Af hverju var Al Thani ekki ákærður?

Kaup Mohamed bin Khalifa Al Thani á rúm­lega fimm pró­sent hlut í Kaup­þingi í sept­em­ber 2008 hafa heldur betur dregið dilk á eftir sér. Í síð­ustu viku voru fjórir menn dæmdir í fjög­urra til fimm og hálfs árs fang­els­is­vistar fyrir sína aðkomu að við­skipt­unum. Menn­irnir fjórir voru dæmdir Í Hæsta­rétti fyrir mark­aðs­mis­notkun, umboðs­svik eða hlut­deild í þeim brotum.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, fékk fimm og hálfs árs dóm, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, fengu fjögur og hálf ár hvor og Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, fékk fjög­urra ára dóm.

Hvað með Al Thani?


Í stuttu máli þá snýst málið um að út á við var látið í það skina að Al Thani hefði ákveðið að kaupa hlut­inn í Kaup­þingi vegna þess að hann hefði svo rosa­lega mikla trú á bank­anum. Síðar kom hins vegar í ljós að kaupin voru teiknuð upp af stjórn­endum Kaup­þings og bank­inn sjálfur fjár­magn­aði þau og borið alla mark­aðs­á­hættu að kaup­unum. Þeir létu því rang­lega líta út að þekktur fjár­festir hefði keypt 5.01 pró­sent í bank­anum.

Frá því að til­kynnt var um kaupin 22. sept­em­ber 2008 og þangað til að við­skiptum með bréf Kaup­þings var hætt 8. októ­ber sama ár urðu alls um 2.700 við­skipti með bréf í Kaup­þingi. Velta þeirra var tæp­lega 34 millj­arðar króna.

Samkvæmt dómnum beindust brot mann­anna fjög­urra að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­aðnum hér á landi í held. Tjónið sem brotin leiddu af sér, bæði beint og óbeint, verður sam­kvæmt Hæsta­rétti ekki metið til fjár. Hann segir um að ræða alvar­leg­ustu efna­hags­brot sem „nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot[...]Ákærðu, sem ekki hafa sætt refs­ingu fyrr, eiga sér engar máls­bætur“.

Margir hafa hins vegar velt því fyrir sér hvað valdi því að mað­ur­inn sem málið er óop­in­ber­lega nefnt eftir, Al Thani sjálfur, sé ekki á meðal þeirra sem ákærðir voru? Tók hann ekki þátt í blekk­ing­unni?

[caption id="attachment_16116" align="alignnone" width="624"] Sigurður Ein­ars­son og Ólafur Ólafsson hlutu báðir þunga dóma í Al Thani mál­inu.[/caption]

Tveir menn, ekki einn


Í fyrsta lagi er vert að taka fram að Al Thani er ekki einn maður heldur tveir. Annars vegar er um að ræða Sjeik Mohamed bin Khalifa Al Thani, bróður emírs­ins af Qatar sem var um tíma aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra þess ríkis en hefur stundað við­skipti síð­ast­lið­inn rúman ára­tug. Það er sá Al Thani sem „keypti“ hlut­inn í Kaup­þingi.

Hinn heitir Sjeik Sultan bin Jassim Al Thani og er frændi hins fyrr­nefnda. Hann vann fyrir frænda sinn og kom að allri skipu­lagn­ingu við­skipt­anna.

Skýrslur teknar og lagðar fram


Embætti sér­staks sak­sókn­ara tók skýrslur af báðum mönn­unum á meðan að á rann­sókn máls­ins stóð. Embættið ræddi við Sultan Al Thani strax í upp­hafi rann­sóknar og við Sjeik Mohamed bin Khalifa Al Thani á árinu 2011. Báðir fund­irnir áttu sér stað í London og var komið á í gegnum lög­mann þeirra, Simon Southall. Þeir mættu sjálf­vilj­ugir til fund­anna og báðir fund­irnir voru teknir upp. Upptökur af þeim voru svo lögð fram sem máls­gögn í máli sér­staks sak­sókn­ara gegn mönn­unum fjórum.

Al Thani frænd­urnir neit­uðu hins vegar að koma til Íslands og svara hlið­stæðum spurn­ingum fyrir hér­aðs­dómi. Ákveðið var að sækja það ekki frekar.

Snýst ekki um friðhelgi


En af hverju voru menn­irnir tveir ekki ákærðir fyrir sína aðkomu að mál­inu? Margir virð­ast halda að það snú­ist um að þeir njóti ein­hvers­konar frið­helgi vegna stöðu sinnar innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í Qatar

Í fyrsta lagi var Sjeik Al Thani að hluta til í sjálf­skuld­ar­á­byrð fyrir lán­inu sem honum var veitt. Hann, og aðilar tengdum honum, gerðu sam­komu­lag við slita­stjórn Kaup­þings, um upp­gjör þeirra skulda í febr­úar 2013 sem fól meðal ann­ars í sér að Kaupþing hætti öllum mála­rekstri gegn honum fyrir íslenskum dóm­stólum.

Hin ástæðan er sú að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hefur ein­skorðað ákærur sínar í umboðs­svika- og mark­aðs­mis­notk­un­ar­málum við þá sem hafa stöðu til að skuld­binda banka til fjár­mála­gjörn­inga sem emb­ættið telur ólög­mæta.

Því hafa þeir sem eru á úthlið­inni af þeim gjörn­ingum ekki verið ákærðir í stórum mark­aðs­mis­notk­unar- og umboðs­svika­málum sem emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hefur ákært í. Í Imon-mál­inu var Magnús Ármann, eig­andi Imon ehf., ekki ákærður. Í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu á hendur níu fyrrum starfs­mönnum Kaup­þings, eru eig­endur þeirra félaga sem keyptu bréf í bank­anum með fé frá honum ekki ákærðir.

Aurum og BK-44 undantekningar


Und­an­tekn­ing­arnar eru helst tvær. Annars vegar er um að ræða Aurum-málið svo­kall­aða, þar sem Jón Ásgeir Jóhann­es­son var ákærður fyrir hlut­deild í umboðs­svikum fyrir að hafa beitt stjórn­endur Glitnis „for­tölum og þrýst­ingi og hvatt til þess“ að bank­inn myndi veita félagi í eigu Pálma Har­alds­sonar sex millj­arða króna lán „honum sjálfum og Fons hf. til hags­bóta“.Jón Ásgeir réð á þessum tíma, sam­kvæmt ákæru, yfir um 40 pró­sent af hlutafé Glitnis í gegnum félög sem hann, fjöl­skylda hans eða við­skipta­fé­lagar áttu meiri­hluta í eða stjórn­uðu. Hér­aðs­dómur sýkn­aði alla sak­born­inga í mál­inu í fyrra en það verður tekið fyrir í Hæsta­rétti í apríl.

Hin und­an­tekn­ingin er BK-44 málið. Þar ákærði sér­stakur sak­sókn­ari fjóra fyrrum starfs­menn Glitnis fyrir umboðs­svik, mark­aðs­mis­notkun og brot á lögum um árs­reikn­inga í tengslum við 3,8 millj­arða króna lán­veit­ingu bank­ans til félags sem hét BK-44 í nóv­em­ber 2007. Lánið var notað til að kaupa bréf í Glitni af Glitni. Í því máli voru þrír mann­anna dæmdir í fimm ára fang­elsi og einn í fjög­urra ára fang­elsi í hér­aðs­dómi. Málið bíður áfrýj­unar.

Í BK-44 mál­inu var eig­andi félags­ins sem keypti bréfin, Birkir Krist­ins­son, líka ákærður en hann var auk þess starfs­maður Glitnis. Hann var ákærður fyrir hlut­deild í umboðs­svikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár