Enn á huldu hvaðan gögn um dómara við Hæstarétt komu

Íslands­banki og Fjár­mála­eft­ir­litið hafa bæði kært leka á gögnum um við­skipti dóm­ara við Hæsta­rétt við Glitni til hér­aðs­sak­sókn­ara. Þar stendur rann­sókn yfir. Gögnin voru á sínum tíma boðin völdum aðilum til sölu.

Markús Sigurbjörnsson hæstaréttardómari
Markús Sig­ur­björns­son hæsta­rétt­ar­dóm­ari Mynd: Birgir Þór Harðarson

Yfirvöld vita ekki hvaðan gögn um hluta­bréfa­eign dóm­ara við Hæsta­rétt, sem greint var frá í fjöl­miðlum í des­em­ber 2016, komu. Málið er nú til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara á grund­velli kæru frá bæði Íslands­banka og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Í fréttum frétta­stofu 365 á sínum tíma var greint frá því að gögnin væru frá slita­stjórn Glitnis. Kjarninn greindi frá því 6. des­em­ber að Steinunn Guð­bjarts­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður slita­stjórnar Glitnis, segði það af og frá að gögnin hefðu komið frá henni. Þá hafa gögn um fjár­mál hæsta­rétt­ar­dóm­ar­anna aldrei verið hluti af þeim málum sem rann­sökuð hafa verið af emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna gjörn­inga sem áttu sér stað innan Glitnis. Því eru gögnin ekki komin þaðan heldur né eru þau hluti af máls­gögnum sem lögð hafa verið fram í saka­málum sem höfðuð hafa verið vegna þeirra rann­sókna. Kjarninn hefur áður greint frá því að gögnin virð­ist hafa verið lengi í umferð og hafi m.a. verið boðin tveimur við­mæl­endum Kjarnans til sölu sum­arið 2016. Þeir við­mæl­endur hafa ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem buðu gögnin til sölu.

RÚV greindi frá því á föstu­dag að innri end­ur­skoðun Íslands­banka, sem var reistur á grunni Glitnis eftir að sá banki fór á hlið­ina, hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekk­ert benti til þess að umrædd gögn hefðu komið frá Íslands­banka eða starfs­mönnum hans. Bankinn kærði því gagna­lek­ann til hér­aðs­sak­sókn­ara um miðjan des­em­ber.

Fjár­mála­eft­ir­litið tók málið einnig til rann­sóknar vegna þess að grunur sé um að í lek­anum felist brot á lögum um banka­leynd. Eft­ir­litið kærði málið til hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir um mán­uði síðan og nú stendur yfir rann­sókn á því þar.

Fimm hæstaréttardómarar áttu í Glitni

Þann 5. des­em­ber var greint frá því í fréttum Stöðvar 2 og síðan Kast­ljósi að Markús Sig­ur­björns­son, þá for­seti Hæsta­réttar, hefði átt hluta­bréf í Glitni fyrir hrun og síðar fjár­fest um 60 millj­ónum króna í verð­bréfa­sjóði í rekstri Glitn­is. Í Kast­ljósi var enn fremur greint frá því að Ólafur Börkur Þor­­valds­­son, sem gegnt hefur emb­ætti hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ara frá árinu 2003, hafi einnig átt hluta­bréf í Glitni um tíma á árinu 2007. Hann seldi bréf sín í lok þess árs og fjár­­­festi í verð­bréfa­­sjóði innan Glitn­­is. Í Frétta­blað­inu dag­inn eftir var svo sagt frá því að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir Eiríkur Tóm­as­son, Ing­veldur Ein­ars­dóttir og Árni Kol­beins­son, sem nú er hættur störf­um, hafi einnig öll átt hluta­bréf í Glitni á árunum 2007 og 2008. Allir dóm­ar­arnir fimm hafa dæmt í málum sem tengj­ast Glitni, bæði fyrir og eftir hrun. Þar á meðal eru saka­­mál gegn starfs­­mönnum eigna­­stýr­ingar Glitn­­is. Dóm­­ar­­arnir lýstu ekki yfir van­hæfi í neinu þeirra mála.

Gögnin sem birt voru í umræddum fréttum sýndu sam­skipti Mark­úsar við eigna­stýr­ingu Glitn­is. Á meðal þeirra voru tölvu­póstar og skjöl sem hann und­ir­rit­aði til að veita heim­ild til fjár­fest­ing­ar. Gögnin eru bundin banka­leynd og alls ekki aðgengi­leg mörg­um. Starfs­menn slita­stjórnar Glitnis eftir hrun hafa þó mögu­lega getað flett þeim upp í kerfum bank­ans auk þess sem starfs­menn eigna­stýr­ingar Glitnis fyrir hrun gátu nálg­ast þau.

Opin­ber­an­irnar vöktu mikla athygli og sköp­uðu mikla umræðu um hæfi hæsta­rétt­ar­dóm­ara til að dæma í málum sem tengd­ust þeim bönkum sem þeir hefðu átt hluta­bréf í.

Markús sendi frá sér yfir­­­lýs­ingu dag­inn eft­ir umfjöll­un­ina þar sem hann sagð­ist hafa til­­­­kynnt nefnd um dóm­­­­ara­­­­störf um sölu á hluta­bréfum í sinni eigu þegar við­­­­skiptin áttu sér stað, og hann hafi fengið leyfi nefnd­­­­ar­innar þegar honum áskotn­að­ist þau. Hann hafi hins vegar ekki þurft að til­­­­kynna um hvernig hann ráð­staf­aði pen­ing­unum eftir söl­una. Skúli Magn­ús­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, sagði sagði saman dag að ljóst væri að upp­lýs­ingum um hluta­bréfa­eign dóm­ara hafi verið komið á fram­færi við fjöl­miðla í þeim til­gangi að hafa áhrif á störf dóm­stóla og hugs­an­lega auka mögu­leika á því að mál verði end­ur­upp­tek­in. Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, sagði blasa við að Markús hefði verið van­hæfur til að dæma í hrun­málum.

Þann 9. des­em­ber greindi DV síðan frá því að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir Viðar Már Matth­í­as­son og Eiríkur Tómasson hefðu átt hlut í Lands­bank­anum við fall bank­ans. Þeir hefðu báðir verið í fimm manna dómi Hæsta­réttar sem dæmdi ýmsa fyrr­ver­andi stjórn­endur Lands­banka Íslands seka um mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik í Hæsta­rétti í októ­ber 2015 og í febr­úar 2016.

Umfjöll­unin leiddi til þess að dóm­arar við Hæsta­rétt munu héðan i frá birta hags­muna­skrán­ingu sína opin­ber­lega, og hefur það þegar verið gert á heima­síðu rétt­ar­ins.

Sakborningar kæra til MDE eða krefjast endurupptöku

Þann 9. jan­úar síð­ast­lið­inn var greint frá því að sak­born­ingar í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða hefðu sent bréf um fjár­málaum­svif dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands á árunum fyrir fall íslenska banka­kerf­is­ins árið 2008 til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu (MDE). Upp­lýs­ing­arnar eru hluti af máls­skjölum sem Ólafur Ólafs­son og þrír fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings banka, þeir Sig­urður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son og Magnús Guð­munds­son, sendu MDE vegna umfjöll­unar dóm­stóls­ins um Al Thani málið svo­kall­aða. Telja þeir að brotið hafi verið á rétt­indum þeirra, bæði við rann­sókn máls­ins og með­ferð þess fyrir dóm­stól­um. Um er að ræða dóm­ara sem dæmdu í Al Thani-mál­inu, meðal ann­ars Markús Sig­ur­björns­son. Áður höfðu menn­irnir reynt að fá málið end­ur­upp­tekið hjá end­ur­upp­töku­nefnd, án árang­urs.

Í síð­ustu viku sagði svo Frétta­blaðið frá því að Sigurjón Þ. Árnason, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, hefði kraf­ist þess að tvö mál á hendur honum yrðu tekin aftur til með­ferðar fyrir dómi. Beiðni um þá end­ur­upp­töku hafi verið send inn í sept­em­ber 2016. Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður Sig­ur­jóns, sagði í sam­tali við blaðið að byggt væri „fyrst og fremst á þeim fréttum sem hafa komið um hluta­bréfa­eign dóm­ara í blöð­unum. Svo hefur verið að koma í ljós að þeir hafa verið að stað­festa að þeir hafi tapað fjár­munum í banka­hrun­inu, sumir dóm­arar.“ Þær fréttir sem Sigurður vísar í voru sagðar í des­em­ber, þremur mán­uðum eftir að end­ur­upptöðu­beiðni Sig­ur­jóns var send inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár