Opna vefsvæði þar sem hægt er að tilkynna um lögbrot á fjármálamarkaði

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur opnað vef­svæði þar sem starfs­menn banka og ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja geta til­kynnt um mögu­leg lög­brot sem þeir verða varir við í starfi sínu.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur opnað vef­svæði þar sem hægt er að til­kynna stofn­un­inni um brot, mögu­leg brot eða til­raunar til brota á fjár­mála­mark­aði. Þeir sem starfa eða hafa starfað hjá eða fyrir eft­ir­lits­skylda aðila, t.d. stjórn­ar­menn, starfs­menn, end­ur­skoð­endur og ráð­gjafar, og hafa vit­neskju um brot, mögu­leg brot og til­raunir til brota á lögum og stjórn­valds­fyr­ir­mælum eru hvattir til að senda Fjár­mála­eft­ir­lit­inu til­kynn­ingu. Æskilegt þykir að til­kynn­ing inni­haldi heiti þess fyr­ir­tækis sem hið meinta brot átti sér stað í, nöfn stjórn­ar­manna þess, starfs­manna og ann­arra sem eiga hlut að máli. Þá eiga gögn sem styðja við að brot hafi verið framin að fylgja með, séu þau til staðar.

Þeir sem til­kynna um meint brot munu njóta nafn­leyndar en að það gæti haft áhrif á trú­verð­ug­leika til­kynn­ingar og eft­ir­fylgni hennar ef ekki verður unnt að fá frek­ari upp­lýs­ingar og skýr­ingar frá þeim sem til­kynnti. Þetta kemur fram í frétt á vef eft­ir­lits­ins.

Þar segir enn fremur að allar til­kynn­ingar sem ber­ist Fjár­mála­eft­ir­lit­inu verði metnar og skoð­aðar með til­liti til þess hvort að til­efni sé til að fylgja þeim eftir með frek­ari athugun. „Ákvörðun um hvort til­kynn­ingar leiði til frek­ari athug­unar er ávallt í hendi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þar sem Fjár­mála­eft­ir­litið er bundið ríkri þagn­ar­skyldu um sam­skipti sín við eft­ir­lits­skylda aðila eiga þeir sem til­kynna ekki rétt á upp­lýs­ingum um hvort stofn­unin hafi eða muni taka til­kynn­ing­una til frek­ari athug­unar.“

Samkvæmt gild­andi lögum eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki að hafa ferla til að taka við og fylgja eftir til­kynn­ingum starfs­manna þeirra um brot, mögu­leg brot og til­raunir til brota á lögum og stjórn­valds­fyr­ir­mælum sem gilda um starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins.

Starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja geta því valið milli þess að senda til­kynn­ingu beint til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eða til­kynnt um málið innan þess fjár­mála­fyr­ir­tækis sem þeir starfa hjá. Það fyr­ir­tæki á síðan að senda til­kynnt mál áfram til frek­ari rann­sóknar til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins ef til­efni er til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár