Stórfelld skattaundanskot í 57 Panamamálum

Alls hefur 57 málum verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara í kjöl­far rann­sóknar skatt­rann­sókn­ar­stjóra á gögn­unum sem keypt voru með upp­lýs­ingum um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum. Van­tald­ir und­an­dregn­ir skatt­stofn­ar nema alls um 15 millj­örðum króna.

Alls hefur 57 málum verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara í kjöl­far rann­sóknar skatt­rann­sókn­ar­stjóra á gögn­unum sem keypt voru með upp­lýs­ingum um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum. Í þessum málum leiddi rann­sókn í ljós stór­felld und­an­skot. [links]Frá þessu greinir í svari fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Oddnýjar Harð­ar­dóttur þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar vegna rann­sóknar skatt­rann­sókn­ar­stjóra á hinum svoköll­uðu Pana­man­gögnum.

Rannsókn er lokið á 89 málum en 14 eru enn í rann­sókn. Van­tald­ir und­an­dregn­ir skatt­stofn­ar nema alls um 15 millj­örðum króna. Í 18 málum hefur skatt­rann­sókn­ar­stjóri farið fram með sekt­ar­kröfu fyrir yfir­skatta­nefnd og einu máli hefur verið lokið með sekt­ar­gerð. Í níu málum hefur ákvörðun verið tekin um að fella niður refsi­með­ferð. Til við­bótar liggur fyrir ákvörðun um að vísa einu máli til hér­aðs­sak­sókn­ara og þremur til yfir­skatta­nefndar til sekt­ar­með­ferðar.

„SRS hef­ur lokið rann­sókn í alls 89 mál­um sem tengj­ast svo­nefnd­um Pana­ma­gögn­um. Er þar hvort tveggja horft til mála er lúta að skatt­skil­um þeirra er beint koma fram í nefnd­um gögn­um sem og til þeirra mála sem af­leidd eru og gerð hef­ur verið grein fyr­ir hér að fram­an. Alls eru 14 mál enn í rann­sókn, þar af sjö af­leidd mál. Fimm þeirra eru á loka­stigi rann­sókn­ar,“ seg­ir í svari fjár­mála­ráð­herra.

Enn frem­ur kem­ur fram í svari ráð­herra að það megi ætla að ástæða sé til að hefja rann­sókn á nokkr­um mál­um til við­bót­ar. Rann­sókn­ir í 12 mál­um hafa verið felld­ar niður, þar á meðal sök­um þess að grun­ur hef­ur ekki reynst á rök­um reist­ur eða vegna þess að ekki hef­ur reynst unnt að upp­lýsa mál með full­nægj­andi hætti.

Áður hefur komið fram að kröfur vegna end­­ur­á­lagn­ingar á grund­velli ­­gagn­anna séu umtals­vert hærri en kostn­að­­ur­inn við kaupin á gögn­un­­um. Ríkið keypti gögnin árið 2015. Í fram­haldi af þeim kaupum voru gögnin greind og þær upp­lýs­ingar sem þar komu fram m.a. bornar saman við inn­send skatt­fram­töl. Í ljós kom að ein­vörð­ungu um þriðj­ungur þeirra ein­stak­linga, sem gögnin báru með sér að væru raun­veru­legir eig­endur félag­anna, höfðu gert grein fyrir eign­ar­haldi á félög­unum í skatt­skila­gögnum sínum. Í þeim til­vikum þar sem gerð var grein fyrir eign­ar­haldi var ýmist að gerð væri grein fyrir ein­hverjum umsvifum félag­anna eða engum sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins.

Van­fram­taldir und­an­dregnir skatt­stofnar nema um 15 millj­örðum króna en meg­in­hluti skatt­stofns­ins eru fjár­magnstekjur. Gjalda­breyt­ingar Rík­is­skatt­stjóra á árunum 2016, 2017 og það sem af er árinu 2018 hafa numið sam­tals 518 millj­ónum hjá þeim aðilum sem komu fram í þeim gögnum sem skatt­stjóri fékk fram­send frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Enn sem komið er liggur ekki fyrir hversu mikið muni inn­heimt­ast af þeim fjár­hæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár