Arion má kaupa eigin bréf að andvirði 15 milljarða króna

Arion banka hefur verið veitt heim­ild til að kaupa aftur eigin bréf að and­virði 15 millj­arða króna. Bankinn tekur ákvörðun um end­ur­kaupin á mið­viku­dag­inn.

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka
Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka Mynd: Arion banki

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur veitt Arion banka heim­ild til að kaupa aftur eigin hluta­bréf að and­virði 15 millj­arða króna. Heim­ildin nær til allt að 8,7 pró­sent af útgefnu hlutafé bank­ans. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt­ist í Kaup­höll­innni í dag.

Líkt og arð­greiðslur eru kaup á eigin bréfum (e. buyback) ein leið fyr­ir­tækja til að gefa eig­endum sínum hluta af eigin fé. Í slíkum kaupum greiðir fyr­ir­tækið mark­aðsvirði ákveð­ins hluta af útgefnu hlutafé til hlut­hafa sinna.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni sem birt­ist á vef Kaup­hall­ar­innar veittu hlut­hafar Arion banka stjórn bank­ans end­ur­nýj­aða heim­ild til að kaupa allt að 10 pró­sent af útgefnu hlutafé þess á síð­asta árs­fundi bank­ans í fyrra. Hins vegar voru fyr­ir­huguð end­ur­kaup sett á bið eftir að heims­far­ald­ur­inn skall á og Seðla­bank­inn gaf út til­mæli til bank­anna um að greiða ekki til hlut­hafa sinna á meðan hið opin­bera yki fram­boð fjár­magns í fjár­mála­kerf­inu með ýmsum aðgerðum.

Á síð­ustu mán­uðum hefur Arion banki svo gefið til kynna að hann hygð­ist greiða hluta af eigin fé til hlut­hafa, en í síð­asta árs­fjórð­ungs­upp­gjöri sagð­ist bank­inn vera með of mikið eigið fé sem nær ómögu­legt væri að ávaxta í takt við eigin mark­mið.

Arion banki minn­ist einnig á eig­in­fjár­stöðu sína í til­kynn­ingu sinni, en þar segir hann hana vera mjög sterka. Bankinn minn­ist einnig á skulda­bréfa­út­boð bank­ans í fyrra, sem veitti bank­anum fé að and­virði 13 millj­arða króna.

Ekki hefur enn verið ákveðið að ráð­ast í end­ur­kaupa­á­ætl­un­ina, en áform un fram­kvæmd hennar bíða nú ákvörð­unar stjórnar Arion banka. Upplýst verður um ákvörðun hennar sam­hliða birt­ingu árs­upp­gjörs bank­ans á mið­viku­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár