Héraðsdómur vísar frá CLN-máli Kaupþingsmanna

CLN-málið, sem snýst um meint stór­felld umboðs­svik upp á 72 millj­arða króna út úr Kaup­þingi, hefur verið vísað frá. Greiðslur frá Deutche Bank til KAup­þings breyttu mál­inu.

Fjöl­skip­aður hér­aðs­dómur vís­aði í dag frá svoköll­uðu CLN-máli. Ástæðan var að rann­sókn máls­ins væri ófull­nægj­andi og að hér­aðs­sak­sókn­ari hafi ekki orðið við fyr­ir­mælum Hæsta­réttar um að rann­saka málið betur. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Þar segir að við rann­sókn máls­ins hafi hér­aðs­sak­sókn­ari ekki leitað til Deutche Bank eða skipta­stjóra tveggja aflands­fé­laga til að fá upp­lýs­ingar sem skipti höf­uð­máli við úrlausn saka­máls­ins. Þess í stað hafi hann ein­ungis leitað til Kaup­þings ehf. og tekið skýrslu af lög­manni sem vann fyrir Deutsche Bank. Það væri ekki full­nægj­andi.

Þrír ákærðir

Í hinu svo­­kall­aða CLN-­­máli eru Hreiðar Már Sig­­urðs­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings, Sig­­urður Ein­­ar­s­­son, fyrr­ver­andi starf­andi stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur, og Magnús Guð­­munds­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings í Lúx­em­borg, ákærð­ir, en mál­inu var áfrýjað til Hæsta­réttar eftir sýkn­u­­dóm í hér­­aði, 26. jan­úar í fyrra, og máls­­kostn­aður að öllu leyti féll á rík­­is­­sjóð.

Í mál­inu eru Hreiðar Már, Sig­­urður og Magnús ákærð­ir fyr­ir lán til Chesterfield United Inc., Partridge Mana­gement Group S.A. og eign­­­ar­halds­­­­­fé­laga þeirra, sam­an­lagt um 510 millj­­ónir evra, eða sem nemur um 64 millj­­örðum króna á núver­andi geng­i.

hinu svo­­kall­aða CLN-­­máli eru Hreiðar Már Sig­­urðs­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings, Sig­­urður Ein­­ar­s­­son, fyrr­ver­andi starf­andi stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur, og Magnús Guð­­munds­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings í Lúx­em­borg, ákærð­ir, en mál­inu var áfrýjað til Hæsta­réttar eftir sýkn­u­­dóm í hér­­aði, 26. jan­úar í fyrra, og máls­­kostn­aður að öllu leyti féll á rík­­is­­sjóð.

Í mál­inu eru Hreiðar Már, Sig­­urður og Magnús ákærð­ir fyr­ir lán til Chesterfield United Inc., Partridge Mana­gement Group S.A. og eign­­­ar­halds­­­­­fé­laga þeirra, sam­an­lagt um 510 millj­­ónir evra, eða sem nemur um 64 millj­­örðum króna á núver­andi geng­i.

Í ákæru var því haldið fram að við lán­veit­ing­una hafi ýmsar reglur Kaup­­þings banka hf. verið brotn­­ar.

Magn­úsi Guð­­munds­­syni er gefin að sök hlut­­deild í brotum Hreið­­ars Más og Sig­­urð­­ar, en í ákærunni er lýst með hvaða hætti sá banki hafi tekið þátt í fram­­kvæmd kaupanna á hinum láns­hæf­istengdu skulda­bréf­­um.

Með þessu voru ákærðu taldir hafa stefnt fé Kaup­­þings banka hf. í veru­­lega hættu. Í ákærunni segir jafn­­framt um öll lán­in, en þau námu sam­tals 510 millj­­ónum evra, að þau hafi ekki verið greidd til baka og láns­­féð yrði að telj­­ast Kaup­­þingi banka hf. glat­að.

Ákræðu voru upp­haf­lega sýkn­aðir í hér­aði en þeirri nið­ur­stöðu áfrýjað til Hæsta­réttar af hálfu ákæru­­valds­ins. Hann vís­aði mál­inu aftur heim í hérað til efn­is­með­ferðar. Þeirri með­ferð lauk í dag.

Sam­komu­lag við Deutsche Bank breytti mál­inu

Með grein­­ar­­gerð ákæru­­valds til Hæsta­réttar í fyrra­haust fylgdi sam­komu­lag, sem gert hafði verið 12. des­em­ber 2016 milli Kaup­­þings ehf. sem er félag sem sér um umsýslu eigna Kaup­­þings banka hf. eftir að slitum á bank­­anum lauk, og Deutsche Bank í London.

Með sam­komu­lag­inu luku aðilar þess ágrein­ingi sem rek­inn hefur verið fyrir ýmsum dóm­stólum um kröfur Kaup­­þings ehf. á hendur Deutsche Bank AG um greiðslur vegna þeirra láns­hæf­istengdu skulda­bréfa sem ákæra í mál­inu tekur til.

Með sam­komu­lag­inu skuld­batt bank­inn sig til þess að greiða Kaup­­þingi ehf. 212,5 millj­­ónir evra gegn því að fallið verði frá mála­­rekstr­in­­um.

Fram kom einnig að annað sam­komu­lag með áþekku efni hafi verið gert við félögin Chesterfield United Inc. og Partridge Mana­gement Group SA, en þau voru kaup­endur að þeim láns­hæf­istengdu skulda­bréfum sem um ræðir í ákæru og þágu beint eða óbeint lán til þess frá Kaup­­þingi banka hf.

Deutsche Bank AG mun sam­­kvæmt því sam­komu­lagi einnig hafa skuld­bundið sig til þess að greiða þeim félögum 212,5 millj­­ónir evra, en að Kaup­­þing ehf. muni við upp­­­gjör einnig fá um 90% af þeirri fjár­­hæð. Sam­­kvæmt þessu hefur Deutsche Bank AG skuld­bundið sig til þess að greiða 425 millj­­ónir evra vegna þeirra lána sem Kaup­­þing banki hf. veitti og ákæra tekur til og námu sam­tals 510 millj­­ónum evra.

Fjallað var um efn­is­at­riði þess­­arar for­m­hliðar máls­ins á vef Hæsta­rétt­­ar á sínum tíma. Þar sagði: „Það er skil­yrði þess að sak­­fellt verði fyrir umboðs­­svik sam­­kvæmt 249. gr. almennra hegn­ing­­ar­laga að ákærður maður hafi haft til­­­tekna aðstöðu til þess að skuld­binda annan mann eða lög­­að­ila, að hann hafi mis­­notað þessa aðstöðu sína og með því valdið þeim, sem hann skuld­batt, veru­­legri fjár­­tjóns­hætt­u. Þar sem ákæra í mál­inu er reist á þeim grund­velli að lánin sem Kaup­­þing banki hf. veitti eign­­ar­halds­­­fé­lögum þeim sem í ákæru grein­ir, sam­tals að fjár­­hæð 510.000.000 evr­­­ur, hafi ekki greiðst til baka og séu Kaup­­þingi banka hf. glötuð, en nú hefur verið lagt fram sam­komu­lag sem felur í sér að Deutsche Bank AG hefur skuld­bundið sig til að greiða 425.000.000 evrur af þeirri fjár­­hæð hefur Hæst­i­­réttur tekið ákvörðun um að nauð­­syn­­legt verði að saka­­málið gegn ákærðu verði í fyrstu umferð að minnsta kosti flutt um tvö atriði, sem lúta að formi þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár