Vilja kanna hvort breyting á nauðgunarákvæði hafi aukið traust í garð réttarvörslukerfisins

Árið 2018 var nauðg­un­ar­á­kvæði almennra hegn­ing­ar­laga breytt þannig að sam­þykki var gert að skil­yrði fyrir sam­ræði. 17 þing­menn úr fimm flokkum hafa nú óskað eftir skýrslu frá dóms­mála­ráð­herra um áhrif laga­breyt­ing­ar­innar.

Jón Steindór Valdimarsson, sitjandi varaþingmaður Viðreisnar, er flutningsmaður skýrslubeiðninnarsem nú hefur verið send Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra.
Jón Steindór Valdi­mars­son, sitj­andi vara­þing­maður Við­reisnar, er flutn­ings­maður skýrslu­beiðn­inn­ar­sem nú hefur verið send Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Samsett

17 þing­menn úr fimm flokkum hafa óskað eftir skýrslu frá dóms­mála­ráð­herra þar sem gert er grein fyrir því hvaða áhrif breyt­ing á hegn­ing­ar­lögum þar sem hug­takið nauðgun var end­ur­skil­greint hefur haft. Breyt­ingin sem um ræðir var sam­þykkt á alþingi í mars árið 2018 og færði sam­þykki í for­grunn skil­grein­ingar á nauðg­un­ar­brotum og horfið var frá meg­in­á­herslu á verkn­að­ar­að­ferð. Með breyt­ing­unni varð sam­þykki gert að skil­yrði fyrir sam­ræði, eða eins og segir í grein­ar­gerð skýrslu­beiðn­innar: „Eftir gild­is­töku lag­anna þarf sam­þykki fyrir sam­ræði eða öðrum kyn­ferð­is­mökum að hafa legið fyrir og án þess telj­ist þau varða refs­ingu. Samþykki þarf jafn­framt að hafa verið tjáð af frjálsum vilja.“

Í skýrslu­beiðn­inni óska skýrslu­beið­endur meðal ann­ars eftir upp­lýs­ingum sem varpað geta ljósi á það hvort breyt­ing­arnar hafi haft áhrif á fjölda til­kynntra brota. Það væri „til marks um að sam­þykki í for­grunni nauðg­un­ar­á­kvæðis sé til þess fallið að auka traust í garð rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins,“ líkt og segir í grein­ar­gerð sem fylgir skýrslu­beiðn­inni.

Einnig er óskað eftir upp­lýs­ingum um hlut­fall til­kynn­inga sem hafa leitt til ákæru ann­ars vegar og sak­fell­ingar hins vegar sem og upp­lýs­ingum um hvort verk­lagi hafi verið breytt hjá lög­reglu, ákæru­valdi eða dóm­stólum eftir að lög­unum var breytt.

Óska einnig eftir samanburði við útlönd

Sjónum er sér­stak­lega beint að Svíþjóð í skýrslu­beiðn­inni en sam­bæri­leg laga­breyt­ing var gerð þar í landi í júlí árið 2018. Óskað er eftir sam­an­tekt á því hvernig áður­nefnd atriði hafa þró­ast í Svíþjóð í kjöl­far laga­breyt­ing­ar­innar. Einnig er óskað eftir sam­an­burði á breyt­ingum á fjár­munum sem varið er til for­varna og fræðslu um sam­þykki í kyn­ferð­is­legum sam­skiptum á Íslandi og í Svíþjóð með sér­stakri áherslu á fræðslu fyrir lög­reglu, ákæru­vald og dóm­stóla.

Skýrslu­beið­endur óska einnig eftir sam­an­burði á sam­bæri­legum ákvæðum í hegn­ing­ar­lögum ann­arra Evr­ópu­ríkja við ákvæðið hér heima. Þá óska skýrslu­beið­endur að lokum eftir því að í skýrsl­unni komi fram rök „með og á móti því því að rýmka nauðg­un­ar­á­kvæði almennra hegn­ing­ar­laga þannig að það taki einnig til gáleysis eða stór­fellds gáleysis og grein­ing á áhrifum þess á sönn­un­ar­færslu, með hlið­sjón af reynslu ann­arra ríkja sem hafa þegar inn­leitt slíka reglu.“

Vilja vita hvort kerfið hafi „tekið mark á þessari lagabreytingu“

„Það er mjög mik­il­vægt að við áttum okkur á því hvort þetta hafi skilað til­ætl­uðum árangri, hvort kerfið sem sýslar með þessi mál hafi tekið mark á þess­ari laga­breyt­ingu og síð­ast en ekki síst að bera árangur okkar saman við önnur ríki sem hafa farið svip­aðar leiðir,“ sagði Jón Steindór í umræðum um málið í þing­sal.

„Þetta er mjög mik­il­vægt mál því að við verðum að hafa sann­fær­ingu fyrir því að þegar við erum að lýsa yfir vilja okkar hér í þing­inu og breyta lögum að það nái fram að ganga í fram­kvæmd­inni,“ bætti hann við.

Líkt og áður segir standa alls 17 þing­menn úr fimm flokkum að baki skýrslu­beiðn­innar; Viðreisn, Pírötum, Sam­fylk­ing­unni, Vinstri hreyf­ing­unni - grænu fram­boði og Flokki fólks­ins. Fimm í hópi skýrslu­beið­enda voru í hópi þeirra sem lögðu fram laga­breyt­inga­til­lög­una sem sam­þykkt var árið 2018, þau Jón Steindór Valdi­mars­son, Hanna Katrín Frið­riks­son og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir úr Viðreisn, Helga Vala Helga­dóttir úr Sam­fylk­ing­unni og Andrés Ingi Jónsson sem þá var í Vinstri­hreyf­ing­unni - grænu fram­boði en situr nú á þingi fyrir Pírata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár