Athugasemdir gerðar við aukastörf íslenskra dómara

Þrátt fyrir að meg­in­reglan í lögum um dóm­stóla sé sú að dóm­arar skuli ekki sinna öðrum störfum eru margir dóm­arar sem sinna auka­störfum, til dæmis setu í stjórn­sýslu­nefndum og háskóla­kennslu. Þetta þykir ekki öllum æski­legt.

Þrátt fyrir að í lögum um dóm­stóla frá árinu 2016 sé að finna þá meg­in­reglu að dóm­arar skuli ekki sinna öðrum störfum sam­hliða störfum sínum sem dóm­arar, fást dóm­arar lands­ins við ýmis­legt annað en ein­göngu að dæma við dóm­stól­ana, eins og má sjá í skrá yfir auka­störf dóm­ara á vef dóm­stól­anna.

Fjallað er um þessi auka­störf dóm­ara í grein í nýjasta tölu­blaði Lög­manna­blaðs­ins, félags­riti Lög­manna­fé­lags Íslands (LMFÍ). Berglind Svav­ars­dóttir for­maður félags­ins segir við Kjarnann það hafi komið stjórn félags­ins ögn á óvart hve víð­tæk þátt­taka dóm­ara í öðrum störfum er.

Í því ljósi kann­aði stjórn LMFÍ hvort nefnd um dóm­ara­störf teldi gild­andi reglur um auka­störf dóm­ara sam­ræm­ast kröfum sem gerðar eru, m.a. í stjórn­ar­skrá, lögum og siða­reglum dóm­ara, um sjálf­stæði og óhæði dóm­ara. Bréfa­skipti á milli félags og nefndar eru rakin í Lög­manna­blað­inu.

Þar segir að nefndin hafi vísað til þess í svari sínu að þegar lögum um dóm­stóla var breytt árið 2016 hefði það meðal ann­ars verið mark­mið lög­gjafans að breyta þeirri ára­tuga­löngu fram­kvæmd að dóm­arar sinntu marg­vís­legum auka­störfum.

Þó kemur fram að nefndin hafi fengið mis­vísandi skila­boð frá Alþingi, þar sem það hafi komið fram í nefnd­ar­á­liti með frum­varp­inu að meg­in­reglan um að dóm­arar skuli ekki sinna auka­störfum ætti þó ekki að koma í veg fyrir að fram­kvæmda­valdið gæti notið reynslu og þekk­ingar dóm­ara við und­ir­bún­ing lög­gjafar og þá gæti seta dóm­ara í úrskurð­ar­nefndum einnig komið til greina í ein­hverjum til­vikum.

Sjálfstæði dómstóla gagnvart löggjafar- og framkvæmdavaldi

Berglind segir að afstaða LMFÍ til þess­ara mála byggi á því að sjálf­stætt dóms­vald og sjálf­stæði sér­hvers dóm­ara í starfi sé for­senda rétt­látrar máls­með­ferðar og rétt­ar­ríkis og skýr skil skuli vera á milli dóms­valds­ins ann­ars vegar og fram­kvæmda­valds­ins og lög­gjaf­ar­valds­ins hins vegar, ekki síst til að koma í veg fyrir van­hæfi dóm­ara vegna auka­starfa sem þeir gegna. Því skuli túlka heim­ildir dóm­ara til að sinna auka­störfum þröngt.

Lög­manna­fé­lag Íslands hefur komið athuga­semdum á fram­færi til bæði Dóm­ara­fé­lags Íslands og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna auka­starf­anna, en þær athuga­semdir lúta til dæmis að setu dóm­ara í úrskurðar- og kæru­nefndum og því að dóm­arar séu fengnir til þess að sinna gerð lög­fræði­legra álits­gerða fyrir fram­kvæmda­valdið.

Berglind segir að seta dóm­ara í stjórn­sýslu­nefndum orki tví­mælis, þar sem úrskurðir og afgreiðslur slíkra nefnda geti jú komið til kasta dóm­stóla síðar meir. Þá sé ákveðin hætta á van­hæfi dóm­ara til staðar.

Samkrull akademíu og dómstóla „eitur“ fyrir gagnrýna umfjöllun um dómstólana

Auk þeirra sjón­ar­miða um sjálf­stæði dóm­ara gagn­vart lög­gjafar- og fram­kvæmda­valdi sem stjórn LMFÍ hefur bent á og spurst fyrir um eru einnig sjón­ar­mið uppi innan háskóla­sam­fé­lags­ins þess efnis að það sé jafn­vel bein­línis skað­legt að starf­andi dóm­arar séu í akademískum stöðum við laga­deildir.

Það er sagt hafa heft­andi áhrif á gagn­rýna umfjöllun um störf dóm­stól­anna og dóma þeirra innan laga­deild­anna, en það er nokkuð sér-íslenskt fyr­ir­bæri að starf­andi dóm­arar séu sam­hliða með fastar stöður við háskóla.

Einn lög­fræð­ingur í aka­dem­í­unni, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að þetta hafi verið rætt á meðal lög­fræð­inga. Fáir séu hins vegar til­búnir til þess að ræða þessi mál opin­ber­lega, ýmist af ótta við afleið­ing­arnar eða af því að þeir séu í óþægi­legri stöðu til þess.

Rúmur tugur starf­andi íslenskra dóm­ara er einnig í akademískum stöðum, nær allir við laga­deild Háskóla Íslands. Fjórir af sjö dóm­urum við Hæsta­rétt Íslands eru til dæmis í dag akademískir starfs­menn við Háskóla Íslands.

Benedikt Bogason for­seti Hæsta­réttar er til dæmis í 49 pró­sent starfs­hlut­falli sem pró­fessor ofan á 100 pró­sent starf sitt við dóm­stól­inn og Karl Axelsson er í 20 pró­sent dós­ents­stöðu.

Þá eru þær Ása Ólafs­dóttir og Björg Thoraren­sen, sem nýlega voru skip­aðar í emb­ætti, báðar í pró­fess­ors­stöðu við laga­deild­ina, en sam­kvæmt því sem fram kemur í skrá yfir auka­störf dóm­ara verða þær í þeim stöðum fram á næsta sumar.

Líkt og ef ráðherrar væri með stöður við stjórnmálafræðideild

„Með þessu móti hafa dóm­arar óeðli­lega mikil ítök í laga­kennslu og rann­sóknum hér­lendis,“ segir fræði­mað­ur­inn og bætir við að það fyr­ir­komu­lag að starf­andi dóm­arar séu í föstum akademískum stöðum sé „eitur“ fyrir gagn­rýna umfjöllun á störf dóm­stól­anna og dóma þeirra og skapi þannig aðhalds­leysi gagn­vart dóm­stól­unum.

„Það er eitt að þeir séu að koma inn með eitt og eitt erindi í kennslu en að þeir séu upp í 49 pró­sent stöðu eins og Benedikt Bogason er nokkuð sér­stakt,“ segir lög­fræð­ing­ur­inn, sem líkir þessu fyr­ir­komu­lagi við það að ráð­herrar væru með akademískar stöður við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands.

Þessi staða skapi ein­kenni­legt and­rúms­loft varð­andi það hvað þyki æski­legt og hvað ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár