Júlíus Vífill: Ákæran kom á óvart og er honum vonbrigði

Fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi seg­ist telja að engar laga­legar for­sendur séu fyrir ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara á hendur honum.

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að ákæra hér­aðs­sak­sókn­ara á hendur honum, sem Kjarninn greindi frá í morgun, hafi komið honum á óvart og séu von­brigði.

[links]Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Júlíus Vífill að hann telji „engar laga­legar for­sendur vera fyrir ákærunni og mun auð­vitað takast á við hana fyrir dóm­stólum. Það mál verður útkljáð á þeim vett­vangi. Það krist­all­ast margt í líf­inu við mót­læti og átök. Eftir stendur að lokum það sem er mik­il­væg­ast: fjöl­skyldan, vin­áttan og kær­leik­ur­inn.“

Í stöðu­upp­færsl­unni segir hann einnig að honum finn­ist sem að á und­an­förnum tveimur árum hafi hann staðið í veð­ur­báli. „Á mig voru bornar ótrú­legar og frá­leitar sakir í æsifrétta­stíl um að fjár­munir á erlendum banka­reikn­ingum væru illa fengnir og ekki mín eign. Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur nú kannað sann­leiks­gildi máls­ins og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki sé fótur fyrir þeim ásök­unum. Hann hefur hins vegar birt mér ákæru sem snýr að skatta­málum.“

Þann 5. jan­úar 2017 kærði skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóri Júl­íus Vífil til emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara vegna meintra brota á skatta­lögum og vegna gruns um pen­inga­þvætti. Við síð­­­ara brot­inu getur legið allt að sex ára fang­els­is­­dóm­­ur.

[adspot]Í kærunni kom fram að Júl­­íus Víf­ill hafi átt fjár­­muni á erlendum banka­­reikn­ingum að minnsta kosti frá árinu 2005. Frá árinu 2014 hafi þeir verið hjá svis­s­­neska bank­­anum Julius Bär í nafni aflands­­fé­lags Júl­í­us­­ar Vífils.

Kjarninn greindi frá því í morgun að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefði ákært Júlíus Vífill fyrir pen­inga­þvætti og að ákæran sé dag­sett 28. júní síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár