Mannréttindadómstóll Evrópu sendir íslenskum dómstólum skýr skilaboð

Katrín Odds­dóttir mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur og Rúnar Björn Herrera Þor­kels­son, Formaður NPA mið­stöðv­ar­innar, skrifa um dóm sem nýlega var kveð­inn upp í Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu.

Þann 31. maí síð­ast­lið­inn var kveð­inn upp dómur í Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu í máli Arnars Helga Lár­us­sonar gegn Íslandi. Dómurinn er afar áhuga­verður, en miðað við frétta­flutn­ing fjöl­miðla í kjöl­far dóms­ins mætti ætla að þar hefði ein­stak­ling­ur­inn sem málið höfð­aði beðið mik­inn ósigur. Málið sner­ist um skort á aðgengi að menn­ing­ar­stofnun í Reykja­nesbæ, en Arnar notar hjóla­stól og komst ekki inn í til­teknar opin­berar bygg­ingar, sem varð meðal ann­ars til þess að hann gat ekki mætt með börnum sínum á við­burði í félags­mið­stöð þeirra til jafns við ófatl­aða for­eldra. Á sama hátt verða því fötluð börn einnig fyrir mis­munum vegna slíks skorts á aðgengi.

Þegar betur er að gáð og dóm­ur­inn les­inn í heild, er um að ræða mik­il­vægan áfanga­sigur. Raunar hafa sumir sér­fræð­ingar lýst því yfir að í dómnum felist stór­sigur í rétt­inda­bar­áttu fatl­aðs fólks í Evrópu. Þó sveit­ar­fé­lagið og íslenska ríkið hafi sloppið við áfell­is­dóm var þó nán­ast öllum rök­semdum þeirra í mál­inu hafnað. Nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins er skýr um að aðgeng­is­málin séu í ólagi. Hins vegar veitir dóm­ur­inn Reykja­nesbæ og rík­inu frest til þess að upp­fylla kröfur um jafnt aðgengi. Nú þurfa því ráða­menn Reykja­nes­bæjar að bretta upp ermar til að fylgja þeim áætl­unum sem sveit­ar­fé­lagið seg­ist hafa varð­andi aðgeng­is­mál.

Dómurinn sendir skýr skilaboð til dómstóla og yfirvalda

Fyrir utan það að skera úr um að aðgeng­is­mál væru í ólagi eru þrjú mik­il­væg atriði í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sem vekja upp von varð­andi fram­farir í rétt­inda­bar­áttu fatl­aðs fólks:

Í fyrsta lagi er skýrt tekið fram af hálfu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins að íslenskir dóm­stólar hafi brugð­ist skyldu sinni til að vega og meta raun­veru­leg rétt­indi og hags­muni Arnars en þess í stað ein­blínt á sjálf­stjórn­ar­rétt sveit­ar­fé­lags­ins. Hér opin­ber­ast einn stærsti vand­inn í bar­áttu fatl­aðs fólks fyrir mann­rétt­indum á Íslandi und­an­farna ára­tugi, þar sem dóm­stólar hafa ítrekað for­gangs­raðað sjálfs­stjórn sveit­ar­fé­laga á kostnað lög­bundnum mann­rétt­indum fatl­aðs fólks. Við fögnum því að sam­kvæmt þess­ari nið­ur­stöðu þurfi íslenskir dóm­stólar að end­ur­skoða þá áherslu í dóma­fram­kvæmd sinni.

[adspot]Í öðru lagi er afar mik­il­vægt að í dómnum er vísað til Samnings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks, sem þýðir að sá samn­ingur er lagður til grund­vallar í málum gegn Íslandi fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum. Það sem meira er, þá vísar dóm­ur­inn til almennra athuga­semda eft­ir­lits­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um samn­ing­inn. Þetta eru stór­fréttir í mann­rétt­inda­bar­áttu þessa þjóð­fé­lags­hóps. Þessi stað­reynd felur í sér skýr skila­boð frá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum um að samn­ing­ur­inn skuli lagður til grund­vallar í málum sem varða mann­rétt­indi fatl­aðs fólks, ólíkt því sem sést hefur í með­förum dóm­stóla hér­lendis hingað til.

Í þriðja lagi er það sigur í rétt­inda­bar­áttu fatl­aðs fólks í Evrópu að skortur á aðgengi sé tal­inn falla undir þá grein Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans sem verndar frið­helgi einka­lífs og fjöl­skyldu. Einn af dóm­urum Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins tók skrefið til fulls og skil­aði sér­á­liti. Í því rök­studdi dóm­ar­inn að aðgerð­ar­leysi Reykja­nes­bæjar í aðgeng­is­málum væri svo gróft, að það varð­aði broti gegn Mann­rétt­inda­sátt­mál­anum og skyldi því Ísland dæmt fyrir mis­munun á grund­velli frið­helgi einka­lífs og fjöl­skyldu.

Sigur í ósigri

Arnar Helgi Lárusson á þakkir skyldar fyrir að fara með málið alla leið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu og tryggja þennan áfanga­sigur í rétt­inda­bar­áttu fatl­aðs fólks með þraut­seigju sinni fyrir dóm­stólum. Á stundum fel­ast stórir og mik­il­vægir sigrar í því sem virð­ist í fyrstu ósigur.

Katrín Odds­dóttir er mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur og Rúnar Björn Herrera Þor­kels­son er for­maður NPA mið­stöðv­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár