Þeir sem vilji lögbann á fjölmiðla verði að reiða fram tryggingu

Í sam­ráðs­gátt stjórn­valda er nú að finna laga­frum­varp sem er ætlað að styrkja tján­ing­ar­frelsið hér á landi. Þeir sem vilja lög­bann á birt­ingu ein­hvers efnis myndu þurfa að leggja fram trygg­ingu, auk þess sem stefnt er að því að flýta með­ferð lög­banns­mála.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur lagt fram drög að laga­frum­varpi sem er ætlað að styrkja tján­ing­ar­frelsið með því að bæta umgjörð lög­banns­mála á hendur fjöl­miðlum.

Efn­is­lega sam­hljóða frum­varp var lagt fram sem stjórn­ar­frum­varp á þingi í vor, en ekki afgreitt úr alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. Nú er það komið aftur í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og verður þar til umsagnar til 2. sept­em­ber.

Helstu laga­breyt­ing­arnar sem fel­ast í frum­varp­inu eru þær að þeir aðilar sem fara til sýslu­manns og óska þess að lög­bann verði sett á birt­ingu efnis þurfi ætíð að leggja fram trygg­ingu til bráða­birgða. Þannig hefði Glitnir HoldCo til dæmis þurft að leggja fram trygg­ingu þegar þrota­búið setti fram lög­banns­kröfu á umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vík Media um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og skyld­menna hans í aðdrag­anda banka­hruns.

Einnig er lagt til að frestir við með­ferð sýslu­manns á lög­banns­málum verði tak­mark­aðir eins og kostur er og ein­göngu veittir í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum og að stað­fest­ing­ar­mál í kjöl­far lög­banns­mála fari eftir ákvæðum um flýti­með­ferð einka­mála, „eftir því sem við á“.

Slík mál eiga það til að drag­ast veru­lega, eins og dæmin sýna, en lög­banni á umfjöllun Stund­ar­innar, sem sett var á tveimur vikum fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar kosn­ing­arnar í októ­ber árið 2017. Málinu var ekki end­an­lega lokið fyrr en Hæsti­réttur kvað upp dóm í mars árið 2019 og hafði öllum kröfum Glitnis HoldCo þá verið hafnað á þremur dóm­stigum.

Bætur gætu orðið hærri

Í frum­varp­inu er einnig lagt til að strang­ari bóta­reglur verði í slíkum lög­banns­málum og að dóm­ara verði heim­ilt að dæma bætur að álitum vegna tjóns sem verður við það að birt­ing efnis er hindruð vegna lög­banns eða beiðni um það.

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir um síð­ast­nefnda atriðið að sé lög­banni hnekkt að lokum fyrir dómi, skuli sá sem fór fram á lög­bannið bæta miska og fjár­tón sem staf­aði af beiðni hans, þar á meðal spjöll á lán­trausti og við­skipta­hags­munum. En dóm­urum er líka ætlað að meta tjónið sem erfitt getur verið að festa nákvæm­lega í krónur og aura og gæti slíkt leitt þess að bætur verði hærri.

„Ljóst er að erfitt getur verið að meta það tjón sem af slíku lög­banni hefur hlot­ist. Getur verið tor­velt að áætla tap­aðar aug­lýs­ingar eða eftir atvikum hversu mörg ein­tök fjöl­mið­ill kunni að hafa selt eða miðlað hefði lög­banni ekki verið komið á. Hér er því lagt til að dóm­ari meti að álitum það tjón sem af slíku hefur hlot­ist tak­ist ekki sönnun um fjár­hæð þess,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár