Hæstiréttur birtir hagsmunatengsl dómara opinberlega

Hæsti­réttur hefur ákveðið að frá byrjun árs 2017 verði upp­lýs­ingar um hags­muna­tengsl hæsta­rétt­ar­dóm­ara aðgengi­legar á heima­síðu rétt­ar­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Hæsta­rétti.

Upp­lýs­ing­arnar verða um eft­ir­far­andi meg­in­at­riði:

  1. Auka­störf hvers og eins dóm­ara ásamt því hvort greiðsla komi fyrir þau og þá úr hendi hvers. 
  2. Fast­eignir í eigu dóm­ara sem ætl­aðar eru til ann­ars en eigin nota fyrir hann og fjöl­skyldu hans. 
  3. Eign­ar­hluta í hvers kyns félögum. 
  4. Allar skuldir dóm­ara sem ekki tengj­ast bein­línis öflun fast­eignar til eigin nota. 
  5. Aðild dóm­ara að félögum sem ekki starfa með fjár­hags­legu mark­miði.

Upp­lýs­ing­arnar munu mið­ast við stöð­una í árs­byrjun 2017 og verða fram­vegis upp­færðar um leið og til­efni er til, segir Hæsti­réttur. Ef aðilar að ein­stökum dóms­málum telja sig þurfa að fá til­greindar upp­lýs­ingar um eitt­hvert atriði varð­andi dóm­ara í málum þeirra geta þeir beint fyr­ir­spurn til rétt­ar­ins um það.

Upplýst var um það í síð­ustu viku að fimm hæsta­rétt­ar­dóm­arar hafi átt hluti í Glitni á árunum fyrir hrun. Allir dóm­ar­arnir hafa samt sem áður dæmt í málum sem tengj­ast Glitni, bæði fyrir og eftir hrun. Þar á meðal eru saka­mál gegn starfs­mönnum eigna­stýr­ingar Glitn­is. Dóm­ar­arnir lýstu ekki yfir van­hæfi í neinu þeirra mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár