Verðmiðinn á verksmiðjunni í Helguvík lækkaði um 4,2 milljarða á níu mánuðum

Bókfært virði kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík er komið niður í 2,7 millj­arða króna. Óvissa á mörk­uðum fyrir silíkon hefur nei­kvæð áhrif á sölu­ferli verk­smiðj­unnar.

Verksmiðjan hefur ekki verið starfrækt síðan haustið 2017.
Verk­smiðjan hefur ekki verið starf­rækt síðan haustið 2017. Mynd: Aðsend

Í lok mars 2019 var virði kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík, sem er í eigu Arion banka, bók­færð á 6,9 millj­arða króna í bókum bank­ans. Um síð­ustu ára­mót hafði virði hennar verið fært niður um 4,2 millj­arða króna frá þeim tíma og bók­fært virði hennar er nú 2,7 millj­arðar króna.

[links]Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Arion banka sem birtur var í lið­inni viku.

Verk­smiðjan hefur ekki verið í gangi frá því í sept­em­ber 2017. Nokkrum mán­uðum síðar, í jan­úar 2018, fór félagið sem byggði hana í þrot en áætl­aður kostn­aður við upp­setn­ingu verk­smiðj­unnar var um 22 millj­arðar króna.

Arion banki var stærsti kröfu­hafi verk­efn­is­ins og tók yfir verk­smiðj­una. Til­gang­ur­inn átti að vera sá að greiða úr þeim vand­kvæðum sem voru til staðar við rekstur hennar, upp­fylla þau leyfi sem þurfti til og selja hana síðan þegar verk­smiðjan væri orðin starf­hæf að nýju.

[adspot]Þrátt fyrir að mikil and­staða væri við fyr­ir­hug­aða end­ur­ræs­ingu verk­smiðj­unnar hjá íbúum í Reykja­nesbæ, sem kvört­uðu mjög yfir mengun frá henni, að við­bót­ar­kostn­aður við stand­setn­ingu hennar hrann­að­ist upp og þeirri stað­reynd að miklu til við­bótar þyrfti að kosta til svo hún myndi upp­fylla sett skil­yrði til að hljóta umhverf­is­mat, þá hækk­aði bók­fært virði verk­smiðj­unnar sífellt í bókum Arion banka. Þ.e. þangað til að það fór á liða á árið 2019.

Óvissa á mörkuðum gerir sölu ólíklega

Í árs­reikn­ingi Arion Banka segir að eftir að eignir United Silicon voru færðar til Stakks­berg, dótt­ur­fé­lags bank­ans, hafi það unnið að því að draga úr óvissu varð­andi end­ur­gang­setn­ingu verk­smiðj­unnar, meðal ann­ars með því að fá starfs­leyfi rekstr­ar­ins yfir­færð til félags­ins, afla félag­inu nýs raf­orku­samn­ings og vinna að grunn verk­fræði­legri hönnun þeirra úrbóta sem nauð­syn­legt er að unnar séu í aðdrag­anda end­ur­gang­setn­ingar. „Stakks­berg er á loka­stigi vinnu við gerð nýs umhverf­is­mats fyrir verk­smiðj­una. Fyr­ir­hug­aðar úrbætur eru innan fyr­ir­liggj­andi deiliskipu­laga. Engu að síður er sú krafa á Reykja­nesbæ að breyta núver­andi deiliskipu­lagi til að end­ur­spegla bygg­ing­ar­leyfi sem þegar hefur verið gefið út af sveit­ar­fé­lag­inu. Markmið bank­ans er að selja rekstur Stakks­bergs á grund­velli þeirrar vinnu sem unnin hefur verið í þessu skyni.“

Slík sala er þó háð mik­illi óvissu, enda virð­ist ekki vera mik­ill mark­aður fyrir verk­smiðj­una sem stendur. Í afkomu­við­vörun Arion banka sem send var út í jan­úar kom fram að vegna „óvissu á mörk­uðum með síli­kon hafa nokkrir fram­leið­endur dregið úr fram­leiðslu eða lokað verk­smiðjum. Því er til staðar ónýtt fram­leiðslu­geta sem leiða má líkur að hafi nei­kvæð áhrif á sölu­ferli síli­kon­verk­smiðj­unnar í Helguvík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár