Sakborningar í Al Thani upplýsa MDE um fjármálaumsvif dómara

Ólafur Ólafsson var einn þeirra sem hlaut dóm í Al Thani-málinu.
Ólafur Ólafsson var einn þeirra sem hlaut dóm í Al Thani-mál­inu. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Sak­born­ingar í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða sendu á föstu­dag upp­lýs­ingar um fjár­málaum­svif dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands á árunum fyrir fall íslenska banka­kerf­is­ins árið 2008 til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu (MDE). Upp­lýs­ing­arnar eru hluti af máls­skjölum sem Ólafur Ólafsson og þrír fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings banka, þeir Sigurður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son og Magnús Guð­munds­son, sendu MDE vegna umfjöll­unar dóm­stóls­ins um Al Thani málið svo­kall­aða. Telja þeir að brotið hafi verið á rétt­indum þeirra, bæði við rann­sókn máls­ins og með­ferð þess fyrir dóm­stólum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM hefur sent út fyrir þeirra hönd.

Þann 12. febr­úar 2015 féll dómur í Al Than­i-­mál­inu í Hæsta­rétti. Þar voru Sig­urður Ein­ars­son, ­fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­and­i ­for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafs­son, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þing­i ­fyrir fall hans, sak­felldir fyrir umboðs­svik og mark­aðs­mis­notk­un. Hreiðar Már ­fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður fjögur ár, Ólafur og ­Magn­ús ­fjögur og hálft ár.

Menn­irnir fjórir kærðu nið­ur­stöð­una til MDE m.a. vegna meints van­hæfis þeirra dóm­ara sem dæmdu í mál­inu. Sú kæra var send í byrjun ágúst 2015.

Í bréf­inu sem sent var á föstu­dag er m.a. bent á nýjar upp­lýs­ingar um hags­muna­tengsl dóm­ara sem komu fram í umfjöllun íslenskra fjöl­miðla í des­em­ber síð­ast­liðnum. Í kærunni segir að „Hæsti­réttur Íslands hafi sýnt dóm­greind­ar­leysi við að meta hugs­an­lega hags­muna­á­rekstra í dóms­málum á hendur fyrr­ver­andi stjórn­endum þriggja stærstu við­skipta­bank­anna; Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans. Í öllum málum hefði verið tek­ist á um meinta mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik sak­born­inga og þau því tengd inn­byrðis.“

Fréttaflutningur í byrjun desember um dómara

Greint var frá því í frétt­um Stöðvar 2 og í Kast­­ljósi 5. des­em­ber að Markús Sig­ur­björns­son, for­seti Hæsta­rétt­ar, hefði átt hluta­bréf í Glitni fyrir hrun og síðar fjár­­­fest um 60 millj­­ónum króna í verð­bréfa­­sjóði í rekstri Glitn­­is. Í Kast­­ljósi var enn fremur greint frá því að Ólafur Börkur Þor­­­valds­­­son, sem gegnt hefur emb­ætti hæsta­rétt­­­ar­­­dóm­­­ara frá árinu 2003, hafi einnig átt hluta­bréf í Glitni um tíma á árinu 2007. Hann seldi bréf sín í lok þess árs og fjár­­­­­festi í verð­bréfa­­­sjóði innan Glitn­­­is. Í Frétta­­blað­inu í morgun var svo sagt frá því að hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ar­­arnir Eiríkur Tóm­a­s­­son, Ing­veldur Ein­­ar­s­dóttir og Árni Kol­beins­­son, sem nú er hættur störf­um, hafi einnig öll átt hluta­bréf í Glitni á árunum 2007 og 2008. Allir dóm­­ar­­arnir fimm hafa dæmt í málum sem tengj­­ast Glitni, bæði fyrir og eftir hrun. Þar á meðal eru saka­­­mál gegn starfs­­­mönnum eigna­­­stýr­ingar Glitn­­­is. Dóm­­­ar­­­arnir lýstu ekki yfir van­hæfi í neinu þeirra mála.

Gögnin sem birt voru sýndu sam­­skipti Mark­úsar við eigna­­stýr­ingu Glitn­­is. Á meðal þeirra voru tölvu­­póstar og skjöl sem hann und­ir­­rit­aði til að veita heim­ild til fjár­­­fest­ing­­ar. Gögnin eru bundin banka­­leynd og alls ekki aðgeng­i­­leg mörg­­um. Starfs­­menn slita­­stjórnar Glitnis eftir hrun hafa þó mög­u­­lega getað flett þeim upp í kerfum bank­ans auk þess sem starfs­­menn eigna­­stýr­ingar Glitnis fyrir hrun gátu nálg­­ast þau.

Markús sendi frá sér yfir­­lýs­ingu dag­inn eft­ir þar sem hann seg­ist hafa til­­­kynnt nefnd um dóm­­­ara­­­störf um sölu á hluta­bréfum í sinni eigu þegar við­­­skiptin áttu sér stað, og hann hafi fengið leyfi nefnd­­­ar­innar þegar honum áskotn­uð­ust þau. Hann hafi hins vegar ekki þurft að til­­­kynna um hvernig hann ráð­staf­aði pen­ing­unum eftir söl­una.

Skömmu síðar til­kynnti Hæsti­réttur að frá byrjun árs 2017 verði upp­­lýs­ingar um hags­muna­­tengsl hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ara aðgeng­i­­legar á heima­­síðu rétt­­ar­ins. Þær upp­lýs­ingar hafa nú verið birtar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár