Fallið frá því að heimila dómstólasýslunni að velja dómara í dómnefnd um dómaraskipanir

Vegna athuga­semda sem fram komu við frum­varps­drög um ýmsar breyt­ingar á lögum sem snerta dóm­stóla hefur verið ákveðið að falla ekki frá skil­yrði sem nú er í lögum um að dóm­stóla­sýslan skuli ekki til­nefna dóm­ara í dóm­nefnd um hæfni dóm­ara­efna.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ekki verður fallið frá því skil­yrði, sem er til staðar í lögum í dag, að sá aðili sem dóm­stóla­sýslan til­nefnir í dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara komi ekki úr röðum dóm­ara. Þetta má lesa í nýju stjórn­ar­frum­varpi frá Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra um ýmsar breyt­ingar á lögum um með­ferð einka­mála, með­ferð saka­mála og dóm­stóla.

Í drögum að frum­varp­inu, sem lögð voru fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda á Þor­láks­messu, var lagt til að dóm­stóla­sýslan fengi frelsi til þess að til­nefna full­trúa í dóm­nefnd­ina úr röðum dóm­ara. Það var gagn­rýnt, bæði af hálfu Lög­manna­fé­lags Íslands og Hauks Loga Karls­sonar, nýdokt­ors í lög­fræði við HÍ. Tekið var til­lit til þeirra athuga­semda varð­andi þetta atriði við end­an­lega fram­lagn­ingu frum­varps­ins.

Kjarninn sagði frá athuga­semdum Hauks Loga við frum­varpið í jan­ú­ar­mán­uði, en hann and­mælti því að rétt væri að afnema þær tak­mark­anir sem í dag eru lagðar á dóm­stóla­sýsl­una við til­nefn­ingu í dóm­nefnd­ina. Þvert á móti, sagði hann, er áskiln­aður um vissan fjöl­breyti­leika nefnd­ar­manna í dóm­nefnd­inni „nauð­syn­legur til þess að tryggja þá vald­dreif­ingu, sem lög­gjaf­inn hafði í huga þegar kemur að sam­setn­ingu nefnd­ar­inn­ar“.[links]

Auk dóm­stóla­sýsl­unnar til­nefna Lands­réttur, Hæsti­réttur, Alþingi og Lög­manna­fé­lagið full­trúa í dóm­nefnd­ina. Haukur Logi benti á að dóm­nefndin færi með veiga­mikið vald í stjórn­skip­un­inni og í reynd stóran hluta valds til skip­unar á dóm­ur­um.

„Það er því eðli­legt að lög­gjaf­inn hafi komið því þannig fyrir að ein fámenn starfs­stétt geti ekki án lýð­ræð­is­legs umboðs komið sér í þá stöðu að hafa úrslita­vald um hverjir velj­ist til þess að fara með dóms­vald yfir allri þjóð­inn­i,“ sagði í umsögn Hauks Loga um frum­varps­drögin.

Ekki útilokað að varadómaralisti komi til skoðunar síðar meir

Hvað dóm­ara­skip­anir varðar var í drögum að frum­varp­inu einnig lagt upp með að falla frá þeirri reglu að dóm­arar sem settir eru við Lands­rétt og Hæsta­rétt, hvort heldur í ein­stök mál eða í til­tekið tíma­bil, skyldu koma úr röðum fyrr­ver­andi dóm­ara ef kostur væri á. Áfram er stefnt að þessum breyt­ingum, í fram­lögðu frum­varpi dóms­mála­ráð­herra.

Í umsögn Hauks Loga um frum­varps­drögin sagði að rétt væri að þetta fyr­ir­komu­lag hefði ekki reynst hent­ugt – erfitt hefði verið að fá fyrr­ver­andi dóm­ara til setu sem vara­dóm­arar, en bent var á að rök stæðu enn til þess að binda hendur þeirra sem skipa dóm­ara til skamms tíma með ein­hverjum hætti. Þau rök hafi verið að hætta væri á að geð­þótti gæti ráðið því hverjir væru settir dóm­arar til skamms tíma og að „þetta vald væri notað til þess að lyfta þókn­an­legum fram­tíðar umsækj­endum um dóm­ara­emb­ætti yfir aðra með því að veita þeim dóm­ara­reynslu.“

[adspot]

Haukur Logi viðr­aði þann mögu­leika að í stað þess að veita dóm­nefnd fullt frelsi til þess að skipa lög­fræð­inga í dóm­ara­emb­ætti til skemmri tíma væri hægt að útbúa lista sem valið yrði af.

„Hægt væri að útbúa list­ann þannig að þeim umsækj­endum um emb­ætti dóm­ara, sem telj­ast af dóm­nefnd hæfir til að taka sæti en hljóta ekki emb­ætti, væri boðið að taka sæti á þessum lista. Jafn­framt mætti bjóða dóm­urum sem látið hafa af störfum að vera á list­anum og mögu­lega mætti aug­lýsa reglu­lega eftir fólki á list­ann, sem yrði þá hæf­is­metið líkt og dóm­ara­efni af dóm­nefnd­inni. List­ann ætti að birta opin­ber­lega og skrá ætti hags­muna­tengsl og lög­fræði­leg sér­svið þeirra sem á honum eru. Loks ætti að birta töl­fræði í árs­skýrslu dóm­stóla­sýsl­unnar um hverjir eru kall­aðir til að taka sæti á hverju ári. Gagn­sæi og form­festa um störf og val vara­dóm­ara ætti að koma í veg fyrir þá gagn­rýni sem varð til­efni þeirrar reglu sem frum­varps­drögin leggja til að verði breytt til fyrra horfs,“ skrif­aði Haukur Logi í umsögn sinni.

Í grein­ar­gerð með því frum­varpi sem nú liggur fyrir Alþingi er fjallað um þessar athuga­semdir og segir að í ljósi þess­ara sjón­ar­miða sé rétt að árétta að þegar nauð­syn­legt sé að setja dóm­ara til starfa, hvort heldur sem er í til­tekið tíma­bil eða í ein­stakt mál, þjóni það öðru jöfnu þörfum við­kom­andi dóm­stóls best að til þess velj­ist aðili sem hafi reynslu af dóms­störfum sem geri honum kleift að ganga umsvifa­laust til verks og án sér­staks und­ir­bún­ings­tíma­bils eða starfs­þjálf­unar.

„Með því er þó ekki full­yrt að setn­ing ann­arra hæfra lög­fræð­inga geti ekki þjónað sama mark­miði og ekki heldur að sér­stakur listi á borð við þann sem að framan er lýst geti gagn­ast við setn­ingu dóm­ara. Í ljósi þess hversu miklum vand­kvæðum það hefur reynst bundið að fá fyrr­ver­andi dóm­ara til að taka að sér setn­ingu, eins og lög mæla nú fyrir um, og mik­il­vægis þess að sú regla verði færð úr núver­andi horfi þegar í stað, er sú leið að halda sér­stakan lista ekki lögð til hér, enda krefst hún ítar­legri útfærslu og laga­breyt­inga en ráð­gerðar hafa verið með þessu frum­varpi. Það úti­lokar þó ekki að hún hljóti nán­ari athugun síðar meir,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varpi dóms­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár