Arion banki með of mikið eigið fé

Nýliðinn árs­fjórð­ungur var góður fyrir Arion banka, sam­kvæmt nýút­gefnu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri hans. Banka­stjór­inn segir bank­ann vera með of mikið eigið fé.

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka
Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka Mynd: Arion banki

Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka sagði hann vera í þeirri stöðu að vera með of mikið eigið fé sem nær ómögu­legt væri að ávaxta í takt við eigin mark­mið. Þetta kemur fram í nýbirtu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri bank­ans sem birt var eftir lokun mark­aða í dag.

Samkvæmt upp­gjör­inu nam afkoma bank­ans tæpum fjórum millj­örðum króna á nýliðnum árs­fjórð­ungi, sem fimm sinnum meiri en afkoma bank­ans á sama tíma­bili í fyrra. Tekjur hafa vaxið og kostn­aður lækkað, en sam­kvæmt bank­anum spila skipu­lags­breyt­ingar sem fram­kvæmdar voru í fyrra miklu máli þar.

Tekjur af kjarna­starf­semi hafa auk­ist um 6,2 pró­sent milli ára, en bank­inn hefur einnig aukið útlán til heim­ila í kjöl­far mik­illa vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans í vor. Lánabók bank­ans hefur hækkað um 7 pró­sent frá ára­mótum, auk þess sem bank­inn hefur aukið vaxta­mun sinn.

Í til­kynn­ing­unni sagði Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka að eft­ir­spurn eftir íbúða­lánum hefði verið óvenju­mikil á árs­fjórð­ungnum, sem ásamt öðru leiddi til þess að lána­safn bank­ans hefði vaxið.

Samhliða auk­inni afkomu hefur eigna­staða bank­ans einnig batnað, en eig­in­fjár­hlut­fall hans var 27,6 pró­sent í lok síð­asta mán­aðar. Frá ára­mótum hefur eig­in­fjár­grunnur sam­stæð­unnar auk­ist um tæpa 30 millj­arða. „Bankinn er í raun í þeirri stöðu að vera með of mikið eigið fé sem nær ómögu­legt er að ávaxta í takt við mark­mið bank­ans,“ segir Benedikt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár