Búið að margborga sig að kaupa skattagögnin

Kröfur vegna end­ur­á­lagn­ingar sem urðu til vegna upp­lýs­inga úr skatta­gögnum sem ríkið keypti hefur marg­borgað sig.

Kröfur vegna end­ur­á­lagn­ingar á grund­velli Pana­ma­gagn­anna eru nú orðnar umtals­vert hærri en kostn­að­ur­inn við kaupin á gögn­un­um.

Þetta kemur fram í svari Bene­dikts Jóhanns­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi sem birt var í gær. Eins og fram hefur kom­ið, keypt Skatt­rann­sókn­ar­stjóri gögn um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum fyrir 37 millj­ónir króna.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur hins vegar nú þegar krafið fjóra ein­stak­ling um 82 millj­ónir eða næstum þre­falda þá upp­hæði sem kost­aði að kaupa gögn­in.

Alls koma 349 Íslend­ingar og 61 aflands­fé­lög með íslenska kenni­tölu fyrir í gögnum skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Sam­tals hafa 34 mál verið tekin til form­legrar rann­sóknar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Af þeim málum er tekin hafa verið til rann­sóknar er rann­sókn lokið í þremur mál­um. Tveimur af þeim hefur verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara en ákvörðun hefur verið tekin um að gera kröfu um sekt hjá yfir­skatta­nefnd í þriðja mál­inu. Rann­sóknir í sjö málum eru á loka­stigi.

Fyr­ir­spurnin til efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, sem kom frá Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dótt­ur, fer hér á eftir ásamt svörum ráð­herra:

1. Hve margir aðilar með íslenska kenni­tölu koma fyrir í gögnum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti sum­arið 2015 og gjarnan eru kennd við Panama?

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra er fjöldi ein­stak­linga með íslenska kenni­tölu, sem fyrir koma í þeim gögnum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti sum­arið 2015, sam­tals 349. Fjöldi aflands­fé­laga með íslenska kenni­tölu, sem fyrir koma í keyptu gögn­unum, er 61.

2. Hversu mörg mál hafa verið tekin til form­legrar rann­sóknar á grund­velli upp­lýs­inga úr gögn­unum og hve mörg þeirra hafa leitt til end­ur­á­lagn­ingar eða ákæru?

Alls hafa 34 mál verið tekin til form­legrar rann­sóknar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra vegna gruns um skatta­laga­brot sem tengj­ast hinum svo­nefndu Pana­ma­gögnum. Af þeim voru 27 tekin til rann­sóknar eftir að skatt­rann­sókn­ar­stjóri festi kaup á umræddum gögnum. Eitt mál hefur verið tekið til rann­sóknar í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar í tengslum við Panama­lek­ann. Við rann­sóknir skatt­rann­sókn­ar­stjóra á þessum málum hefur vaknað grunur um skatta­laga­brot í sex öðrum málum. Af þeim málum er tekin hafa verið til rann­sóknar er rann­sókn lokið í þremur málum. Tveimur af þeim hefur verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara en ákvörðun hefur verið tekin um að gera kröfu um sekt hjá yfir­skatta­nefnd í þriðja mál­inu. Rann­sóknir í sjö málum eru á loka­stigi. Rannsókn átta mála hefur verið felld niður, m.a. vegna þess að grunur hefur ekki reynst á rökum reistur eða ekki hefur reynst unnt að upp­lýsa mál með full­nægj­andi hætti. End­ur­á­lagn­ing hefur enn ekki átt sér stað í þeim málum sem rann­sókn er lokið í og ekki hefur verið gefin út ákæra í þeim málum sem send hafa verið hér­aðs­sak­sókn­ara.

Þau mál, sem var að finna í keyptu gögn­unum og ekki voru tekin til form­legrar rann­sóknar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra (SRS), voru fram­send til rík­is­skatt­stjóra í októ­ber 2015 með vísan til þess að grein­ing SRS á umræddum gögnum benti til þess að skatt­skil aðila gætu verið athug­un­ar­verð, án þess þó að sýnt þætti að um refsi­verð und­an­skot væri að ræða. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra hafa þegar verið send út bréf til 229 ein­stak­linga í tengslum við hin keyptu gögn. Til við­bótar þeim sem hafa fengið bréf hafa fleiri íslenskir aðilar sem fram komu í keyptu gögn­unum hlotið skoðun hjá emb­ætt­inu án þess að form­legar bréfa­skriftir hafi nú þegar átt sér stað.

3. Hversu háum fjár­hæðum nemur end­ur­á­lagn­ing opin­berra gjalda á grund­velli gagn­anna, ann­ars vegar í heild og hins vegar eftir teg­undum opin­berra gjalda?

Eins og fram kemur í svari við 1. lið fyr­ir­spurn­ar­innar þá er rann­sókn lokið í þremur málum hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra, en end­ur­á­lagn­ing í þeim málum hefur ekki átt sér stað. Önnur mál, sem eru til með­ferðar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra, eru enn í rann­sókn.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra nemur end­ur­á­lagn­ing opin­berra gjalda á grund­velli keyptu gagn­anna 81.951.171. kr. Að baki þeirri fjár­hæð eru fjórir ein­stak­lingar. Þar af nam auð­legð­ar­skattur 80.997.139 kr. og tekju­skattur 954.032 kr.

4. Hversu háum fjár­hæðum nema sektir og önnur við­ur­lög í umræddum málum?

Eins og áður er komið fram hefur tveimur málum skatt­rann­sókn­ar­stjóra verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara til refsi­með­ferðar, jafn­framt því að tekin hefur verið ákvörðun um að gera kröfu um sekt hjá yfir­skatta­nefnd í þriðja mál­inu. Ákvörðun um refsi­með­ferð í málum sem enn eru til rann­sóknar verður tekin í fram­haldi rann­sókn­ar­loka.

Rík­is­skatt­stjóri hefur ekki heim­ildir til að beita sektum en hefur þó laga­heim­ildir til að beita 25% álagi skv. 108. gr. laga nr. 90/2003, um tekju­skatt. Var þeirri heim­ild beitt í nefndum málum, sbr. svar við 3. lið fyr­ir­spurn­ar­innar.

5. Hve margir ein­stak­lingar ann­ars vegar og lög­að­ilar hins vegar hafa sætt end­ur­á­lagn­ingu á grund­velli gagn­anna og hvernig skipt­ast fjár­hæðir end­ur­á­lagn­ingar og sekta og ann­arra við­ur­laga milli ein­stak­linga, félaga í rekstri, eign­ar­halds­fé­laga og ann­arra félags­forma?

Til svars við þessum lið fyr­ir­spurn­ar­innar er vísað til svars við 2.–4. lið.

6. Í hve mörgum til­fellum og fyrir hve stórum hluta krafna vegna end­ur­á­lagn­ingar hefur rík­is­sjóður trygg veð?

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur farið fram á kyrr­setn­ingu eigna vegna rann­sókna í þremur af þeim málum sem hafa verið til rann­sóknar. Toll­stjóri ann­ast slíka kyrr­setn­ingu að beiðni skatt­rann­sókn­ar­stjóra. End­ur­á­lagn­ing rík­is­skatt­stjóra fer án frek­ari íhlut­unar inn í inn­heimtu­kerfi rík­is­ins þar sem nauð­syn­legum inn­heimtu­að­ferðum er beitt sé umrædd end­ur­á­lagn­ing ekki greidd.

7. Hve mörgum málum sem urðu til vegna upp­lýs­inga úr Panama­skjöl­unum er enn ólokið og hversu háum fjár­hæðum má gera ráð fyrir að end­ur­á­lagn­ing geti numið?

Af þeim málum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri tók til með­ferðar eru eins og fram hefur komið rann­sóknir í sjö málum á loka­stigi og rann­sóknir í 16 málum eru enn í gangi, eða sam­tals í 23 málum. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra er úti­lokað að segja með nákvæmni hversu háar fjár­hæðir er um að ræða í óloknum málum, en í ein­stökum málum sem eru til með­ferðar nema und­an­dregnir skatt­stofnar allt að nokkrum hund­ruðum millj­óna króna. Þá er fyr­ir­séð að fleiri mál verði tekin til rann­sóknar á næstu mán­uðum, þar sem grunur liggur nú fyrir um skatta­laga­brot, en rann­sókn er ekki form­lega hafin.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra er í gangi úrvinnsla á fjöl­mörgum málum. Á grund­velli mála sem langt eru komin þá má áætla að fjár­hæðir gjalda vegna þessa mála­flokks geti þre­fald­ast á næstu mán­uðum frá því sem áður var nefnt. Þá er rétt að taka fram að eftir að vinna við þennan mála­flokk hófst hafa borist sex skatt­er­indi þar sem ein­stak­lingar, ýmist per­sónu­lega eða vegna félaga á þeirra vegum, hafa óskað eftir end­ur­upp­töku á áður inn­sendum skatt­fram­tölum. Um er að ræða fjár­muni og/eða fjár­magnstekjur erlendis sem áður hafði ekki verið gerð grein fyrir á fram­tölum. Hækkun á auð­legð­ar­skatti vegna þessa hefur nú þegar numið 36.400.647 kr., tekju­skatti alls 25.780.957 kr. og fjár­magnstekju­skatti 6.179.803 kr. Jafn­framt eru óaf­greidd sjö skatt­er­indi af sama meiði sem leiða til við­bót­ar­skatt­lagn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár