Starfsmenn Arion banka gera kaupréttarsamninga upp á 1,9 milljarða króna

Á síð­ustu miss­erum hefur Arion banki ýtt úr vör bæði kaupauka­kerfi og kaup­rétt­ar­á­ætlun fyrir starfs­fólk sitt. Verðið sem starfs­fólkið getur keypt bréf á er 14 pró­sent undir núver­andi mark­aðsvirði bank­ans.

Allir 628 fast­ráðnir starfs­menn Arion banka sem eiga rétt á að gerð kaup­rétt­ar­samn­ing við bank­ann hafa gert slíkan. Í samn­ingnum fellst að starfs­menn­irnir geta keypt hluta­bréf í bank­anum fyrir alls 600 þús­und krónur einu sinni á ári í fimm ár. Fyrsti nýt­ing­ar­dagur er í febr­úar á næsta ári en sá síð­asti í febr­úar 2026.

Kaupverð starfs­manna Arion banka á hlutum í bank­anum er vegið með­al­verð í við­skiptum með hluta­bréf félags­ins tíu við­skipta­daga fyrir samn­ings­dag, sem er 3. febr­úar 2021, eða 95,5 krónur hver hlutur. Það er um 14 pró­sent undir núver­andi mark­aðsvirði Arion banka, en bréf bank­ans hafa hækkað tölu­vert í verði síð­ustu daga.

Sam­an­lagt kaup­verð þeirra bréfa sem starfs­menn­irnir geta keypt er um 377 millj­ónir króna á ári, eða um 1,9 millj­arðar króna yfir samn­ings­tím­ann.

Kaup­rétt­ar­á­ætl­unin, sem nær til allra fast­ráð­inna starfs­manna, var sam­þykkt á aðal­fundi Arion banka í mars í fyrra og mark­mið hennar er sagt vera að „sam­þætta hags­muni starfs­fólks við lang­tíma­hags­muni bank­ans.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sem send var út í gær. Samhliða var send út inn­herj­a­til­kynn­ing þar sem greint var frá því að allir helstu stjórn­endur Arion banka hafi einnig tekið þátt í kaup­rétt­ar­á­ætl­un­inni, þar með talið Benedikt Gíslason, banka­stjóri bank­ans, og Ásgeir Reyk­fjörð Gylfason aðstoð­ar­banka­stjóri hans. Þeir áttu fyrir umtals­verðan hlut í Arion banka. Benedikt á nú alls hluti sem metnir eru á um 207 millj­ónir króna miðað við mark­aðsvirði og Ásgeir á hluti sem metnir eru á 125 millj­ónir króna.

[adspot]Rík­is­skatt­stjóri hefur stað­fest að áætl­unin sé í sam­ræmi við lög. Það var gert 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Kaupaukakerfi innleitt

Til við­bótar við kaup­rétti stendur starfs­fólki Arion banka til boða kaupaukar, einnig kall­aðir bónusar. Í des­em­ber í fyrra var greint frá því að öllu fast­ráðnu starfs­fólki bank­ans muni standa til boða að geta fengið allt að tíu pró­sent af föstum árs­launum sínum á árinu 2021 í kaupauka þegar árs­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2021 liggur fyr­ir, ef þau mark­mið sem nýtt kaupauka­kerfi til­greinir nást.

Þeir stjórn­endur og það starfs­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans mun geta fengið allt að 25 pró­sent af föstum árs­launum í kaupauka­greiðslu, en þá í formi hluta­bréfa í bank­anum sem verða ekki laus til ráð­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­um.

Það fólk er með mun hærri laun en venju­legt starfs­fólk bank­ans. Mán­að­ar­laun banka­stjóra Arion banka voru til að mynda 4,7 millj­ónir króna á mán­uði á árinu 2019.

Þau mark­mið sem Arion banki þarf að ná til að kaupa­auka­kerfið fari í gang fela í sér að arð­semi bank­ans verðir að vera hærri en vegið með­al­tal arð­semi helstu keppi­nauta bank­ans: Íslands­banka, Lands­banka og Kviku. „Ná­ist þetta mark­mið ekki, verður ekki greiddur út kaup­auki. Heild­ar­fjár­hæðin sem veitt verður til kaupauka­greiðslna verður þó aldrei hærri en sem nemur arð­semi bank­ans umfram vegið með­al­tal arð­semi sam­keppn­is­að­ila,“ segir í til­kynn­ingu frá Arion banka til þeirra hluta­bréfa­mark­aða sem bank­inn er skráður á, en hann er tví­skráður á Íslandi og í Sví­þjóð.

Stjórn Arion banka hefur sam­þykkti hið breytta kaupauka­kerfi og telur það í fullu sam­ræmi við reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um kaupauka­greiðslur starfs­fólks fjár­mála­fyr­ir­tækja og starfs­kjara­stefnu bank­ans sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi. Áður hafði stjórn bank­ans sam­þykkt að engar kaupauka­greiðslur yrðu greiddar út vegna árs­ins 2020.

Kaupa eigin bréf fyrir 15 milljarða

Arion banki birtir upp­gjör sitt vegna síð­asta árs síðar í dag. Á mánu­dag til­kynnti bank­inn um að fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefði veitt honum heim­ild til að kaupa aftur eigin hluta­bréf að and­virði 15 millj­arða króna. Heim­ildin nær til allt að 8,7 pró­sent af útgefnu hlutafé bank­ans.

[links]Líkt og arð­greiðslur eru kaup á eigin bréfum (e. buyback) ein leið fyr­ir­tækja til að gefa eig­endum sínum hluta af eigin fé. Í slíkum kaupum greiðir fyr­ir­tækið mark­aðsvirði ákveð­ins hluta af útgefnu hlutafé til hlut­hafa sinna.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni sem birt­ist á vef Kaup­hall­ar­innar veittu hlut­hafar Arion banka stjórn bank­ans end­ur­nýj­aða heim­ild til að kaupa allt að 10 pró­sent af útgefnu hlutafé þess á síð­asta árs­fundi bank­ans í fyrra. Hins vegar voru fyr­ir­huguð end­ur­kaup sett á bið eftir að heims­far­ald­ur­inn skall á og Seðla­bank­inn gaf út til­mæli til bank­anna um að greiða ekki til hlut­hafa sinna á meðan hið opin­bera yki fram­boð fjár­magns í fjár­mála­kerf­inu með ýmsum aðgerð­um.

Á síð­ustu mán­uðum hefur Arion banki svo gefið til kynna að hann hygð­ist greiða hluta af eigin fé til hlut­hafa, en í síð­asta árs­fjórð­ungs­upp­gjöri sagð­ist bank­inn vera með of mikið eigið fé sem nær ómögu­legt væri að ávaxta í takt við eigin mark­mið.

Arion banki minnt­ist einnig á eig­in­fjár­stöðu sína í til­kynn­ingu sinni vegna end­ur­kaupa á eigin bréfum, en þar sagði hann hana vera mjög sterka. Bank­inn minnt­ist einnig á skulda­bréfa­út­boð bank­ans í fyrra, sem veitti bank­anum fé að and­virði 13 millj­arða króna.

Ekki hefur enn verið ákveðið að ráð­ast í end­ur­kaupa­á­ætl­un­ina, en áform un fram­kvæmd hennar bíða nú ákvörð­unar stjórnar Arion banka. Upp­lýst verður um ákvörðun hennar sam­hliða birt­ingu árs­upp­gjörs bank­ans sem verður birt, eins og fyrr segir, síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár