Hæstiréttur Danmörku fellir dóm í markaðsmisnotkunarmáli

Fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður og fram­kvæmda­stjóri Parken Sport & Enterta­in­ment voru í morgun dæmdir í eins og hálfs árs fang­elsi hvor fyrir mark­aðs­mis­notkun á árinu 2008. Ávinn­ingur þeirra af mis­notk­un­inni var auk þess gerður upp­tækur.

Flemming Østergaard, sem oftast er kallaður Don Ø, var stjórnarformaður Parken, sem á samnefndar leikvang og stærsta knattspyrnulið Kaupmannahafnar.
Flemming Østergaard, sem oft­ast er kall­aður Don Ø, var stjórn­ar­for­maður Parken, sem á sam­nefndar leik­vang og stærsta knatt­spyrnu­lið Kaup­manna­hafnar. Mynd: Claus Bech / Scanpix

Hæsti­réttur Dan­merkur dæmdi í morgun fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann og fram­kvæmda­stjóra félags­ins Parken Sport & Enterta­in­ment, sem rekur meðal ann­ars leik­völl­inn Parken í Kaup­manna­höfn og knatt­spyrnu­liðið FC Køben­havn, í eins og hálfs árs fang­elsi hvor fyrir mark­aðs­mis­notkun. Auk þess var ávinn­ingur þeirra að mark­aðs­mis­notk­un­inni gerður upp­tækur. Frá þessu er greint á vef Børsen.

Parken Sport & Enterta­in­ment var gefið að hafa átt við­skipti með eigin bréf á árunum 2007 og 2008 og þar með orðið upp­víst að mark­aðs­mis­notkun. Félagið keypti mikið af eigin bréfum á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2008 og kom þannig í veg fyrir að virði þeirra félli.

Þeir sem dæmdir voru í mál­inu voru Flemming Østergaard, sem var árum saman stjórn­ar­for­maður Parken Sport & Enterta­in­ment, og Jörgen Glistrup, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri félags­ins. Danska fjár­mála­eft­ir­litið lauk rann­sókn sinni í ágúst 2010 og kærði málið í kjöl­farið til efna­hags­brota­deildar.

Ávinningur gerður upptækur

Hæsti­réttur felldi sinn dóm í mál­inu í morgun. Þeir Østergaard, sem oft­ast er kall­aður Don Ø, og Glistrup, voru dæmdir í eins og hálfs árs fang­elsi hvor. Auk þess voru gerðar upp­tækar níu millj­ónir danskra króna, um 145 millj­ónir íslenskra króna, hjá Østergaard. Yfirvöld gerðu upp­tækar 800 þús­und danskar krónur hjá Glistrup, um 13 millj­ónir íslenskra króna. Fjár­mun­irnir eru áætl­aður ávinn­ingur þeirra tveggja af hluta­bréfa­eign sinni í Parken Sport & Enterta­in­ment sem rekja mátti til mark­aðs­mis­notk­un­ar­innar. Auk þeirra var miðl­ari dæmdur í fjög­urra mán­aða fang­elsi fyrir að hafa tekið þátt í verkn­að­inum.

Hæsti­réttur þyngdi umtals­vert dóm und­ir­réttar í mál­inu sem féll í sept­em­ber 2015. Þar höfðu Østergaard og Glistrup verið sýkn­aður af veiga­mesta hluta ákærunnar og dæmdir í fjög­urra og sex mán­aða fang­elsi.

Markaðsmisnotkun á Íslandi

Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú hefur runnið inn í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, hefur rann­sakað mark­aðs­mis­notkun gömlu íslensku bank­anna þriggja: Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans, um margra ára skeið. Þegar hefur verið ákært fyrir brot innan þeirra allra, og dæmt í alls­herj­ar­mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­um Kaup­þings og Lands­bank­ans.

Hjá Lands­bank­anum var Sig­ur­jón Þ. Árna­son, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans, Ívar Guð­jóns­son, fyrrum for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, og Júl­íus S. Heið­ars­son, sem var sér­fræð­ingur í sömu deild, og Sindri Sveins­son, sem starf­aði við eigin fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­an­um, allir dæmdir sekir um mark­aðs­mis­notkun í Hæsta­rétti í febr­úar 2016. Sig­ur­jón hlaut eins árs og sex mán­aða fang­els­is­dóm. Ívar var dæmdur í tveggja ára fang­elsi en Júl­íus og Sindri hlutu eins árs fang­els­is­dóma.

[links]

Menn­irnir fjórir voru ákærðir fyr­ir mark­aðs­mis­­­not­k­un á tíma­bil­inu 1. nóv­­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Sam­kvæmt ákæru áttu þeir að hafa hand­­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­­bank­an­um og með því blekkt „fjár­­­festa, kröf­u­hafa, stjórn­­völd og sam­­fé­lagið í heild.“

Hæsti­réttur Íslands dæmdi í októ­ber 2016 alla níu sak­born­ing­anna í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings seka. Refs­ing sex sak­born­inga var ákveðin sú sama og í hér­aði, refs­ing eins var þyngd en tveimur var ekki gerð sér­stök refs­ing.

Ingólfur Helga­­son hlaut þyngstan dóm í mál­inu, fjög­­urra og hálfs árs fang­elsi. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi Sig­munds­son tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær Björns­son og Pétur Krist­inn Guð­mars­son fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm. Sig­­urður Ein­­ar­s­­son fékk eins árs hegn­ing­­ar­auka við þann fjög­­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Than­i-­­mál­in­u. Magn­úsi Guð­munds­syni og Björk Þór­ar­ins­dóttur var ekki gerð sér­stök refs­ing fyrir þau brot sem þau voru dæmd fyr­ir.

Refs­ing Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, var þyngd og honum gerður sex mán­aða hegn­ing­ar­auki.

Fyrir um ári síðan voru fimm fyrr­ver­andi starfs­menn Glitnis ákærðir fyr­ir­ stór­fellda mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik. Með útgáfu ákærunnar var það stað­fest að rök­studdur grunur er um að allir stóru bank­arnir þrír hafi stund­að um­fangs­mikla mark­aðs­mis­notkun fyrir hrun.

Þeir fimm sem voru ákærðir eru Lárus Welding, fyrr­ver­and­i ­for­stjóri Glitn­is, Jóhannes Bald­urs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri ­fyr­ir­tækja­sviðs Glitn­is, og þrír fyrr­ver­andi miðl­ar­ar, þeir Jónas Guð­munds­son, Val­garð Már Val­garðs­son og Pétur Jón­as­son. Aðal­með­ferð máls­ins hefur enn ekki farið fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár