Arion banki hagnaðist um 12,5 milljarða og ætlar að skila 18 milljörðum til hluthafa

Eig­in­fjár­grunnur Arion banka jókst um 28 millj­arða króna á síð­asta ári þrátt fyrir heims­far­aldur kór­ónu­veiru. Bankinn náði að vera yfir mark­miði sínu um arð­semi eigin fjár á síð­asta árs­fjórð­ungi.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Arion banki hagn­að­ist um 12,5 millj­arða króna á árinu 2020 og arð­semi eigin fjár var 6,5 pró­sent hjá bank­anum. Það er undir mark­miði hans, sem er tíu pró­sent arð­semi á eigið fé. Hagn­að­ur­inn er rúm­lega ell­efu sinnum hagn­aður árs­ins 2019, þegar hann var 1,1 millj­arður króna. Hlut­hafar bank­ans munu njóta góðs af þess­ari stöðu. Til stendur að kaupa eigin bréf fyrir 15 millj­arða króna og greiða út þrjá millj­arða króna í arð. Með því verður 18 millj­örðum króna skilað í vasa hlut­hafa á grund­velli frammi­stöðu Arion banka á síð­asta ári.

[adspot]Bankanum gekk mjög vel á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins og var hagn­aður hans þá 5,8 millj­arðar króna. Hagnaður af áfram­hald­andi starf­semi var 56 pró­sent meiri á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2020 en á sama tíma árið á undan. Arðsemi eigin fjár á fjórða árs­fjórð­ungi var 11,8 pró­sent og þar með yfir mark­miði Arion banka.

Þetta kemur fram í afkomutil­kynn­ingu sem birt var í Kauphöll Íslands síð­degis í dag sam­hliða því að árs­reikn­ingur Arion banka fyrir síð­asta ár var gerður opin­ber.

[links]Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 27 pró­sent um nýliðin ára­mót og hlut­fall almenns eig­in­fjár­þáttar 1 var 22,3 pró­sent þegar tekið hefur verið til­lit til áður­nefndrar til­lögu stjórnar um arð­greiðslu kaup á eigin bréfum. Heildar eigið fé nam 198 millj­örðum króna í árs­lok 2020, sem er átta millj­örðum krónum hærra en það var í árs­lok 2019. Að með­töldum arð­greiðslum og þeim fjár­hæðum sem nýttar verða í kaup á eigin bréfum jókst eig­in­fjár­grunnur sam­stæð­unnar um 28 millj­arða króna frá árs­lokum 2019.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir það mjög ánægju­legt tíð­indi fyrir bank­ann að Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hafi sam­þykkt beiðni bank­ans um að kaupa til baka eigin bréf fyrir allt að 15 millj­arða króna. Þrátt fyrir það, og til­lögu um þriggja millj­arða króna arð­greiðslu, sé fjár­hags­legur styrkur bank­ans með því besta sem ger­ist í Evrópu og mikil útlána­geta sé fyrir hendi.

Hann segir að merki séu um að umsvif í efna­hags­líf­inu séu að aukast í kjöl­far þess að dregið hefur úr óvissu í umhverf­inu. „Mik­il­vægt er að við­spyrnan verði kröftug svo að íslenska hag­kerfið nái fljótt fyrri styrk. Arion banki er í góðri stöðu til að leggja sín lóð á vog­ar­skál­arnar til að svo megi verða, í góðu sam­starfi við sinn öfl­uga hóp við­skipta­vina.“

Breytingar á hluthafahóp

Töluverð breyt­ing hefur orðið á hlut­hafa­hóp Arion banka á síð­ustu mán­uðum. Frá því í lok sept­em­ber í fyrra, fyrir fjórum mán­uðum síð­an, hafa tveir stærstu eig­endur bank­ans á und­an­förnum árum selt sam­tals 13,92 pró­sent hlut í hon­um. Um er að ræða vog­un­ar­sjóð­ina Taconic Capi­tal Advis­ors og Sculptor Capi­tal Mana­gement. Mark­aðsvirði þess hlutar sem þeir hafa selt, að mestu á allra síð­ustu vik­um, er yfir 23 millj­arðar króna.

Fleiri vog­un­ar­sjóð­ir, sem komu inn í eig­enda­hóp Arion banka eftir að hafa til­heyrt kröfu­hafa­hópi Kaup­þings,hafa líka verið að selja sig niður að und­an­förn­um.

Inn­lendir fag­fjár­festar hafa keypt stærstan hluta þess sem vog­un­ar­sjóð­irnir hafa selt. Þeir eru að mestu íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Á síð­ustu fjórum mán­uðum hafa þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) bætt við sig sam­an­lagt 4,61 pró­sent hlut í Arion banka.

Fleiri líf­eyr­is­sjóð­ir: Stapi, Birta, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og Lífs­verk hafa allir líka bætt við sig í Arion banka á síð­ustu mán­uð­u­m.

Sam­an­lagður eign­ar­hluti þeirra líf­eyr­is­sjóða sem birt­ast á lista yfir 20 stærstu eig­endur bank­ans var 22,42 pró­sent í byrjun síð­asta árs. Í lok sept­em­ber 2020 hafði hann auk­ist í 29,17 pró­sent og síð­ustu fjóra mán­uði hefur hann farið upp í 36,29 pró­sent. Á rúmu ári hefur hlutur sjóð­anna því stækkað um rúm­lega 60 pró­sent. Það þýðir að fjár­fest­ing þeirra átta líf­eyr­is­sjóða sem eru á meðal 20 stærstu hlut­hafa í Arion banka er nú um 60 millj­arða króna virð­i.

Á meðal ann­arra sem keyptu hluta­bréf í Arion banka af Taconic Capi­tal­ný­verið eru íslensku fjár­fest­inga­fé­lögin Mótás, Hval­ur, Stál­skip og Sjáv­ar­sýn. Hvalur sem átti fyrir 1,5 pró­sent hlut, stækk­aði sig upp í 2,13 pró­sent með því að kaupa bréf fyrir um millj­arð króna. Mótás, sem nýverið keypti sig inn í Stoð­ir, stærsta inn­lenda einka­fjár­fest­inn í Arion banka, keypti 0,6 pró­sent hlut fyrir tæp­lega 800 millj­ónir króna. Fjár­fest­inga­fé­lagið Stál­skip, í eigu eigu hjón­anna Guð­rúnar Lár­us­dóttur og Ágústs Sig­urðs­sonar og þriggja barna þeirra, keypti fyrir 300 millj­ónir króna og Sjáv­ar­sýn, í eigu Bjarna Ármanns­son­ar, for­stjóra Iceland Seafood og fyrr­ver­andi banka­stjóra Glitn­is, keypti fyrir 200 millj­ónir króna.

Þorri þess sem út af stendur hefur verið keypt af sjóð- og eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum banka eða ein­fald­lega í nafni ann­arra banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár