Sigurjón Þ. Árnason dæmdur fyrir markaðsmisnotkun í Hæstarétti

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans, Ívar Guð­jóns­son, fyrrum for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, og Júlíus S. Heið­ars­son, sem var sér­fræð­ingur í sömu deild, og Sindri Sveins­son, sem starf­aði við eigin fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­anum, voru allir dæmdir sekir um mark­aðs­mis­notkun í Hæsta­rétti í dag. Sigurjón hlaut eins árs og sex mán­aða fang­els­is­dóm. Ívar var dæmdur í tveggja ára fang­elsi en Júlíus og Sindri hlutu eins árs fang­els­is­dóma. RÚV greinir frá.

Menn­irnir fjórir voru ákærðir fyr­ir mark­aðs­mis­notk­un á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Samkvæmt ákæru áttu þeir að hafa hand­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­bank­an­um og með því blekkt „fjár­festa, kröfu­hafa, stjórn­völd og sam­fé­lagið í heild.“

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu 19. nóv­em­ber 2014 að þrír mann­anna hefðu gerst sekir um mark­aðs­mis­notkun. Sigurjón var þar dæmdur í tólf mán­aða fang­elsi, þar voru níu mán­uðir skil­orðs­bundnir. Ívar og Júlíus voru dæmdir í níu mán­aða fang­elsi, þar af eru sex mán­uðir skil­orðs­bundnir. Sindri var hins vegar sýkn­aður í hér­aði.

Ákærðu neit­uðu allir alfarið sök í mál­inu. Sigurjón Þ . Árnason hefur sagt opin­ber­lega að það séu mikil „von­brigði“ hvernig málið sé sett fram. Fyrst og fremst vegna þess í að því hafi öllu verið snúið á haus.

Hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs dóm

Í októ­ber 2015 var Sigurjón dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti vegna Ímon-máls­ins svo­kall­aða. Sá dómur sem hann hlaut í dag bæt­ist við þann dóm. Elín Sig­fús­dóttir, fyrrum fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, var dæmd í 18 mán­aða fang­elsi í því máli og Steinþór Gunn­ars­son, fyrrum for­stöðu­maður verð­bréfa­miðl­unar bank­ans, var dæmdur í níu mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi.

Í mál­inu snéri Hæsti­réttur við dómi hér­aðs­dóms yfir Sig­ur­jóni og Elínu, sem voru bæði sýknuð þar. Steinþór hlaut níu mán­aða dóm í hér­aði en hluti hans var þá skil­orðs­bund­inn. Sá dómur var kveð­inn upp 5. júní 2014. Í dómi Hæsta­réttar segir m.a.: "Brotin [...] beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi og verður tjónið, sem af þeim hlaust, ekki metið til fjár".

Imon-málið snérist um sölu Lands­bank­ans á eig­in bréf­um til tveggja eign­ar­halds­fé­laga í lok sept­em­ber og byrj­un októ­ber árið 2008. Fé­lög­in tvö voru Imon ehf. og Aza­lea Resources Ltd. Lands­bank­inn fjár­magn­aði kaupin að fullu og taldi sak­sókn­ari við­skiptin vera mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik. Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að Sigurjón sé fund­inn sekur um að hafa framið umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun. Elín var fundin sek um umboðs­svik og hlut­deild í mark­aðsnis­notkun og Steinþór var sak­felldur fyrir mark­aðs­mis­notkun.

Mála­rekstri gegn Sig­ur­jóni er ekki að öllu leyti lokið. Hann var, ásamt Elínu Sig­fús­dóttur, sýkn­aður í hér­aðs­dómi vegna ákæru fyrir umboðs­svik upp á 13,6 millj­arða króna í októ­ber 2014. Þeim sýknu­dómi hefur verið áfrýjað til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár