíslason er for­stjóri Arion banka og segir hann rekst­ur­inn ganga mjög vel. Mynd: Arion banki

Arion banki hagn­að­ist um 7,8 millj­arða króna á öðrum árs­fjórð­ungi, frá því í byrjun apríl fram í lok júní. Arðsemi eig­in­fjár á fjórð­ungnum var 16,3 pró­sent sam­an­borið við 10,5 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra. Alls hagn­að­ist bank­inn um 13,85 millj­arða á fyrri helm­ingi árs­ins.

Fram kemur í til­kynn­ingu frá bank­anum að tekjur af kjarna­starf­semi hans hafi auk­ist um 10,5 pró­sent sam­an­borið við annan árs­fjórð­ung síð­asta árs og hlut­fall kostn­aðar af tekjum nam 42,5 pró­sentum, sam­an­borið við 45,5 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra. Haft er eftir Benedikt Gísla­syni banka­stjóra í til­kynn­ingu að rekstur bank­ans hafi gengið mjög vel.[links]

Bankinn hefur greitt út arð eða keypt eigin hluta­bréf fyrir alls 17,8 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og á morgun mun bank­inn hefja frek­ari end­ur­kaup á eigin bréfum fyrir alls um 4 millj­arða króna, sem nemur helm­ingi þess sem Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hefur heim­ilað bank­anum að kaupa. Þessi end­ur­kaupa­á­ætlun bank­ans mun standa yfir fram á næsta ár.

Gætu tekið ákvörðun um frekari arðgreiðslur síðar á árinu

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 27,2 pró­sent þann 30. júní og segir í til­kynn­ingu bank­ans að Arion sé í „mjög góðri stöðu til að lækka eigið fé með útgreiðslum og mæta eft­ir­spurn við­skipta­vina eftir lánsfé.“

Í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri bank­ans kemur fram að í ljósi þess­arar sterku stöðu sé stefnt sé að því að greiða út að eða kaupa eigin bréf fyrir að minnsta kosti 50 millj­arða íslenskra króna á næstu árum.

Fram kemur í upp­gjörs­skýrsl­unni að stjórn bank­ans muni mögu­lega leita heim­ildar hjá FME til þess að kaupa enn meira af eigin bréfum eða kalla til sér­staks hlut­hafa­fundar til þess að taka ákvörðun um frek­ari arð­greiðslur síðar á þessu ári.

[adspot]

Tekið er fram að slíkar aðgerðir muni velta á stöðu efna­hags­mála og áhættu­lýs­ingar bank­ans. Tryggja verði þó að slík til­laga muni ekki hafa áhrif á getu Arion banka til þess að styðja við við­skipta­vini sína og íslenskt efna­hags­líf.

Heild­ar­eignir bank­ans námu 1.218 millj­örðum króna í lok júní og höfðu hækkað úr 1.173 millj­örðum frá ára­mótum.

„Lán til við­skipta­vina juk­ust um 2,6% frá ára­mótum en íbúða­lán hækk­uðu um 9,6% á sama tíma. Lausafé jókst um 7,3% þrátt fyrir end­ur­kaup á hluta­bréfum bank­ans og arð­greiðslu. Á skulda­hlið­inni juk­ust inn­lán um 6,3% á fyrri helm­ingi árs­ins. Heildar eigið fé nam 194 millj­örðum króna í lok tíma­bils­ins og kom afkoma tíma­bils­ins til hækk­unar en til lækk­unar komu arð­greiðslur og end­ur­kaup á hluta­bréfum bank­ans,“ segir í til­kynn­ingu bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár