Þrotabú United Silicon stefnir Magnúsi Garðarssyni öðru sinni

Fyrr­ver­andi for­stjóri United Silicon er grun­aður um að hafa látið leggja greiðslur inn á reikn­inga í Danmörku og Ítalíu og síðan notað þær í eigin þágu. Alls er grunur um yfir 600 millj­óna króna fjár­drátt.

Magnús Garðarsson er fyrrverandi forstjóri og stofnandi United Silicon.
Magnús Garð­ars­son er fyrr­ver­andi for­stjóri og stofn­andi United Silicon. Mynd: Skjáskot

Þrotabú United Silicon hefur stefnt stofn­anda og fyrr­ver­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Magnúsi Garð­ars­syni, öðru sinni fyrir meint fjár­svik hans. Nýja málið snýst um 71 milljón króna sem Magnús á að hafa látið leggja inn á banka­reikn­ing sinn í Danmörku og nýtt í eigin þágu. RÚV greinir frá.

[links]Þrota­búið hafði áður stefnt Magnúsi í byrjun árs 2018 vegna meints fjár­dráttar upp á rúm­lega hálfan millj­arð króna. Samkvæmt skýrslu sem KPMG vann fyrir þrota­búið, og Kjarninn greindi ítar­lega frá í jan­úar síð­ast­liðnum í röð frétta­skýr­inga, kom fram að alls sé Magnús grun­aður um að hafa dregið að sér 605 millj­ónir króna.

Samkvæmt skýrsl­unni er rök­studdur grunur um að Magnús hafi, í starfi sínu sem for­stjóri United Silicon, falsað reikn­inga og und­ir­skriftir, átt við lána­samn­inga og búið til gervi­lén í við­leitni sinni til að draga að sér fé úr fyr­ir­tæk­inu.

[adspot]United Silicon kærði hann til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara vegna gruns um stór­­felld auð­g­un­­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014.

Í mars lögðu stjórnir þeirra líf­eyr­is­sjóða sem fjár­fest höfðu í United Silicon fram kæru til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara þar sem óskað er eftir það að emb­ættið tæki til rann­­sóknar nokkur alvar­­leg til­­vik sem grunur leikur á að feli í sér refsi­verð brot af hálfu Magn­úsar og eftir atvikum ann­­arra stjórn­­enda, stjórn­­­ar­­manna og starfs­­manna félags­­ins. Áður hafði stjórn United Silicon og Arion banki, stærsti kröf­u­hafi félags­­ins, sent kærur vegna gruns um refsi­verða hátt­­semi Magn­úsar til yfir­­­valda. Þetta var því þriðja kæran sem berst vegna gruns um brot hans.

Magnús hefur hafnað þessum ásök­unum í yfir­­lýs­ingu sem hann sendi frá sér 12. sept­­em­ber 2017. Þar sagði hann þær „bull og vit­­leysu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár