Bankastjóri Arion banka segir að litlar vonir séu um að verksmiðjan í Helguvík starfi á ný

Arion banki hefur fært niður bók­fært virði félags utan um kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon um 5,3 millj­arða króna á innan við tveimur árum. Virði þess er nú sagt á 1,6 millj­arða króna. Síðast var kveikt á verk­smiðj­unni í sept­em­ber 2017.

Stakks­berg ehf., félag utan um kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík, er nú metið á 1,6 millj­arða króna í bókum Arion banka, eig­anda félags­ins. Í lok mars 2019, fyrir tæpum tveimur árum síðan, var virði hennar bók­fært á 6,9 millj­arða króna. Það hefur því verið fært niður um 5,3 millj­arða króna á innan við tveimur árum og þar af nam nið­ur­færslan á virði verk­smiðj­unnar 1,1 millj­arði króna í fyrra.

Samkvæmt því sem fram kemur í árs­reikn­ingi Arion banka voru nei­kvæð rekstr­ar­á­hrif Stakks­bergs meiri en sem því nemur á árinu 2020, eða alls 1,4 millj­arði króna. Þar kemur enn fremur fram að bók­fært virði félags­ins end­ur­spegli nú „einkum verð­mæti lóðar og end­ur­sölu­virði tækja­bún­aðar.“

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, sagði á upp­gjörs­fundi bank­ans í gær að þar sem bank­inn bók­færði aðeins hrakvirði á verk­smiðj­una væri það „vís­bend­ing um að litlar vonir séu um að verk­smiðjan muni starfa aftur, áhuga­vert væri að sjá aðra og grænni starf­semi eiga sér stað þar í fram­tíð­inni.”

Búin að vera stopp í næstum þrjú og hálft ár

Kís­il­málm­verk­smiðjan hefur ekki verið í gangi frá því í sept­em­ber 2017. Nokkrum mán­uðum síð­ar, í jan­úar 2018, fór félagið sem byggði hana í þrot en áætl­aður kostn­aður við upp­setn­ingu verk­smiðj­unnar var um 22 millj­arðar króna.

[adspot]Arion banki var stærsti kröfu­hafi verk­efn­is­ins og tók yfir verk­smiðj­una. Til­gang­ur­inn átti að vera sá að greiða úr þeim vand­kvæðum sem voru til staðar við rekstur henn­ar, upp­fylla þau leyfi sem þurfti til og selja hana síðan þegar verk­smiðjan væri orðin starf­hæf að nýju.

Bankinn segir í árs­reikn­ingi sínum að Stakks­berg sé nú á loka­stigi vinnu við gerð nýs umhverf­is­mats fyrir verk­smiðj­una. „Markmið bank­ans er að selja rekstur Stakks­bergs á grund­velli þeirrar vinnu sem unnin hefur verið í þessu skyni.“

Mikil andstaða íbúa við endurræsingu

Erfitt er þó að sjá að kís­il­málm­verk­smiðjan verði end­ur­ræst, að minnsta kosti í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Þar ræður miklu gríð­ar­lega and­staða íbúa sem búa í nágrenni við verk­smiðj­una sem hafa kvartað mjög undan mengun sem frá henni kom á meðan að verk­smiðjan var starf­rækt.

Nýtt deiliskipu­lag er for­senda þess að end­ur­upp­bygg­ing verk­smiðj­unnar í geti átt sér stað og bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar hefur vald til að hafna eða sam­þykkja til­lögu að deiliskipu­lagi. Ákvörðun um hvort kís­il­málm­verið hefur starf­semi á ný er því póli­tísk og ræðst í atkvæða­greiðslu kjör­inna full­trúa.

[links]Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber í fyrra að miðað við þau svör sem bár­ust frá bæj­ar­full­trúum í Reykja­nesbæ um afstöðu þeirra til máls­ins sé ljóst að meiri­hluti núver­andi bæj­ar­stjórnar mun ekki gefa grænt ljós á það að kís­il­málm­verk­smiðjan í Helguvík verði end­ur­bætt, ræst að nýju og stækkuð líkt og Stakks­berg fyr­ir­hugar.

Frum­mats­skýrsla Stakks­bergs um end­ur­bætur og stækkun kís­il­vers­ins í Helguvík var aug­lýst í byrjun maí í fyrra. Í 1. áfanga er m.a. ráð­gert að reisa einn 52 metra háan skor­stein og nýta einn ljós­boga­ofn, líkt og United Silicon gerði, til fram­leiðsl­unnar. Að loknum 4. áfanga yrði verk­smiðjan full­byggð með fjórum ljós­boga­ofnum og tveimur 52 metra háum skor­steinum.

Umhverf­is­stofnun sagði í umsögn sinni um frum­mats­skýrsl­una að áhrifin af starf­sem­inni yrðu á heild­ina litið tals­vert nei­kvæð. Áhrif á loft­gæði yrðu sömu­leiðis tals­vert nei­kvæð og mögu­lega veru­lega nei­kvæð. Einnig yrðu áhrif á lykta­mengun, á vatnafar og ásýnd tals­vert nei­kvæð.

Tugir íbúa Reykja­nes­bæjar skil­uðu athuga­semdum við skýrsl­una. Í þeim var farið yfir þau nei­kvæðu heilsu­fars­legu áhrif sem verk­smiðjan hafði á starfs­tíma sínum og allir leggj­ast þeir gegn því að verk­smiðjan verði end­ur­ræst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár