Jón Steinar segir blasa við að Markús hafi verið vanhæfur í hrunmálum

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, segir það blasa við að Markús Sig­ur­björns­son, for­seti Hæsta­réttar, hafi verið van­hæfur til að dæma í málum þeirra manna sem stýrðu íslensku banka­kerfi fyrir hrun. Ástæðan sé sú að hann hafi átt hlut í Glitni og hafi tapað á falli bank­ans. Jón Steinar segir það ekki vera trú­verð­ugt að maður sem sé hlut­hafi í banka sem sé til umfjöll­unar í máli dæmi í slíku máli. Þetta kom fram í Kast­ljósi í kvöld.

Jón Steinar hefur lengi gagn­rýnt Hæsta­rétt, og sér­stak­lega Markús. Hann skrif­aði m.a. bók þar sem hann sagði til að mynda frá því meiri­hluti Hæsta­réttar hafi beitt sér gegn því að Jón Steinar kæmi inn í rétt­inn, en hann var skip­aður dóm­ari í Hæsta­rétt í lok sept­em­ber 2004. Hann sagði í Kast­ljósi í kvöld að það væri alveg rétt að hann hefði gagn­rýnt íslenska dóms­kerfið, en að hann ýtti þeim skoð­unum sínum til hliðar þegar hann kemst að þeirri ástæðu að aug­ljóst sé að Markús sé van­hæfur.

Skúli Magn­ús­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, hefur sagt að ekk­ert bendi til van­hæfis Markúsar. Sigurður Tómas Magn­ús­son, pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, sagði í fréttum RÚV í gær að hann teldi Markús ekki vera van­hæfan.

Stöð 2 og Kastljós fjöll­uðu um hluta­fjár­eign og mögu­legt van­hæfi dóm­ara í Hæsta­rétti á mánu­dag. Markús Sig­ur­björns­son sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar­innar í gær, þriðju­dag. Í yfir­lýs­ing­unni kom fram að hann hafi fengið arf eftir móður sína árið 2002, sem hafi meðal ann­ars falist í hlut­deild í hluta­bréfum í Eim­skip, Flug­leiðum og Íslands­banka. Hann hafi fengið leyfi nefndar um dóm­ara­störf til að eign­ast hluta­bréf­in. „Ég til­kynnti síðan nefnd­inni með bréfi 11. des­em­ber 2003 að ég hefði selt hluta­bréfin í Hf. Eim­skipa­fé­lagi Íslands og Flug­leiðum hf. og með bréfi 28. febr­úar 2007 að ég hefði selt hluta­bréfin í Glitni banka hf.“

Eftir sölu hluta­bréf­anna hafi hann sett and­virði þeirra að stærstum hluta í eigna­stýr­ingu hjá Glitni, „þar sem því var á grund­velli samn­ings um þá þjón­ustu meðal ann­ars ráð­stafað til að kaupa hlut­deild­ar­skír­teini í ýmsum verð­bréfa­sjóð­um, sem bank­inn bauð almenn­ingi. Hvorki átti ég sam­kvæmt lögum nr. 15/1998 né reglum nr. 463/2000 að til­kynna nefnd um dóm­ara­störf um kaup á slíkum hlut­deild­ar­skír­tein­um, enda varð ég ekki með þeim eig­andi að hlut í félag­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár