Tuttugu og þrír aðstoðarmenn ráðnir inn í Hæstarétt án auglýsingar frá 2006

Frá árinu 2006 hafa 23 ein­stak­lingar verið ráðnir í störf aðstoð­ar­manna dóm­ara við Hæsta­rétt, án aug­lýs­ingar í hvert ein­asta skipti. Allir aðstoð­ar­menn­irnir hlutu lög­fræði­menntun sína við Háskóla Íslands.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata fékk ítarleg svör um ráðningar aðstoðarmanna við Hæstarétt frá ráðuneyti dómsmála.
Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata fékk ítar­leg svör um ráðn­ingar aðstoð­ar­manna við Hæsta­rétt frá ráðu­neyti dóms­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Frá því árið 2006 hafa 23 lög­fræð­ingar, sem allir útskrif­uð­ust frá Háskóla Íslands, verið ráðnir til starfa sem aðstoð­ar­menn dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands. Það er starf sem sam­kvæmt lögum ber að aug­lýsa nema sér­stakar und­an­þágur gefi til­efni til ann­ars, en það hefur þó ekki verið gert í einu ein­asta til­viki.

Þetta kemur fram í svari Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jóns­sonar þing­manns Pírata, sem birt var á vef Alþingis í dag. Þar er einnig greint frá því að dóms­mála­ráðu­neytið hafi ritað dóm­stóla­sýsl­unni erindi og óskað eftir því að stofn­unin árétt­aði aug­lýs­inga­skyldu starfa aðstoð­ar­manna dóm­ara við for­stöðu­menn dóm­stóla lands­ins.

Í svar­inu sem Andrés Ingi fékk við fyr­ir­spurn sinni, sem er síður en svo sú fyrsta sem hann leggur fram og teng­ist ráðn­ingum í störf innan dóms­kerf­is­ins, er dregið fram hversu lengi hver og einn ein­stak­lingur sem ráð­inn var sem aðstoð­ar­maður dóm­ara við Hæsta­rétt sinnti því starfi.

Starfandi árum saman

Heimild er fyrir því að ráða inn í þessa stöðu án aug­lýs­ingar ef um tíma­bundna ráðn­ingu er að ræða, en þegar litið er yfir svör ráðu­neyt­is­ins sést að all­nokkur dæmi eru um að ein­stak­lingar hafi sinnt þessum störfum árum saman eftir að hafa verið ráðnir inn án aug­lýs­ingar.

[adspot]

Þannig starf­aði einn lög­fræð­ingur sem aðstoð­ar­maður dóm­ara við Hæsta­rétt frá febr­úar 2015 og þar til í jan­úar 2020 og annar sinnti starf­anum frá sept­em­ber 2010 og fram í ágúst 2015 þrátt fyrir að starfið hafi ekki verið aug­lýst. Algengt er þó að starf­inu sé sinnt til skemmri tíma og að fólk starfi sem aðstoð­ar­menn dóm­ara við rétt­inn í um það bil eitt ár.

Töldu auglýsingar fæla frá hæfasta fólkið

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til Hæsta­réttar á vor­mán­uðum og óskaði eftir skýr­ingum á því af hverju störf aðstoð­ar­manna dóm­ara við rétt­inn hefðu ekki verið aug­lýst á und­an­förnum árum.

Í svari Þor­steins A. Jóns­sonar skrif­stofu­stjóra dóm­stóls­ins við fyr­ir­spurn blaða­manns sagði að dóm­stóll­inn legði áherslu á að sem hæf­astir lög­fræð­ingar réð­ust til starfa sem aðstoð­ar­menn hæsta­rétt­ar­dóm­ara.

„Þar sem aðstoð­ar­menn eru í upp­hafi ráðnir tíma­bundið hefur þótt heppi­legra að aug­lýsa ekki þar sem talið hefur verið að hæf­ustu umsækj­endur myndu síður sækja um slík störf,“ sagði í svari skrif­stofu­stjór­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Starf auglýst í þessum mánuði

Athygli vakti fyrir örfáum dögum er aug­lýs­ingar um lausa stöðu aðstoð­ar­manns dóm­ara við Hæsta­rétt birt­ust í dag­blöðum lands­ins.

Andrés Ingi sagði á Twitter að mögu­lega væri þetta fyrsta aug­lýs­ingin af þessu tagi í sög­unni.

„Svona geta fyr­ir­spurnir ýtt við kerf­inu!“ skrif­aði þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár