Stjórnarformaður Landsvirkjunar og tvö til sækjast eftir dómaraembætti við MDE

Þrjár umsóknir bár­ust frá íslenskum lög­fræð­ingum um stöðu dóm­ara við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Þing Evr­ópu­ráðs­ins tekur ákvörðun um skipan í emb­ættið. Stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­unar er á meðal umsækj­enda.

Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður Landvirkjunar og fyrrverandi formaður kjararáðs er einn þriggja sem sækjast eftir dómaraembættinu í Strassborg.
Jónas Þór Guð­munds­son stjórn­ar­for­maður Land­virkj­unar og fyrr­ver­andi for­maður kjara­ráðs er einn þriggja sem sækj­ast eftir dóm­ara­emb­ætt­inu í Strass­borg.

Þrjár umsóknir bár­ust um emb­ætti íslensks dóm­ara við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu en umsókn­ar­frestur rann út 14. jan­úar. Umsækj­endur um emb­ættið eru þau Jónas Þór Guð­munds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari og Stefán Geir Þórisson hæsta­rétt­ar­lög­maður, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Þing Evr­ópu­ráðs­ins tekur ákvörðun um það hvert þeirra verður fyrir val­inu sem íslenski dóm­ar­inn við rétt­inn, en Evr­ópu­ráðið fór þess á leit við íslensk stjórn­völd að þau myndu til­nefna þrjú dóm­ara­efni. Það virð­ist því ekki vera þörf á því að skipa sér­staka hæfn­is­nefnd hér á landi til þess að meta umsókn­irnar sem bár­ust um dóm­ara­emb­ættið í Strass­borg, þar sem umsókn­irnar sem bár­ust voru akkúrat þrjár.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu fjallar um mál sem til hans er vísað af ein­stak­lingum og samn­ings­að­ilum vegna meintra brota á ákvæðum mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu eða samn­ings­við­aukum við hann. Dóm­stóll­inn er skip­aður einum dóm­ara frá hverju samn­ings­ríkja.

Róbert Spanó hefur verið íslenski dóm­ar­inn við rétt­inn allt frá árinu 2013. Hann var kjör­inn for­seti MDE á vor­dögum 2020, en kjör­tíma­bili hans sem dóm­ara við MDE lýkur þann 31. októ­ber næst­kom­andi.

Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir er dóm­ari við Lands­rétt. Hún er einnig rann­sókna­pró­fessor við Háskóla Íslands og hefur verið pró­fessor við laga­deild skól­ans frá 2012, en var þar áður pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík frá 2006. Ef hún hreppir emb­ættið yrði hún fyrsta konan til þess að verða sett dóm­ari við MDE fyrir hönd Íslands.

Jónas Þór Guð­munds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður er núver­andi stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­unar og hefur verið allt frá árinu 2014. Hann er einnig fyrr­ver­andi for­maður kjara­ráðs og hefur verið full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þessum emb­ættum, en hann hefur gegnt marg­vís­legum trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn. Hann gegndi for­mennsku í stjórn Lög­manna­fé­lags Íslands um tíma.

Stefán Geir Þórisson hæsta­rétt­ar­lög­maður hefur reynslu af dóm­störfum, en hann er um þessar mundir vara­dóm­andi við end­ur­upp­töku­dóm. Áður var Stefán Geir skip­aður dóm­ari við Alþjóð­lega íþrótta­dóm­stól­inn (CAS) í borg­inni Lausanne í Sviss til fjög­urra ára frá 1. jan­úar 2017. Stefán hefur einnig sinnt trún­að­ar­störfum fyrir Knatt­spyrnu­sam­band Íslands um ára­bil og sat meðal ann­ars í stjórn KSÍ frá 2007-2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár