Formaður slitastjórnar Glitnis hafði aldrei séð Markúsar-gögnin

Markús Sigurbjörnsson hæstaréttardómari við þingsetningu í dag.
Markús Sig­ur­björns­son hæsta­rétt­ar­dóm­ari við þing­setn­ingu í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Steinunn Guð­bjarts­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður slita­stjórnar Glitnis, segir það af og frá að gögn sem sýndu við­skipti Markúsar Sig­ur­björns­sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ara með hluta­bréf í Glitni hafi komið frá slita­stjórn­inni. „Þetta kemur ekki frá okkur. Ég hef aldrei séð þessi gögn.“ Í frétt á Vísi í gær sagði að gögnin væru frá slita­stjórn Glitnis og sú full­yrð­ing var end­ur­tekin í frétt um málið í frétta­tíma Stöðvar 2 um kvöldið.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans voru gögn um við­skipti Markúsar aldrei hluti af þeim málum sem rann­sökuð hafa verið af emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, áður sér­staks sak­sókn­ara, vegna gjörn­inga sem áttu sér stað innan Glitnis. Því eru gögnin ekki komin þaðan heldur né eru þau hluti af máls­gögnun sem lögð hafa verið fram í saka­málum sem höfðuð hafa verið vegna þeirra rann­sókna.

Greint var frá því í gær í fréttum Stöðvar 2 og í Kast­ljósi að Markús hefði átt hluta­bréf í Glitni fyrir hrun og síðar fjár­fest um 60 millj­ónum króna í verð­bréfa­sjóði í rekstri Glitnis. Í Kast­ljósi var enn fremur greint frá því að Ólafur Börkur Þor­valds­son, sem gegnt hefur emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara frá árinu 2003, hafi einnig átt hluta­bréf í Glitni um tíma á árinu 2007. Hann seldi bréf sín í lok þess árs og fjár­festi í verð­bréfa­sjóði innan Glitn­is. Í Frétta­blað­inu í morgun var svo sagt frá því að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir Eiríkur Tómasson, Ing­veldur Ein­ars­dóttir og Árni Kol­beins­son, sem nú er hættur störfum, hafi einnig öll átt hluta­bréf í Glitni á árunum 2007 og 2008. Allir dóm­ar­arnir fimm hafa dæmt í málum sem tengj­ast Glitni, bæði fyrir og eftir hrun. Þar á meðal eru saka­mál gegn starfs­mönnum eigna­stýr­ingar Glitn­is. Dóm­ar­arnir lýstu ekki yfir van­hæfi í neinu þeirra mála.

Gögnin sem birt voru í gær sýndu sam­skipti Markúsar við eigna­stýr­ingu Glitnis. Á meðal þeirra voru tölvu­póstar og skjöl sem hann und­ir­rit­aði til að veita heim­ild til fjár­fest­ingar. Gögnin eru bundin banka­leynd og alls ekki aðgengi­leg mörgum. Starfs­menn slita­stjórnar Glitnis eftir hrun hafa þó mögu­lega getað flett þeim upp í kerfum bank­ans auk þess sem starfs­menn eigna­stýr­ingar Glitnis fyrir hrun gátu nálg­ast þau.

Markús sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag þar sem hann seg­ist hafa til­kynnt nefnd um dóm­ara­störf um sölu á hluta­bréfum í sinni eigu þegar við­skiptin áttu sér stað, og hann hafi fengið leyfi nefnd­ar­innar þegar honum áskotn­uð­ust þau. Hann hafi hins vegar ekki þurft að til­kynna um hvernig hann ráð­staf­aði pen­ing­unum eftir söl­una.

Skúli Magn­ús­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, sagði við RÚV í morgun að ljóst sé að upp­lýs­ingum um hluta­bréfa­eign dóm­ara hafi verið komið á fram­færi við fjöl­miðla í þeim til­gangi að hafa áhrif á störf dóm­stóla og hugs­an­lega auka mögu­leika á því að mál verði end­ur­upp­tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár