Björn Þorvaldsson metinn hæfastur til að verða skipaður í embætti héraðsdómara

Alls sóttu sjö um emb­ættið sem var aug­lýst í maí. Björn hefur í tæp­lega 18 ár feng­ist við rann­sókn saka­mála og ákvörðun um sak­sókn og við flutn­ing saka­mála fyrir dómi, fyrst sem full­trúi en síðar sem sak­sókn­ari.

Alls sóttu sjö um embætti dómara sem hefur starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinnir störfum við alla héraðsdómstóla.
Alls sóttu sjö um emb­ætti dóm­ara sem hefur starfs­stöð við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur en sinnir störfum við alla hér­aðs­dóm­stóla. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nið­ur­staða dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara er að Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sé hæf­astur umsækj­enda til að hljóta skipun í emb­ættið. Staðan sem um ræðir er emb­ætti dóm­ara sem hefur starfs­stöð við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur en sinnir störfum við alla hér­aðs­dóm­stóla eftir ákvörðun dóm­stóla­sýsl­unnar.

Starfið var aug­lýst 7. maí og bár­ust sjö umsóknir um emb­ættið. Auk Björns sóttu þau Herdís Hall­mars­dóttir lög­fræð­ingur, Nanna Magna­dóttir for­maður úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála, Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir lög­maður, Sigurður Jónsson lög­maður, Valborg Stein­gríms­dóttir aðstoð­ar­maður dóm­ara í Lands­rétti og Þor­steinn Magn­ús­son fram­kvæmda­stjóri óbyggða­nefndar, um emb­ættið.

Fram kemur í umsögn dóm­nefndar að Björn hafi í tæp­lega 18 ár feng­ist við rann­sókn saka­mála og ákvörðun um sak­sókn og við flutn­ing saka­mála fyrir dómi, fyrst sem full­trúi en síðar sem sak­sókn­ari. Árið 2009 varð hann sak­sókn­ari hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara þar til hann tók við starfi sviðs­stjóra ákæru­sviðs efna­hags- og skatta­laga­brota við emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í byrjun árs 2016. Björn hefur flutt mörg umfangs­mikil og flókin efna­hags­brota­mál á öllum dóm­stigum. Þá hefur hann einnig sinnt kennslu við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, í Háskól­anum á Bifröst og Háskól­anum á Akureyri.

Hafði mesta reynslu umsækjenda

Í nið­ur­stöðukafla umsagnar dóm­nefndar segir að nið­ur­staðan sé byggð á heild­stæðu og mál­efna­legu mati á verð­leikum umsækj­enda „og skiptir þar mestu máli að þeir hafi til að bera almenna og víð­tæka lög­fræði­lega menntun, þekk­ingu og færni. Við mat á því að hve miklu leyti starfs­reynsla umsækj­enda nýt­ist í störfum hér­aðs­dóm­ara skiptir mestu máli að þeir búi yfir stað­góðri reynslu af dóm­störfum, lög­manns- og mál­flutn­ings­störfum og þeim stjórn­sýslu­störfum sem lúta að úrlausn ágrein­ings­mála.“

Álit dóm­nefndar var að Björn Þor­valds­son hafi staðið fremstur umsækj­enda í þeim mats­hluta sem snýr að reynslu af dóm­störfum, reynslu af lög­manns- og mál­flutn­ings­störfum og reynslu af stjórn­sýslu­störfum. „Munurinn á honum og nokkrum öðrum umsækj­endum um emb­ættið er hins vegar ekki svo afger­andi að hann ráði úrslitum um mat á hæfni þeirra, einn og sér,“ segir um þennan hluta mats­ins.

Því hafi skipt máli að horfa jafn­framt til mats á færni umsækj­enda til að nýta þá lög­fræði­þekk­ingu sem þeir búa yfir við að leysa úr dóms­málum á skipu­legan og rök­studdan hátt. Í þeim hluta mats­ins stóðu þau Björn og Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir fremst umsækj­enda.

„Með skírskotun til alls þess, sem að framan greinir, er það nið­ur­staða dóm­nefndar að Björn sé hæf­astur umsækj­end­anna sjö til að gegna umræddu dóm­ara­emb­ætti,“ segir um loka­nið­ur­stöðu dóm­nefndar.

Í dóm­nefnd sátu Eiríkur Tómasson, for­maður, Helga Melkorka Ótt­ars­dóttir, Kristín Bene­dikts­dóttir, Óskar Sig­urðs­son og Ragn­heiður Harð­ar­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár