Arion banki væntir þess að skila hluthöfum sínum meira en 50 milljörðum á næstu árum

Til stendur að greiða hlut­höfum Arion banka út 18 millj­arða króna í ár. Stjórn bank­ans áskilur sér rétt til að greiða enn meira út þegar líður á árið. Áform eru uppi um að skila hlut­höfum tugum millj­arða króna á næstu árum.

Paul Richard Horner, Renier Lemmens, Liv Fiksdahl, Herdís Dröfn Fjeldsted (varaformaður), Brynjólfur Bjarnason (formaður), Steinunn Kristín Þórðardóttir og Gunnar Sturluson skipa stjórn Arion banka.
Paul Richard Horner, Renier Lemmens, Liv Fiksdahl, Herdís Dröfn Fjeld­sted (vara­for­maður), Brynjólfur Bjarna­son (for­maður), Steinunn Kristín Þórð­ar­dóttir og Gunnar Sturlu­son skipa stjórn Arion banka. Mynd: Arion banki

Á grund­velli stöðu Arion banka um síð­ustu ára­mót ætlar bank­inn að kaupa eigin bréf fyrir 15 millj­arða króna og greiða hlut­höfum sínum arð upp á þrjá millj­arða króna á þessu ári. Því munu hlut­hafar Arion banka fá 18 millj­arða króna í greiðslu frá bank­anum á árinu 2021 gangi áformin eftir.

Í upp­gjör­skynn­ingu Arion banka, sem birt var sam­hliða árs­reikn­ingi bank­ans síð­degis í gær, kemur fram að umfram eigið fé bank­ans sé um 40 millj­arðar króna þegar búið er að draga 18 millj­arða króna sem greiða á til hlut­hafa frá því. Því áskilur stjórn bank­ans sér rétt til að kalla saman auka­að­al­fund síðar á þessu ári til að taka ákvörðun um frek­ari útgreiðslu arðs eða end­ur­kaup á bréfum hlut­hafa, til að skila enn hærri upp­hæð til þeirra.

Í kynn­ing­unni kemur fram að Arion banki ætli sér að fylgja stað­fast­lega stefnu sinni um losun fjár­magns til hlut­hafa (e. capital rel­e­ase stra­tegy) næstu árin. Þar stendur enn fremur að bank­inn reikni með að greiða út arð eða kaupa til baka bréf hlut­hafa fyrir meira en 50 millj­arða króna á næstu árum. Það sé þó ekki úti­lokað að þessir fjár­munir verði frekar nýttir til innri eða ytri vaxtar.

Lengi legið fyrir

Ekkert í þess­ari áætlun stjórnar Arion banka ætti að koma neinum á óvart. Þegar Arion banki var skráður á markað á fyrri hluta árs­ins 2018 lá fyrir að mark­mið ráð­andi hlut­hafa væri að greiða sér út eins mikið af eigin fé hans og hægt væri, á sem skemmstum tíma. 

[adspot]Í fjár­festa­kynn­ingu sem Kvika vann fyrir Kaupþing, þá stærsta eig­anda Arion banka, í aðdrag­anda skrán­ingar kom fram að svig­rúm væri til að greiða út allt að 80 millj­arða króna, eða þriðj­ung alls eigin fjár Arion banka, á til­tölu­lega skömmum tíma með ýmsum hætti.

Það væri hægt að gera í gegnum breyt­ingu á fjár­mögnun bank­ans, með því að draga úr útlánum hans, með því að minnka kostnað í gegnum upp­sagnir á starfs­fólki, með því að hrinda í gang umfangs­mik­illi end­ur­kaupa­á­ætlun á hluta­bréfum í bank­anum og svo auð­vitað í gegnum arð­greiðslur.

Þá á átti að selja und­ir­liggj­andi eignir sem væru ekki hluti af kjarna­starf­semi Arion banka.

Tímabundið stopp vegna COVID-19

Í byrjun árs 2020 hafði flest í þeirri leik­á­ætlun gengið eftir. Eigið fé Arion banka hafði lækkað úr 225,7 millj­örðum króna í 190 millj­arða króna frá lokum árs 2017 og fram til loka árs 2019, eða um tæpa 36 millj­arða króna.

Til við­bótar töldu grein­ing­ar­að­ilar að bank­inn geti búið þannig um hnút­anna að það myndi losna um tugi millj­arða króna til útgreiðslu þegar árið 2020 er á enda, aðal­lega með því að minnka útlán sín.

Til stóð að minnka þau um 20 pró­sent á síð­asta ári. Í afkomu­spá sem Hag­fræði­deild Lands­bank­ans vann um upp­gjör Arion banka í aðdrag­anda birt­ingu árs­reikn­ings hans fyrir árið 2019 var því spáð að arð­greiðslur bank­ans gæti orðið 50 millj­arðar króna á tólf mán­uðum. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn kom í veg fyrir að þau áform gengu eftir sam­kvæmt þeirri tíma­línu sem lagt var upp með. Samhliða því að Seðla­banki Íslands réðst í að veita bönk­unum miklar til­slak­anir til að þeir gætu aðstoðað í bar­átt­unni við efna­hagslægð­ina sagði Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri, að það væri algjör­lega ótækt af Arion banka að íhuga arð­greiðslur eða end­ur­kaup á bréfum við ríkj­andi aðstæður.

Eiginfjárgrunnur jókst um 28 milljarða í fyrra

Þessi staða hefur nú breyst ansi hratt og Arion banki hefur fengið heim­ild Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands til að ráð­ast í þau end­ur­kaup á hluta­bréfum sem bank­inn stefnir á að fram­kvæma á árinu 2021. Auk þess telur bank­inn að arð­greiðslu­mark­mið hans séu í takti við það sem heim­ilt er að gera.

[adspot]Arion banki fór enda ansi vel í gegnum síð­asta ár. Hagnaður bank­ans nam 12,5 millj­örðum króna og hann náði því mark­miði sínu á síð­asta árs­fjórð­ungi að vera með arð­semi á eigin fé sitt yfir tíu pró­sentum, en hún var alls 11,8 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs.

Heildar eigið fé nam 198 millj­örðum króna í árs­lok 2020, sem er átta millj­örðum krónum hærra en það var í árs­lok 2019. Að með­töldum arð­greiðslum og þeim fjár­hæðum sem nýttar verða í kaup á eigin bréfum jókst eig­in­fjár­grunnur sam­stæð­unnar því um 28 millj­arða króna frá árs­lokum 2019.

Eigendurnir sem fá mest

Tölu­verð breyt­ing hefur orðið á hlut­hafa­hóp Arion banka á síð­ustu mán­uð­u­m. Frá því í lok sept­­em­ber í fyrra, fyrir fjórum mán­uðum síð­­an, hafa tveir stærstu eig­endur bank­ans á und­an­­förnum árum selt sam­tals stóran hlut í honum. Um er að ræða vog­un­­ar­­sjóð­ina Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement. Á örfáum vikum hefur eign­ar­hlutur Taconic í Arion banka t.d. farið úr 23 pró­sentum í 14,55 pró­sent.

[links]Fleiri vog­un­­ar­­sjóð­ir, sem komu inn í eig­enda­hóp Arion banka eftir að hafa til­­heyrt kröf­u­hafa­hópi Kaup­þings,hafa líka verið að selja sig niður að und­an­­förn­­um.

Inn­­­lendir fag­fjár­­­festar hafa keypt stærstan hluta þess sem vog­un­­ar­­sjóð­irnir hafa selt. Þeir eru að mestu íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­­ir. Á síð­­­ustu fjórum mán­uðum hafa þrír stærstu líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins: Gildi, Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna og Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins (LSR) bætt við vel við sig og eiga nú sam­tals 25,19 pró­sent eign­ar­hlut í bank­an­umm

Fleiri líf­eyr­is­­sjóð­ir: Stapi, Birta, Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn og Lífs­verk hafa allir líka bætt við sig í Arion banka á síð­­­ustu mán­uð­u­m.

Sam­an­lagður eign­­ar­hluti þeirra líf­eyr­is­­sjóða sem birt­­ast á lista yfir 20 stærstu eig­endur bank­ans var 22,42 pró­­sent í byrjun síð­­asta árs. Í lok sept­­em­ber 2020 hafði hann auk­ist í 29,17 pró­­sent og síð­­­ustu fjóra mán­uði hefur hann farið upp í 37,8 pró­­sent. Á rúmu ári hefur hlutur sjóð­anna því stækkað um tæp 70 pró­­sent.

Einkafjárfestar bæta líka við sig

Á meðal ann­arra sem keyptu hluta­bréf í Arion banka af Taconic Capitalnýverið eru íslensku fjár­­­fest­inga­­fé­lögin Mótás, Hval­­ur, Stál­­skip og Sjá­v­­­ar­­sýn. Hvalur sem átti fyrir 1,5 pró­­sent hlut, stækk­­aði sig upp í 2,13 pró­­sent með því að kaupa bréf fyrir um millj­­arð króna. Mótás, sem nýverið keypti sig inn í Stoð­ir, stærsta inn­­­lenda einka­fjár­­­fest­inn í Arion banka, keypti 0,6 pró­­sent hlut fyrir tæp­­lega 800 millj­­ónir króna. Fjár­­­fest­inga­­fé­lagið Stál­­skip, í eigu eigu hjón­anna Guð­rúnar Lár­us­dóttur og Ágústs Sig­­urðs­­sonar og þriggja barna þeirra, keypti fyrir 300 millj­­ónir króna og Sjá­v­­­ar­­sýn, í eigu Bjarna Ármanns­­son­­ar, for­­stjóra Iceland Seafood og fyrr­ver­andi banka­­stjóra Glitn­is, keypti fyrir 200 millj­­ónir króna.

Þorri þess sem út af stendur hefur verið keypt af sjóð- og eigna­­stýr­ing­­ar­­fyr­ir­tækjum banka eða ein­fald­­lega í nafni ann­­arra banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár