Dómsmálaráðuneytið sagði dómstólasýslunni að segja dómstólunum að fara eftir reglum

Eftir fyr­ir­spurnir frá þing­manni Pírata sem leiddu í ljós að ekki var verið að fara eftir reglum við ráðn­ingar aðstoð­ar­manna við dóm­stóla lands­ins skrif­aði dóms­mála­ráðu­neytið dóm­stóla­sýsl­unni bréf, með beiðni um að ræða við dóm­stól­ana.

Hæstiréttur Íslands hyggst framvegis auglýsa störf aðstoðarmanna dómara, eftir að hafa ráðið 23 án auglýsingar frá árinu 2006.
Hæsti­réttur Íslands hyggst fram­vegis aug­lýsa störf aðstoð­ar­manna dóm­ara, eftir að hafa ráðið 23 án aug­lýs­ingar frá árinu 2006. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um miðjan mán­uð­inn rit­aði dóms­mála­ráðu­neyti Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóm­stóla­sýsl­unni bréf, þar sem stofn­unin, sem sér um sam­eig­in­lega stjórn­sýslu dóm­stól­anna í land­inu, var beðin um að árétta við for­stöðu­menn þeirra allra að skylda bæri til þess að aug­lýsa störf aðstoð­ar­manna dóm­ara við dóm­stól­ana.

Bréfið var ritað eftir að í ljós kom hjá ráðu­neyt­inu, er það var að taka saman svör við tveimur fyr­ir­spurnum Andrésar Inga Jóns­sonar þing­manns Pírata á síð­asta lög­gjaf­ar­þingi, að lausar stöður aðstoð­ar­manna dóm­ara við dóm­stól­ana væru ekki í öllum til­vikum aug­lýstar lausar til umsóknar og að Hæsti­réttur Íslands hefði aldrei ráðið í stöðu aðstoð­ar­manns dóm­ara að und­an­geng­inni aug­lýs­ingu.[links]

Eins og rakið var í svari dóms­mála­ráð­herra til Andrésar Inga á þingi sýndu upp­lýs­ingar sem aflað var hjá Hæsta­rétti að frá árinu 2006 hefði alls 23 ein­stak­lingar verið ráðnir sem aðstoð­ar­menn ráð­herra án aug­lýs­ingar, allt lög­fræð­ingar sem útskrif­uð­ust frá Háskóla Íslands.

Dæmi voru um að lög­fræð­ingar hefðu sinnt starf­inu, eftir að hafa hlotið tíma­bundna ráðn­ingu til að byrja með, í allt að fimm ár.

Í bréf­inu, sem sent var 17. ágúst og Kjarninn fékk afhent frá ráðu­neyt­inu, áréttar ráðu­neytið að sam­kvæmt ákvæðum laga um dóm­stóla eigi lög um rétt­indi og skyldur opin­berra starfs­manna að gilda um bæði ráðn­ingar og starfs­lok starfs­manna dóm­stól­anna.

[adspot]

Þar segir að sam­kvæmt þessum lögum eigi að aug­lýsa opin­ber­lega önnur störf en störf emb­ætt­is­manna við dóm­stól­anna, sam­kvæmt reglum sem settar eru af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í þeim reglum segir að aug­lýsa skuli laus störf og að umsókn­ar­frestur skuli vera að minnsta kosti tíu dagar frá birt­ingu aug­lýs­ingar. Einnig eru í ákvæð­inu til­teknar und­an­þágur frá aug­lýs­ingu opin­bera starfa, svo sem ef störf eru tíma­bundin vegna sér­stakra nánar til­greindra ástæðna.

[box]

„Af fram­an­greindu leiðir að lausar stöður aðstoð­ar­manna dóm­ara ber að aug­lýsa opin­ber­lega nema þær und­an­þágur sem getið er í 2. gr. reglna nr. 1000/2019 eigi við. Þess skal jafn­framt getið að í frum­varpi því sem varð að gild­andi lögum um dóm­stóla er gengið út frá því að störf við dóm­stóla séu að meg­in­stefnu aug­lýst opin­ber­lega,“ segir í bréfi ráðu­neyt­is­ins.

Ráðu­neytið sagð­ist fara „þess á leit við dóm­stóla­sýslunna að aug­lýs­inga­skylda starfa aðstoð­ar­manna dóm­ara sé áréttuð við for­stöðu­menn hér­aðs­dóm­stól­anna, Lands­réttar og Hæsta­réttar Íslands.“

Breyttir siðir með nýju fólki í Hæstarétti

Eins og Kjarninn sagði frá í vik­unni hefur Hæsti­réttur ekki aug­lýst störf á und­an­förnum árum og í svari frá fyrr­ver­andi skrif­stofu­stjóra dóm­stóls­ins til Kjarnans, sem barst í maí, sagði að áhersla væri lögð á að sem hæf­astir lög­fræð­ingar réð­ust til starfa sem aðstoð­ar­menn hæsta­rétt­ar­dóm­ara.

„Þar sem aðstoð­ar­menn eru í upp­hafi ráðnir tíma­bundið hefur þótt heppi­legra að aug­lýsa ekki þar sem talið hefur verið að hæf­ustu umsækj­endur myndu síður sækja um slík störf,“ sagði í svari Þor­steins A. Jóns­sonar, lét nýlega af störfum sem skrif­stofu­stjóri dóm­stóls­ins, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Ólöf Finns­dóttir, sem tók við starfi skrif­stofu­stjóra af Þor­steini í sumar, sagði við Morg­un­blaðið á föstu­dag að með nýju fólki kæmu breyttir siðir. Auk þess sem Ólöf hefur tekið við skrif­stofu­stjóra­stöð­unni var Benedikt Bogason nýlega kjör­inn for­seti dóm­stóls­ins.

Fyrir nokkrum dögum var aðstoð­ar­manna­staða við dóm­stól­inn aug­lýst laus til umsóknar og sagði Ólöf við Morg­un­blaðið að sá háttur yrði hafður á hér eftir.

„Ég er tals­kona þess að við vinnum fyrir opnum tjöldum,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár