Fimm hæstaréttardómarar áttu hlut í Glitni

Markús Sigurbjörnsson hæstaréttardómari.
Markús Sig­ur­björns­son hæsta­rétt­ar­dóm­ari. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir Eiríkur Tómasson, Ing­veldur Ein­ars­dóttir, Árni Kol­beins­son (sem er hættur) og Markús Sig­ur­björns­son áttu öll hlut í Glitni á árunum 2007 og 2008. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. Þá greindi Kastljós frá því í gær að Ólafur Börkur Þor­valds­son, sem gegnt hefur emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara frá árinu 2003, hafi einnig átt hluta­bréf í Glitni um tíma á árinu 2007. Hann seldi bréf sín í lok þess árs og fjár­festi í pen­inga­mark­aðs­sjóði innan Glitnis. Markús seldi sín bréf einnig í byrjun árs 2008 og kom ávinn­ingnum auk við­bót­arfé, alls um 60 millj­ónum króna, fyrir í eigna­stýr­ingu hjá Glitni. Auk þess áttu Markús og Ing­veldur hlut í pen­inga­mark­aðs­sjóðum Glitnis þegar bank­arnir féllu. Hluta­bréf dóm­ar­anna sem enn áttu slík við hrunið urðu öll verð­laus þegar Glitnir féll haustið 2008.

Allir dóm­ar­arnir hafa samt sem áður dæmt í málum sem tengj­ast Glitni, bæði fyrir og eftir hrun. Þar á meðal eru saka­mál gegn starfs­mönnum eigna­stýr­ingar Glitnis. Dóm­ar­arnir lýstu ekki yfir van­hæfi í neinu þeirra mála.

Fyrst var greint frá hluta­bréfa­eign Markúsar og Ólafs Barkar í fréttum Stöðvar 2 og síðan í Kast­ljósi í gær. Dómurum er skylt að upp­lýsa nefnd um dóm­ara­störf um hluta­bréfa­eign sína. Í Kast­ljósi sagði Hjördís Hákon­ar­dóttir, for­maður þeirrar nefndar, að það yrði á engan hátt ráðið að Markús hefði til­kynnt nefnd­inni um hluta­bréfa­eign sína né sóst eftir heim­ild til við­skipta sinna eins og lög kveða á um. Markús sagði sjálfur í svari til Kast­ljóss að hann hefði til­kynnt og óskað heim­ildar fyrir eign­ar­hlut sínum árið 2002 og að hann hafi fengið hluta­bréfin í arf. Það sjá­ist á bréfum sem hann hafi sent þáver­andi for­manni nefnd­ar­innar, Gunn­laugi Claessen. Auk þess hafi hann til­kynnt þáver­andi for­manni nefnd­ar­innar um það þegar bréfin í Glitni voru seld 2007. Þau gögn finn­ast ekki hjá nefnd­inni, en for­maður nefnd­ar­innar hverju sinni geymir öll skjöl hennar.

Kastljós rifj­aði upp að vef­mið­ill­inn Eyjan hafi árið 2010 sent spurn­ingar til allra þáver­andi dóm­ara við Hæsta­rétt þar sem óskað var upp­lýs­inga um hluta­bréfa­eign þeirra fyrir hrun og mögu­leg áhrif á hæfi til að dæma í hrun­mál­unum. Ólafur Börkur var einn þriggja sem svör­uðu. Í end­ur­sögn Eyjunnar var svar hans eft­ir­far­andi: „Ómögu­legt sé að vita hverjir verði í mála­ferlum vegna banka­hruns­ins og því erfitt að meta nokkuð um hæfi. Hann seg­ist þó auð­vitað víkja sæti ef lög leyfa. Ólafur segir fjár­málaum­svif fjöl­skyldu sinnar nán­ast engin. Honum hafi tæmst lít­ill arfur á síð­ustu árum og þar hafi verið hluta­bréf sem hann hafi selt í kjöl­farið. Var það fjár­magn einkum notað til við­halds heim­ilis Ólafs og fjöl­skyldu. Þá hafi tvö barna hans átt litla eign­ar­hluti í Kaup­þingi upp á nokkur þús­und krónur sem hafi tap­ast.“ Í svar­inu kemur ekki fram að Ólafur Börkur hafi átt hluti í Glitni.

Markús sagð­ist í svari til Kast­ljóss ekki hafa verið van­hæfur til þess að dæma í málum sem snúa að hruni fjár­mála­kerf­is­ins þrátt fyrir að hafa verið eig­andi hluta­bréfa Glitnis og fleiri íslenskra fyr­ir­tækja fyrir hrun­ið. Skúli Magn­ús­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, tók undir það í tíu­fréttum RÚV í gær þar sem hann sagði að ekk­ert hafi komið fram í umfjöllun Kast­ljóss um hluta­bréfa­við­skipti for­seta Hæsta­réttar sem bendi til þess að hann hafi verið van­hæfur í dóms­málum sem tengj­ast Glitni. Hann setti einnig spurn­inga­merki við að upp­lýs­ingar um hluta­bréfa­eign dóm­ara verði aðgengi­legar almenn­ingi og benti á að þeir þyrftu að njóta ein­hverrar frið­helgi líkt og aðrir ein­stak­lingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár