Tilnefningarhlutverk Hæstaréttar „arfur frá gamalli tíð“ sem ætti að breyta

Dóms­mála­ráð­herra er þeirrar skoð­unar að Hæsti­réttur ætti ekki að koma nálægt því að til­nefna full­trúa í nefndir, ráð og stjórnir á vegum rík­is­ins. Dr. Páll Hreins­son benti á að það væri óheppi­legt að rétt­ur­inn til­nefndi í stjórn­sýslu­nefndir árið 2019.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra telur að til­nefn­ingar Hæsta­réttar á full­trúum til setu í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum stjórn­valda séu „arfur frá gam­alli tíð“ og að rétt væri að fela dóm­stóla­sýsl­unni að ann­ast slíkar til­nefn­ingar.

Hæsti­réttur Íslands er líka á þeirri skoðun að rök standi til þess að þessi verk­efni verði færð til dóm­stóla­sýsl­unnar, í sam­ræmi við til­lögur sem dr. Páll Hreins­son kom fram með í skýrslu sinni um sjálf­stæðar stjórn­sýslu­nefndir undir lok árs 2019.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herravið fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jóns­sonar þing­manns Pírata um áður­nefndar til­nefn­ingar Hæsta­réttar, sem all­víða í íslenskum lögum hefur það skil­greinda hlut­verk að til­nefna full­trúa í nefndir og ráð af ýmsu tagi. Alls til­nefndi dóm­stóll­inn 25 manns í nefndir, ráð eða stjórnir í fyrra.

Í svari ráð­herra segir að hún hafi beint því til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins að hafa ábend­ing­una um að betur færi á því að dóm­stóla­sýslan færi með þetta hlut­verk í huga þegar verð er að lesa yfir frum­vörp til breyt­inga á lögum þar sem þessi ákvæði er að finna.

Af hverju ætti Hæstiréttur ekki að standa með sínum nefndarmönnum?

Dr. Páll Hreins­son sagði í skýrslu sinni að vanda­mál gætu komið upp vegna lög­bund­ins hlut­verks Hæsta­réttar við til­nefn­ingar í stjórn­sýslu­nefndir, sér­stak­lega þegar rétt­ur­inn til­nefndi alla aðal- og vara­menn í nefndir.

Frá sjón­ar­horni almen­ings, skrif­aði Páll, væri þetta til þess fallið að draga mætti sjálf­stæði og óhlut­drægni Hæsta­réttar í efa þegar mál væri undir hann borið þar sem kraf­ist væri ógild­ingar stjórn­sýslu­nefndar, sem rétt­ur­inn hefur til­nefnt full­trúa í.

[adspot]

„Út frá sjón­ar­horni almennra borg­ara vaknar sú spurn­ing af hverju rétt­ur­inn skyldi ekki standa með þeim nefnd­ar­mönnum sem hann hafði slíka traust á að hann taldi sér­staka ástæðu og rök til að til­nefna þá til setu í nefnd­inni,“ segir í skýrslu Páls.

Dæmi um stjórn­sýslu­nefndir þar sem flestir eða allir full­trúar eru til­nefndir til setu af Hæsta­rétti eru áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála, kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála, úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála, kæru­nefnd úboðs­mála, yfir­fast­eigna­mats­nefnd og kæru­nefnd húsa­mála.

Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Andrésar Inga segir að Hæsti­réttur leggi áherslu á að til­nefna „ávallt hæf­ustu ein­stak­ling­ana til að takast á við þau verk­efni sem óskað er til­nefn­ingar í “ og þess sé „gætt að verk­efn­unum sé dreift þannig að þau legg­ist á fleiri hendur“ auk þess sem leit­ast væri við að tryggja að ein­stak­lingar af báðum kynjum séu til­nefndir.

33 úr HÍ og 7 úr HR frá 2003

Andrés Ingi bað sér­stak­lega um að fá sund­ur­liðun á til­nefn­ingum starfs­manna laga­deila háskól­anna í land­inu í nefndir, ráð og stjórnir af hálfu Hæsta­réttar. Nið­ur­staðan varð sú að frá árinu 2003 og til 20. apríl 2021 til­nefndi Hæsti­réttur 33 starfs­menn laga­deildar Háskóla Íslands til ein­hverra starfa og sjö starfs­menn laga­deildar Háskól­ans í Reykja­vík.

Þegar kemur að til­nefn­ingum Hæsta­réttar á starfs­mönnum laga­deild­anna er litið til rann­sókn­ar­sviða þeirra í lög­fræð­inni, með hlið­sjón af því verk­efni sem til­nefn­ing lýtur að, segir í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár