Namibísk stjórnvöld vilja fá þrjá Samherjamenn framselda

Íslensk lög heim­ila ekki að íslenskir rík­is­borg­arar séu fram­seldir. Því hefur vara­rík­is­sak­sókn­ari hafnað beiðni namibískra stjórn­valda um að þrír núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja verði fram­seldir til lands­ins.

Hluti þeirra sem eru ákærðir í málinu.
Hluti þeirra sem eru ákærðir í mál­inu. Mynd: The Namibian

Namibísk stjórn­völd hafa sett í gang form­legt ferli til að reyna að fá þrjá núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja fram­selda til lands­ins vegna mála­ferla á hendur þeim. Kröfunni hefur verið hafnað þar sem engin heim­ild er í lögum til að fram­selja íslenska rík­is­borg­ara til ann­arra landa. Frá þessu er greint á vef The Namibian.

Helgi Magnús Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ari stað­festir við RÚV í dag að beiðni hafi borist frá namibískum stjórn­völdum en að ekki sé heim­ild í lögum til að verða við henni.

Um er að ræða þá Aðal­stein Helgason, Egil Helga Árnason og Ingvar Júl­í­us­son. Ingvar er fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kýp­ur, en þeir Egill Helgi og Aðal­steinn voru fram­kvæmda­stjórar á vegum Sam­herja í Namib­íu. Kjarninn greindi frá því í febr­úar að sak­sókn­ari í Namibíu hefði til­kynnt að hann vildi leggja fram ákæru á hendur þeim og fimm félögum á vegum Samherja. Ekki er hægt að ákæra menn­ina nema að þeir mæti fyrir dóm­ara og það hafa þeir ekki gert sjálf­vilj­ugir.

[adspot]Ákæran er alls í fjórtán lið­um, en félögin sem tengj­ast Sam­herja og stjórn­endur þeirra eru meðal ann­ars sak­aðir um fjár­svik, pen­inga­þvætti og mútu­brot.

Tveir fyrrverandi ráðherrar í haldi

Allir þrír eru þeir í hópi þeirra sex ein­stak­linga sem greint hefur verið frá að hafi rétt­ar­stöðu sak­born­inga í rann­sókn emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara hér á landi í Sam­herj­a­mál­inu svo­kall­aða.

Auk Íslend­ing­anna þriggja og fimm félaga með tengsl við Sam­herja sem ekki hefur tek­ist að ákæra bein­ist ákæra namibískra yfir­valda að sak­born­ingum sem flestir verið hafa í varð­haldi frá því skömmu eftir að Sam­herj­a­skjölin komu upp á yfir­borðið í lok árs 2019.

Þeirra á meðal eru tveir fyrr­ver­andi ráð­herr­ar, Bern­hardt Esau fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra.

Kallar málareksturinn aðför

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og einn þeirra sem er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á mál­efnum Samherja, tjáði sig um málið við sjáv­ar­út­vegsvef mbl.is í gær.

Þar sagði hann að Sam­herji hef­ði ætíð byggt á því að þegar fé­lög tengd Sam­herja og starfs­menn þeirra myndu fá tæki­færi til að greina frá sinni hlið mála myndi mála­rekst­ur­inn í Namib­íu taka á sig aðra mynd. Hann kall­aði mála­rekst­ur­inn aðför að ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum tengdum Samherja sem þau hefði þurft að sæta á op­in­ber­um vett­vangi án þess að njóta við­eig­andi máls­með­ferðar.

Þor­steinn fjall­aði ekki um það að þeim starfs­mönnum sem undir eru í mál­inu stendur öllum til boða að mæta fyrir dóm­stóla til að gera grein fyrir máli sínu. Namibísk stjórn­völd hafa bein­línis leitað aðstoðar íslenskra stjórn­valda við að fá þá til að gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár