Átta sækjast eftir tveimur lausum dómaraembættum við Hæstarétt

Átta lög­fræð­ingar sækj­ast eftir tveimur lausum dóm­ara­emb­ættum við Hæsta­rétt Íslands. Í hópi umsækj­enda eru fjórir dóm­arar við Lands­rétt.

Átta umsækj­endur eru um tvö emb­ætti dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands, sem aug­lýst voru til umsóknar 10. júlí síð­ast­lið­inn. Þorgeir Örlygs­son og Greta Bald­urs­dóttir báð­ust lausnar frá dóm­stólnum fyrr í sumar.

Umsókn­ar­frestur um emb­ættin tvö rann út í fyrra­dag, 27. júlí. Eft­ir­far­andi ein­stak­lingar sækj­ast eftir þeim:

  • Aðal­steinn E. Jónasson, dóm­ari við Lands­rétt
  • Ása Ólafs­dóttir, pró­fessor
  • Ástríður Gríms­dóttir, hér­aðs­dóm­ari
  • Björg Thoraren­sen, pró­fessor
  • Davíð Þór Björg­vins­son, dóm­ari við Lands­rétt
  • Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, lög­maður
  • Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir, dóm­ari við Lands­rétt
  • Þorgeir Ingi Njálsson, dóm­ari við Lands­rétt.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að skipað verði í emb­ættin hið fyrsta eftir að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti hafi lokið störfum.

Miklar breyt­ingar eru að verða á sam­setn­ingu æðsta dóm­stóls Íslands, en þegar búið verður að skipa í emb­ættin tvö sem nú eru laus munu fjórir af sjö dóm­urum rétt­ar­ins hafa verið skip­aðir frá því í des­em­ber 2019, þar af þrír á þessu ári. 

[adspot]

Fimm dóm­arar hafa í heild­ina hætt störfum, en í fyrra var ákveðið að fækka dóm­urum úr átta í sjö eins og staðið hafði til frá því að Lands­réttur tók til starfa.

Á mánu­dag var greint frá því að Benedikt Bogason hefði verið kjör­inn for­seti Hæsta­réttar og Ing­veldur Ein­ars­dóttir vara­for­seti dóm­stóls­ins á fundi dóm­ara sem þá fór fram. Þau taka við stöð­unum 1. sept­em­ber.

Aðrir dóm­arar við rétt­inn, sem sitja munu áfram, eru Sigurður Tómas Magn­ús­son, Ólafur Börkur Þor­valds­son og Karl Axelsson. Ólafur Börkur er sá dóm­ari við Hæsta­rétt sem setið hefur lengst, en hann var skip­aður í emb­ætti árið 2003. Næstur honum í reynslu af dóm­störfum við rétt­inn er Benedikt Bogason, sem skip­aður var árið 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár