Júlíus Vífill: „Ég er saklaus“

Mál á hendur Júlíusi Vífli Ingv­ars­syni var þing­fest í morgun. Hann seg­ist sak­laus af ákæru um pen­inga­þvætti en ætlar ekki að tjá sig meira um málið að svo stöddu.

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, neit­aði sök við þing­fest­ingu saka­máls á hendur honum sem fram fór í morgun. Frá þessu er greint á vef mbl.is.

[links]Júlíus Vífill, sem er ákærður fyrir pen­inga­þvætti, sagði við fjöl­miðla eftir að þing­setn­ingin fór fram að hann myndi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu.

Kjarn­inn greindi frá því 17. ágúst síð­ast­lið­inn að Júl­íus Víf­ill hefði verið ákærður í mál­inu. Í þeirri umfjöllun kom fram að hann hefði verið einn þeirra stjórn­­­­­mála­­­manna sem voru opin­beraðir í Pana­ma­skjöl­unum og greint var frá í sér­­­­­stökum Kast­­­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl í 2016. Þar kom meðal ann­ars fram að hann hefði í árs­­­byrjun 2014 stofnað félagið Silwood Foundation á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félags­­­ins að nafn Júl­í­usar Víf­ils kæmi hvergi fram í tengslum við félag­ið, sam­kvæmt umfjöll­un­inni.

Í ákærunni á hendur Júlíusi Vífli kemur fram að hann hafi við­ur­kennt við rann­sókn máls­ins að hann hefði framið skatta­laga­brot. Í þeirri játn­ingu fólst að Júl­íus Víf­ill við­ur­kenndi að hann gaf ekki upp til skatts tekjur sem honum hlotn­uð­ust árið 2005, eða fyrr, og geymdar eru á aflands­reikn­ingi. Júl­íus Víf­ill hefur ekki viljað upp­lýsa um hvenær umræddra tekna var aflað og því er ekki hægt að segja með vissu hver ávinn­ingur hans af skatta­laga­brot­unum hefur ver­ið.

[adspot]Skatta­laga­brot fyrn­ast hins vegar á sex árum. Það þýðir að ef við­kom­andi fremur slík, og kemur sér þannig undan að greiða lög­bund­inn skatt eins og aðrir þegnar ríkja þurfa að gera, en nær að hylja þau í þann tíma þá kemst hann upp með það.

Öðru máli gegnir hins vegar um pen­inga­þvætti. Lögum lands­ins var breytt árið 2009 þannig að refsi­vert var að þvætta ávinn­ing af eigin afbrot­um. Því er Júl­íus Víf­ill ákærður fyrir pen­inga­þvætti frá þeim tíma sem lögin tóku gildi, eða frá 30. des­em­ber 2009.

Í ákæru segir að borg­ar­full­trú­inn fyrr­ver­andi hafi á árunum 2010 til 2014 „geymt á banka­reikn­ingi sínum nr. 488380 hjá UBS banka á Ermar­sunds­eyj­unni Jersey, and­virði 131 til 146 millj­óna króna, í banda­ríkja­dölum, evrum og sterl­ingspund­um, sem að hluta voru ávinn­ingur refsi­verðra brota, þar sem um var að ræða tekjur sem ákærða höfðu hlotn­ast nokkrum árum fyn, en ekki talið fram til skatts, og því ekki greitt tekju­skatt og útsvar af í sam­ræmi við ákvæði skatta­laga, ásamt vöxtum af því fé, og hafa árið 2014 râôstafað umræddum fiár­munum af fyrm­efndum banka­reikn­ingi hjá UBS banka inn á banka­reikn­ing nr. 0260.1020 02.01, hjá bank­anum Julius Bär í Sviss, sem til­heyrði vörslu­sjóðnum Silwood Foundation, en rétt­hafar vörslu­sjóðs­ins voru ákærði, eig­in­kona hans og börn.“

Sú fjár­hæð sem er talin vera ólög­mætur ávinn­ingur vegna þvætt­is­ins, þ.e. þeir skattar sem Júl­íus Víf­ill átti að greiða og vextir af því fé, er áætluð á bil­inu 49 til 57 millj­ónir króna. Refsiramm­inn fyrir slík brot er allt að sex ára fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár