Júlíus Vífill viðurkenndi skattalagabrot, en þau eru fyrnd

Við rann­sókn á meintum skatta­laga­brotum Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við­ur­kenndi hann að hafa ekki gefið umtals­verðar tekjur upp til skatts. Hann átti um tíma 131 til 146 millj­ónir á aflands­reikn­ingi.

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við­ur­kenndi við rann­sókn á meintum efna­hags­brotum hans að hann hefði framið skatta­laga­brot. Þetta kemur fram í ákærðu hendur honum sem hér­aðs­sak­sókn­ari gaf út 28. júní síð­ast­lð­inn.Í þeirri játn­ingu fólst að Júlíus Vífill við­ur­kenndi að hann gaf ekki upp til skatts tekjur sem honum hlotn­uð­ust árið 2005, eða fyrr, og geymdar eru á aflands­reikn­ingi. Júlíus Vífill hefur ekki viljað upp­lýsa um hvenær umræddra tekna var aflað og því er ekki hægt að segja með vissu hver ávinn­ingur hans af skatta­laga­brot­unum hefur verið.

[links]Skatta­laga­brot fyrn­ast hins vegar á sex árum. Það þýðir að ef við­kom­andi fremur slík, og kemur sér þannig undan að greiða lög­bund­inn skatt eins og aðrir þegnar ríkja þurfa að gera, en nær að hylja þau í þann tíma þá kemst hann upp með það.

All­margir þeirra Íslend­inga sem földu fé í aflands­fé­lögum á árunum fyrir banka­hrunið, og voru opin­beraðir í Panama­skjöl­unum eins og Júlíus Vífill, munu því sleppa ákæru fyrir þau brot. Í þeim til­fellum sem um er að ræða meiri­háttar skatta­laga­brot liggur allt að sex ára fang­els­is­vist auk þess sem við­kom­andi þarf að greiða háa sekt sé hann sak­felldur.

Ávinningur 49 til 57 milljónir króna

Öðru máli gegnir hins vegar um pen­inga­þvætti. Lögum lands­ins var breytt árið 2009 þannig að refsi­vert var að þvætta ávinn­ing af eigin afbrotum. Því er Júlíus Vífill ákærður fyrir pen­inga­þvætti frá þeim tíma sem lögin tóku gildi, eða frá 30. des­em­ber 2009.

[adspot]Í ákæru segir að borg­ar­full­trú­inn fyrr­ver­andi hafi á árunum 2010 til 2014 „geymt á banka­reikn­ingi sínum nr. 488380 hjá UBS banka á Ermar­sunds­eyj­unni Jersey, and­virði 131 til 146 millj­óna króna, í banda­ríkja­dölum, evrum og sterl­ingspundum, sem að hluta voru ávinn­ingur refsi­verðra brota, þar sem um var að ræða tekjur sem ákærða höfðu hlotn­ast nokkrum árum fyn, en ekki talið fram til skatts, og því ekki greitt tekju­skatt og útsvar af í sam­ræmi við ákvæði skatta­laga, ásamt vöxtum af því fé, og hafa árið 2014 râôstafað umræddum fiár­munum af fyrm­efndum banka­reikn­ingi hjá UBS banka inn á banka­reikn­ing nr. 0260.1020 02.01, hjá bank­anum Julius Bär í Sviss, sem til­heyrði vörslu­sjóðnum Silwood Foundation, en rétt­hafar vörslu­sjóðs­ins voru ákærði, eig­in­kona hans og börn.“

Sú fjár­hæð sem er talin vera ólög­mætur ávinn­ingur vegna þvætt­is­ins, þ.e. þeir skattar sem Júlíus Vífill átti að greiða og vextir af því fé, er áætluð á bil­inu 49 til 57 millj­ónir króna. Refsiramm­inn fyrir slík brot er allt að sex ára fang­elsi.

Langur aðdragandi

Kjarninn greindi frá því 17. ágúst síð­ast­lið­inn að Júlíus Vífill hefði verið ákærður í mál­inu. Í þeirri umfjöllun kom fram að hann hefði verið einn þeirra stjórn­­­mála­­manna sem voru opin­beraðir í Pana­ma­skjöl­unum og greint var frá í sér­­­stökum Kast­­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl í 2016. Þar kom meðal ann­ars fram að hann hefði í árs­­byrjun 2014 stofnað félagið Silwood Founda­tion á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félags­­ins að nafn Júl­í­usar Víf­ils kæmi hvergi fram í tengslum við félag­ið, sam­kvæmt umfjöll­un­inni.

Tveimur dögum áður en að Kast­ljós­þátt­ur­inn var sýndur sendi Júlíus Vífill frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði að til­gang­ur­inn með stofnun aflands­fé­lags­ins væri að stofna eft­ir­launa­sjóð í Sviss. „Allt sem við kemur þessum sjóði er í sam­ræmi við íslensk lög og reglur, enda naut ég sér­fræði­ráð­gjafar til að tryggja að rétti­lega og lög­lega væri að málum staðið. Mér var ráð­lagt að skrá stofnun sjóðs­ins í Panama. Ég hef hvorki fengið neitt greitt úr sjóðnum né haft af honum ann­ars konar tekjur og hef ekki heim­ild til að ráð­stafa fjár­munum úr honum.”

[adspot]Júlíus Vífill sagði af sér sem borg­ar­full­trúi 5. apríl 2016, tveimur dögum eftir að þátt­ur­inn var sýndur.

Systk­ini Júl­í­usar Vífils og erf­ingjar for­eldra hans hafa sakað hann og bróður hans, Guðmund Ágúst Ingv­ars­son, um að komið ætt­ar­auð for­eldra þeirra undan og geymt hann á aflands­reikn­ing­um. Þessum ávirð­ingum hefur Júlíus Vífill ávallt hafnað með öllu.

Sagði ákæruna vonbrigði

Eftir að Kjarninn birti frétta­skýr­ingu sína um að Júlíus Vífill hefði verið ákærður birti hann yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni. Þar sagði hann að ákæran kæmi honum á óvart og væri von­brigði. Hann teldi „engar laga­legar for­sendur vera fyrir ákærunni og mun auð­vitað takast á við hana fyrir dóm­stól­um. Það mál verður útkljáð á þeim vett­vangi. Það krist­all­ast margt í líf­inu við mót­læti og átök. Eftir stendur að lokum það sem er mik­il­væg­ast: fjöl­skyld­an, vin­áttan og kær­leik­ur­inn.“

Þar sagði Júlíus Vífill einnig að honum finn­ist sem að á und­an­förnum tveimur árum hafi hann staðið í veð­ur­báli. „Á mig voru bornar ótrú­legar og frá­leitar sakir í æsifrétta­stíl um að fjár­munir á erlendum banka­reikn­ingum væru illa fengnir og ekki mín eign. Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur nú kannað sann­leiks­gildi máls­ins og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki sé fótur fyrir þeim ásök­un­um. Hann hefur hins vegar birt mér ákæru sem snýr að skatta­mál­u­m.“

Hægt er að sjá ákæruna á hendur Júlíusi Vífli hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár