„Ekki ásættanlegt að gera áframhaldandi tilraunir á íbúum“

„Á meðan rök­studdur grunur leikur á að útblástur frá kís­il­ver­inu [í Helguvík] hafi verið ástæða veik­inda íbúa [...] er rík ástæða til að ótt­ast að heilsu­fari íbú­anna verði stefnt í hættu með því að gang­setja verk­smiðj­una aftur.“

„Kísilver United Silicon, álver í Helguvík, kísilver Thorsil og stórskipahöfnin í Helguvík hafa engum tilgangi þjónað enn nema að brenna upp fjármuni og spilla heilsu íbúa.“
„Kísilver United Silicon, álver í Helguvík, kís­il­ver Thorsil og stór­skipa­höfnin í Helguvík hafa engum til­gangi þjónað enn nema að brenna upp fjár­muni og spilla heilsu íbúa.“ Mynd: Aðsend

Stjórn Land­verndar fær ekki séð að Stakks­berg og eig­andi þess, Arion banki, hafi sýnt fram á að end­ur­bætur á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík muni tryggja öryggi íbúa í Reykja­nesbæ eða að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verði á því bili sem gert er ráð fyrir. Núll­kostur, að ræsa verk­smiðj­una ekki að nýju, er eini rök­rétti kost­ur­inn.

Þetta kemur fram í umsögn nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna Land­verndar um frum­mats­skýrslu Stakks­berg vegna fyr­ir­hug­aðrar end­ur­ræs­ingu og stækk­unar kís­il­vers­ins í Helguvík. Stakks­berg er að fullu í eigu Arion banka.

Í umsögn sinni bendir Land­vernd á að stór­iðju­upp­bygg­ing í Helguvík sé ein sorg­ar­saga. „Kísilver United Silicon, álver í Helguvík, kís­il­ver Thorsil og stór­skipa­höfnin í Helguvík hafa engum til­gangi þjónað enn nema að brenna upp fjár­muni og spilla heilsu íbúa. Það er full­komið til­lits­leysi við íbúa á Reykja­nesi og við fram­tíð­ar­kyn­slóðir að reyna að fara aftur af stað með starf­semi sem fékk fall­ein­kunn.“

Hvetur stjórn sam­tak­anna Arion banka til þess að falla frá hug­myndum um að end­ur­ræsa kís­il­verið. Kís­il­verið í Helguvík sé „full­trúi hruns­ins og gamla tím­ans þar sem gegnd­ar­laus og ósjálf­bær ágangur á auð­lindir við­gekkst. Nútíminn kallar á nýjar lausnir og fjár­fest­ingar sem efla hringrás­ar­hag­kerfið. Þar er fjár­munum bank­ans betur varið til heilla fyrir fram­tíð­ina.“

[adspot]

Stakks­berg vill hefja rekstur kís­il­verk­smiðj­unnar á ný og bæta í fram­tíð­inni við þremur ljós­boga­ofnum til við­bótar. Mark­miðið er að fram­leiða 100 þús­und tonn af kísli á ári. Til þess þarf 80.000 tonn af kolum, 8.000 tonn af við­ar­kolum og 90 þús­und tonn af við­ar­flís ásamt þús­undum kílóa af fleiri hrá­efnum.

130 MW þarf fyrir fjóra ofna

Raf­orku­þörfin fyrir slíka fram­leiðslu er um 1.300 Gwh. Núver­andi ofn verk­smiðj­unnar þarf um 32 MW við dæmi­gert álag og tryggir samn­ingur við Lands­virkjun það afl. Ekki er þó útlit fyrir að orkan fáist afhent fyrr en á fyrri hluta árs­ins 2022 og því er gert ráð fyrir að fram­leiðslan geti haf­ist þá. Ekki hefur verið samið við orku­fyr­ir­tækið um raf­orku fyrir stækkun kís­il­vers­ins en fjórir ofnar gætu þurft um 130 MW.

Land­vernd telur að ekki sé hægt að sam­þykkja stækkun kís­il­verk­smiðj­unnar eins og lagt er til í frum­mats­skýrslu af þremur meg­in­á­stæðum:

  • Stakks­berg hefur ekki fundið neinar skýr­ingar á veik­indum íbúa í nágrenni kís­il­vers­ins sem þá var í eigu United Silicon. „Á meðan rök­studdur grunur leikur á að útblástur frá kís­il­ver­inu hafi verið ástæða veik­inda íbúa en ekki hefur fund­ist hvað í útblæstr­inum kanna að vera þess vald­andi er rík ástæða til að ótt­ast að heilsu­fari íbú­anna verði stefnt í hættu með því að gang­setja verk­smiðj­una aftur.“
  • Gríð­ar­leg aukn­ing í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fylgir stækk­un­inni. „Ef af fullri stækkun verður mun losun frá Íslandi aukast um 10% sem er and­stætt nauð­syn­legum aðgerðum til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.“
  • Miklar rekstr­ar­trufl­anir sem voru á starf­semi kís­il­vers United Silicon þegar það var í gangi. „Ef marka má fréttir hafa einnig orðið bil­anir í kís­il­veri PCC á Bakka. Þar er því rík ástæða til að ætla að það sama ger­ist í áform­uðu end­ur­bættu kís­il­veri Stakks­bergs.“

Hvetur Land­vernd Skipu­lags­stofnun og aðra leyf­is­veit­endur af þessum sökum og með fleiri rökum til að hafna umsóknum til stækk­unar og end­ur­nýj­aðs rekst­urs verk­smiðj­unnar. „Þegar mikil óvissa er um áhrif fram­kvæmdar, og ekki síst ef heilsu­far í aðliggj­andi byggðum kann að vera í húfi, er skyn­sam­legt að grípa til var­úð­ar­regl­unnar.“

Á rekstr­ar­tíma kís­il­vers United Silicon í Helguvík fundu íbúar Reykja­nes­bæjar og víðar fyrir ýmsum nei­kvæðum heilsu­fars­á­hrifum. Þar sem íbúa­byggð er ein­göngu kíló­metra frá athafna­svæði verk­smið­unnar má að sögn Land­verndar lítið út af bera til þess að hættu­leg efni fari yfir byggð­ina og mengi and­rúms­loft íbú­anna. „Fram kemur í frum­mats­skýrslu og í svörum við athuga­semdum úr sam­ráðs­ferli, að Stakks­berg hefur engar skýr­ingar fundið á veik­indum íbú­anna sem tengdar hafa verið við kís­il­verk­smiðj­una. Því er ekk­ert vitað um það hvort þær aðgerðir sem nú á að grípa til til þess að koma í veg fyrir að hættu­legum efnum verði dælt yfir íbúa­byggð muni virka. Á meðan orsök veik­ind­anna finnst ekki, er ekki hægt að tryggja að þau muni ekki end­ur­taka sig þegar verk­smiðjan verður aftur gang­sett. Hægt er að leiða líkum að því að hár skor­steinn fyrir útblástur dragi úr þessum áhrifum. En reynslan ein fær úr því skorið. Það er ekki ásætt­an­legt að gera áfram­hald­andi til­raunir á íbúum án sam­þykkis þeirra.“

[links]Í umsögn sinni segir Land­vernd að end­ur­bætur sem Stakks­berg fyr­ir­hugar á verk­smiðj­unni séu til ein­hverra bóta, eins og notkun skor­steins til þess að draga úr mengun yfir byggð­ina. Samtökin benda hins vegar á að samt sem áður sé verið að dæla jafn miklu (eða meira ef af stækkun verður) af meng­andi efnum út í and­rúms­loftið. Einnig verði að taka inn í reikn­ing­inn að í mörgum til­fellum verði að hleypa meng­uðu lofti út um rjáfur ef bil­anir verða, eins og iðu­lega gerð­ist þegar verk­smiðjan var áður í rekstri. „Land­vernd hefur því ekki ástæðu til að ætla að fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur á verk­smiðj­unni séu nægj­an­legar til þess að koma í veg fyrir að þeir gríð­ar­miklu erf­ið­leikar í starf­semi verk­smiðj­unnar áður en henni var lokað, end­ur­taki sig.“

Þá vill stjórn Land­verndar benda á að orðið „lykt­ar­mengun“ sé vill­andi. „Lyktin er af efnum sem skyn­færi manna greina og þeim geta fylgt hættu­leg efni sem lykt­ar­skynið greinir ekki.“

Má finna milljörðunum betri not

Land­vernd telur að íbúar, vegna fyrri reynslu, verði að öllum lík­indum aldrei sáttir við verk­smiðj­una. „Það má því telja að affara­sæl­ast fyrir Arion banka sé að afskrifa verk­smiðj­una, sem fram til þessa hefur verið öllum til óheilla. End­ur­bætur kosta 4,5 millj­arða króna, helm­ing af því sem núver­andi rík­is­stjórn áætlar í lofts­lags­mál á 5 árum. Ef til vill mætti finna millj­örð­unum 4,5 ein­hver betri not.“

Þá gagn­rýnir Land­vernd þá orð­ræðu for­svars­manna orku­fyr­ir­tækja að í land­inu sé orku­skortur og segir fyr­ir­tækin hafa „stundað hræðslu­á­róður um að ekki sé til næg orka til dæmis til þess að knýja raf­bíla­flota lands­ins.“

Land­vernd telur að þessar full­yrð­ingar stand­ist ekki en telur að mik­il­vægt sé að taka með­vit­aðar ákvarð­anir um það í hvað orkan sem fram­leidd er á Íslandi með til­heyr­andi spjöllum á íslenskri nátt­úru sé notuð. „Að mati stjórnar Land­verndar ætti meng­andi stór­iðja eins og kís­il­ver að vera neð­ar­lega á for­gangs­lista yfir orku­kaup­endur fram­tíð­ar­innar. Það er óásætt­an­legt að orku­fyr­ir­tækin geri samn­inga við stór­kaup­endur að orku og full­yrði svo að ekki sé til næg orka í land­inu og að fara verði í frek­ari eyði­legg­ingu á nátt­úr­unni. Lands­virkjun hefur lofað orku til verk­smiðj­unnar óbreyttrar með afli sem nemur 35 MW. Þá orku væri heilla­væn­legra að nýta til ann­arra þarfa svo sem raf­bíla­væð­ingu, ræktun græn­metis eða raf­væð­ingu hafna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár