Stjórnendur Arion banka geta fengið allt að 25 prósent af árslaunum í bónusgreiðslur

Arion banki inn­leiðir nýtt kaupauka­kerfi á næsta ári sem felur í sér að allir starfs­menn geta fengið bónus ef bank­inn sýnir meiri arð­semi en helstu sam­keppn­is­að­ilar hans á Íslandi.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Allt starfs­fólk Arion banka mun geta fengið allt að tíu pró­sent af föstum árs­launum sínum á næsta ári í kaupauka þegar árs­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2021 liggur fyrir, ef þau mark­mið sem nýtt kaupauka­kerfi til­greinir nást.

Þeir stjórn­endur og það starfs­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans mun geta fengið allt að 25 pró­sent af föstum árs­launum í kaupauka­greiðslu, en þá í formi hluta­bréfa í bank­anum sem verða ekki laus til ráð­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðnum.

Það fólk er með mun hærri laun en venju­legt starfs­fólk bank­ans. Mán­að­ar­laun Bene­dikts Gísla­sonar, banka­stjóra Arion banka, voru til að mynda 4,7 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra.

[adspot]Miðað við þau laun eru árs­laun hans um 56,4 millj­ónir króna og bón­us­greiðsla til hans, sam­kvæmt nýja kerf­inu, gæti numið um 14 millj­ónum króna á ári miðað við þau laun sem hann hafði árið 2019.

Ásgeir H. Reyk­fjörð Gylfason var ráð­inn aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka í fyrra og hóf störf 5. sept­em­ber. Hann starf­aði auk þess sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­inga­banka­sviðs frá 26. sept­em­ber. Laun Ásgeirs voru að með­al­tali hærri en laun banka­stjór­ans, en alls fékk hann greiddar 22,5 millj­ónir króna í fyrra fyrir tæp­lega fjög­urra mán­aða störf. Það þýðir að með­al­laun hans á mán­uði voru um 5,6 millj­ónir króna. Miðað við það myndi Ásgeir fá tæpar 17 millj­ónir króna í bónus ef mark­miðum nýja kaupauka­kerf­is­ins yrði náð.

Stefán Pét­urs­son, fjár­mála­stjóri Arion banka, er líka með ágætis laun, eða um fjórar millj­ónir króna á mán­uði. Slík laun gætu skilað honum um 12 millj­ónum króna í bónus vegna árs­ins 2021.

Þurfa að græða meira en hinir bankarnir

Þau mark­mið sem Arion banki þarf að ná til að kaupa­auka­kerfið fari í gang fela í sér að arð­semi bank­ans verðir að vera hærri en vegið með­al­tal arð­semi helstu keppi­nauta bank­ans: Íslands­banka, Lands­banka og Kviku. „Náist þetta mark­mið ekki, verður ekki greiddur út kaup­auki. Heild­ar­fjár­hæðin sem veitt verður til kaupauka­greiðslna verður þó aldrei hærri en sem nemur arð­semi bank­ans umfram vegið með­al­tal arð­semi sam­keppn­is­að­ila,“ segir í til­kynn­ingu frá Arion banka til þeirra hluta­bréfa­mark­aða sem bank­inn er skráður á, en hann er tví­skráður á Íslandi og í Svíþjóð.

Stjórn Arion banka hefur sam­þykkti hið breytta kaupauka­kerfi og telur það í fullu sam­ræmi við reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um kaupauka­greiðslur starfs­fólks fjár­mála­fyr­ir­tækja og starfs­kjara­stefnu bank­ans sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi. Áður hafði stjórn bank­ans sam­þykkt að engar kaupauka­greiðslur yrðu greiddar út vegna árs­ins 2020.

Með of mikið eigið fé

Þegar upp­gjör þriðja árs­fjórð­ungs Arion banka var birt í októ­ber síð­ast­liðnum var haft eftir Bene­dikt í til­kynn­ingu að bank­inn væri í þeirri stöðu að vera með of mikið eigið fé sem nær ómögu­legt væri að ávaxta í takt við eigin mark­mið. Frá ára­mótum og til loka sept­em­ber­mán­aðar jókst eig­in­fjár­grunnur sam­stæð­unnar um tæpa 30 millj­arða. Eig­in­fjár­hlut­fall hans var 27,6 pró­sent í lok sept­em­ber 2020.

Sam­kvæmt upp­gjör­inu nam hagn­aður bank­ans tæpum fjórum millj­örðum króna á nýliðnum árs­fjórð­ungi, sem var fimm sinnum meiri en afkoma bank­ans á sama tíma­bili í fyrra. Tekjur uxu og kostn­aður lækk­aði, en sam­kvæmt bank­anum spil­uðu skipu­lags­breyt­ingar sem fram­kvæmdar voru í fyrra miklu máli þar.

Tekjur af kjarna­starf­semi juk­ust um 6,2 pró­sent milli ára, en bank­inn hefur einnig aukið útlán til heim­ila í kjöl­far mik­illa vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans í vor. Lána­bók bank­ans hækk­aði um sjö pró­sent frá ára­mót­um, auk þess sem bank­inn jók vaxta­mun sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár