Jón Steinar: Vill að innanríkisráðherra höfði mál á hendur Markúsi

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum dóm­ari við Hæsta­rétt, vill að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, sem fer með dóms­mál í rík­is­stjórn­inni, höfði mál á hendur Markúsi Sig­ur­björns­syni, for­seta Hæsta­réttar. Þetta kom fram í Viku­lok­unum á Rás eitt fyrr í dag.

Jón Steinar gaf út bók á síð­asta ári sem heitir Í krafti sann­fær­ingar. Þar sagði hann meðal ann­ars frá því að hann telji að þáver­andi meiri­hluti Hæsta­réttar hafi brotið lög með því að beita sér gegn því að Jón Steinar kæmi inn í rétt­inn, en hann var skip­aður dóm­ari í Hæsta­rétt í lok sept­em­ber 2004.

Jón Steinar sagði í Viku­lok­unum að hann geti sannað þessar ávirð­ingar en að hann muni ekki leggja fram ítar­legri sann­anir nema að til­efni verði til. „Það sem kemur mér kannski meira á óvart er að fjöl­miðl­arnir hafi ekki staðið sig betur. Vegna þess að mér finnst þetta vera tíð­indi[...]Þetta eru alla vega frá­sagnir af atburðum í opin­beru lífi um mis­notkun á valdi þar sem síst skyldi[...]Það sem ég lýsi í bók­inni eru auð­vitað frek­legt brot gegn stars­skyldum hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Mér fannst það alveg skelfi­legt fyrir mig og ég vona að öllum finn­ist það.“

Segir Markús ekkert vita hvað hann eigi að segja

Markús Sig­ur­björns­son, for­seti Hæsta­réttar, er sá eini sem enn er í rétt­inum sem kom að hinum meintu lög­brotum sem Jón Steinar greinir frá í bók sinni. Fjöl­miðlar hafa óskað eftir því að Markús svari ávirð­ingum Jóns Steinar en það hefur hann ekki viljað gera. Dæmi um slika við­leitni er hægt að sjá

hér

. Þá var frétt um málið í

Morg­un­blað­inu

í morgun þar sem bæði Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra og Markús Sig­ur­björns­son neit­uðu að tjá sig um málið.

Jón Steinar sagði það ekki koma honum á óvart að Markús vilji ekki tjá sig. „Ástæðan fyrir því er ein­föld. Hann veit ekk­ert hvað hann á að segja um þetta. Þetta eru réttar lýs­ingar á átburð­ar­rás fyrir rúmum tíu árum síðan. Og þá er auð­vitað best ef að menn vita ekki hverju þeir eiga að svara að segj­ast engu vilja svara. Það er allt satt sem þarna er sagt“.

Jón Steinar telur rétt­ast að höfða mál á hendur Markúsi til emb­ætt­is­missis og að það ætti að vera inn­an­rík­is­ráð­herra sem höfði það mál. „Auðvitað þarf að fá ein­hver svör og kannski ætti inn­an­rík­is­ráðu­neytið bara að inna Hæsta­rétt eftir svörum við þessum ásök­unum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár