Sagðir hafa fyllt og tæmt veltubók Glitnis til að halda uppi hlutabréfaverði

Í ákæru gegn fimm fyrr­ver­andi starfs­mönnum Glitnis kemur fram að hluta­bréf hafi verið keypt skipu­lega til að halda uppi verði. Þau hafi síðan verið seld fyrir 6,8 millj­arða til félaga í eigu starfs­manna. Glitnir lán­aði að fullu til kaupanna.

Lárus Welding, fyrrum forstjóri Glitnis, er einn hinna ákærðu.
Lárus Welding, fyrrum for­stjóri Glitnis, er einn hinna ákærðu. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Fimm fyrr­ver­andi starfs­menn Glitnis hafa verið ákærðir fyrir stór­fellda mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik. Með útgáfu ákærunnar er það stað­fest að rök­studdur grunur er um að allir stóru bank­arnir þrír hafi stundað umfangs­mikla mark­aðs­mis­notkun fyrir hrun. Raunar er það meira en rök­studdur grunur. Þegar hafa fallið þungir dómar vegna mark­aðs­mis­notk­unar í Glitni, Lands­banka Íslands og Kaup­þingi.

Þeir fimm sem eru ákærðir eru Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, Jóhannes Bald­urs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Glitnis, og þrír fyrr­ver­andi miðl­arar, þeir Jónas Guð­munds­son, Valgarð Már Val­garðs­son og Pétur Jónasson.

Hægt er að lesa ákæruna hér í heild sinni.

Í ákærunni segir að meint brot hinna ákærðu hafi verið mjög umfangs­mikil, þaul­skipu­lögð, hafi staðið yfir í langan tíma og hafi varðað gríð­ar­lega háar fjár­hæðir. Í ákærunni er til­greint að hinir ákærðu hafi með skipu­lögðum hætti keypt gríð­ar­legt magn af bréfum í Glitni til að halda mark­aðs­verði þeirra uppi. Lárusi er síðan gefið að hafa losað um hlut­ina, og með því mis­notað aðstöðu sína sem for­stjóri, með því að selja þau til félaga í eigu margra af stærstu við­skipta­vinum bank­ans á þessum tíma og alls 14 félaga í eigu stjórn­enda Glitnis. Í nán­ast öllum til­vikum lán­aði Glitnir að fullu fyrir kaup­unum og tók ein­ungis veð í bréf­unum sem var verið að selja. Mark­aðs­á­hætta þeirra var því áfram að fullu hjá Glitni.

Hér­aðs­sak­sókn­ari, sem tekið hefur við verk­efnum sér­staks sak­sókn­ara og gefur því út ákæruna, segir í henni að menn­irnir fimm hafi allir haft „veru­lega per­sónu­lega hags­muni“ af því að verð á hluta­bréfum í Glitni héld­ist hátt, auk þess sem Lárus Welding hefði haft mikla hags­muni að halda vel­laun­uðu starfi sínu í bank­anum. Lárus hafi ekki átt hlut í Glitni en hann hafi hins vegar gert kaup­rétt­ar­samn­ing þegar hann skrif­aði undir ráðn­ing­ar­samn­ing árið 2007, þá rétt rúm­lega þrí­tugur að aldri. Þá hafi hann fengið 300 milljón króna ein­greiðslu þegar hann réð sig til starfa hjá Glitni og átti að fá aðra slíka 1. febr­úar 2009.

Hinir starfs­menn­irnir fjórir áttu allir hlut í Glitni eða kaup­rétti. Einn miðlar­anna, Valgarð Már, fékk 20 millj­óna króna ráðn­ing­ar­bónus þegar hann réð sig þangað frá Kaup­þingi í ágúst 2007. Hann átti þá einn mánuð í að verða 27 ára gam­all.

Keyptu mikið magn bréfa í rúmt ár

Fyrsta hluti ákærunnar snýr að mark­aðs­mis­notkun sem allir fimm hinna ákærðu eru sagðir hafa staðið fyrir. Um er að ræða kaup á bréfum í Glitni frá byrjun 1. júní 2007 og fram til 26. sept­em­ber 2008. Samkvæmt ákærðu voru við­skiptin til þess gerð að tryggja óeðli­legt verð á hlutum í Glitni, búa til verð á hluta­bréfum, gáfu til kynna að eft­ir­spurn og og verð hluta­bréfa í bank­anum hafi verið hærra en það raun­veru­lega var. Í ákærunni segir að við­skiptin hafi verið fram­kvæmd að und­ir­lagi Lárusar og Jóhann­esar en að hinir þrír ákærðu, Jónas, Valgarð Már og Pétur, hafi fram­kvæmt þau. Þeir unnu allir í eigin við­skiptum Glitnis á tíma­bil­inu.

Í ákærunni segir: „Með þessum umfangs­miklu kauptil­boðum og kaupum, en óveru­legu magni sölu­til­boða og sölu í sjálf­virkum pör­un­ar­við­skiptum, komu ákærðu ýmist í veg fyrir eða hægðu á lækkun á verði hluta­bréfa í Glitni og mynd­uðu þannig gólf í verð­myndun á hluta­bréf­unum. Um var að ræða ólög­mætt inn­grip í gang­verk mark­að­ar­ins sem hafði áhrif á mark­aðs­gengi hluta­bréfa í Glitni, tryggði óeðli­legt verð á hluta­bréf­unum á tíma­bil­inu, bjó til verð á hluta­bréf­unum og gaf eða var lík­legt til að gefa eft­ir­spurn og verð hluta­bréf­anna rang­lega og mis­vísandi til kynna. Með hátt­semi sinni rösk­uðu ákærðu þeim for­sendum og lög­málum sem liggja að baki eðli­legri verð­myndun á skipu­legum verð­bréfa­mark­aði með því að auka selj­an­leika hluta­bréfa bank­ans með ólög­mætum hætti.“

Tæmdu veltubókina

Þegar eigin við­skipti banka kaupa mikið af hluta­bréfum í honum sjálfum þá kemur að því að þau geta ekki keypt meira. Bankar máttu nefni­lega ekki eiga meira en fimm pró­sent hlut í sjálfum sér. Þegar því marki­var náð þurfti að „tæma“ veltu­bók­ina. En kaup­endur stóðu ekki í röðum á árunum 2007 og 2008 að kaupa slíka hluti í íslenskum bönkum.

Stím-málið, sem þegar hefur verið sak­fellt í fyrir hér­aðs­dómi, snérist að hluta til um slíka tæm­ingu. Félagið Stím var búið til af Glitni til að kaupa hluti í bank­anum sjálfum og stærsta eig­enda hans, FL Group, sem Glitnir vildi losa. Í því máli lögðu þó þeir sem tóku þátt í Stím fram eigið fé. Þ.e. Glitnir lán­aði ekki fyrir öllum við­skipt­unum og því héldu verj­endur í Stím-mál­inu því fram að staða bank­ans hefði í raun verið betri eftir við­skiptin en hún var fyrir. Hluti áhætt­unar vegna hluta­bréf­anna hefði verið færð yfir á þá fjár­festa sem tóku þátt í Stím. Slík málsvörn verður áfram ráð­andi í vörn þeirra fyrir Hæsta­rétti.

Fleiri þekkt félög keyptu hluti í Glitni út af veltu­bók bank­ans. Má þar til að mynda nefnda BK-44 ehf., sem var í eigu Birkis Krist­ins­sonar, fyrr­ver­andi starfs­manns bank­ans. Birkir var ásamt þremur öðrum fyrr­ver­andi starfs­mönnum Glitnis dæmdur til þungrar refs­ingar í Hæsta­rétti vegna þess máls í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Annað félag sem fékk lán að fullu frá Glitni til að kaupa bréf í bank­anum af bank­anum var félagið Langflug ehf. Það var í eigu Finns Ing­ólfs­sonar, fyrrum ráð­herra og seðla­banka­stjóra, og hins umdeilda félags Giftar.

Seldu til 14 félaga stjórnenda

Í öðrum kafla stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máls Glitnis er Lárus einn ákærður fyrir mark­aðs­mis­notkun. Þar er lýst svo­kall­aðri „tæm­ingu“. Í þetta sinn er þó um að ræða sölu á bréfum til alls 14 félaga sem öll voru í eigu stjórn­enda og starfs­manna Glitnis. Öll félögin voru stofnuð sér­stak­lega til að taka þátt í við­skipt­unum og öll við­skiptin fóru fram á tveimur dögum, 15. og 16. maí 2008. Og Glitnir lán­aði hverja ein­ustu krónu sem notuð var til að fjár­magna við­skiptin, alls um 6,8 millj­arða króna. Í ákærunni segir að Glitnir hafi þannig borið áfram fulla mark­aðs­á­hættu af bréf­unum „þar sem engar aðrar trygg­ingar voru fyrir hendi en hinir seldu hlutir, og voru við­skiptin, sem byggð­ust á blekk­ingum og sýnd­ar­mennsku, þannig lík­leg til að gefa eft­ir­spurn eftir hlut­unum í bank­anum rang­lega og mis­vísandi til kynna“.

Mörg kunn­ug­leg nöfn úr fjár­mála- og við­skipta­heim­inum eru á meðal þeirra sem áttu félögin 14. Þar á meðal er til dæmis Einar Örn Ólafsson, fyrrum for­stjóri Skelj­ungs, Jóhannes Bald­urs­son, einn hinna ákærðu í mál­inu, Rósant Már Torfason og Magnús Pálmi Örn­ólfs­son, einu tveir banka­menn­irnir sem hafa samið um rétt­ar­vernd í hrun­málum gegn því að hjálpa sak­sóknurum við að sak­fella aðra grun­aða, Elmar Svav­ars­son, sem hlaut dóm í BK-44 mál­inu, Stefán Sig­urðs­son, sem í dag er for­stjóri Vodafone á Íslandi, og Eggert Þór Krist­ó­fers­son, sem í dag er for­stjóri N1.

Þriðji kafli ákærunnar snýst síðan um meint umboðs­svik Lárusar vegna lán­veit­inga til félag­anna 14. Þar segir að hann hafi mis­notað aðstöðu sína hjá Glitni, sem for­stjóri bank­ans, og stefnt fé hans í veru­lega hættu þegar hann hafi farið út fyrir heim­ildir sínar til lán­veit­inga og veitt félög­unum tæp­lega 6,8 millj­arða króna lán til að fjár­magna hluta­bréfa­kaupa í Glitni, af Glitni, „án þess að fyrir lægi sam­þykki þar til bærrar lána­nefndar, án þess að end­ur­greiðsla lán­anna væri tryggð í sam­ræmi við ákvæði lána­reglna bank­ans um töku trygg­inga fyrir útlánum og án þess að meta á nokkurn hátt greiðslu­getu og eigna­stöðu lán­þeg­anna“.

Allsherjarmarkaðsmisnotkun rannsökuð í öllum bönkunum

Embætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú hefur runnið inn í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, hefur rann­sakað mark­aðs­mis­notkun gömlu bank­anna þriggja: Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans, um margra ára skeið. Þegar hefur verið ákært, og dæmt í alls­herj­ar­mark­aðs­mis­notk­un­ar­málum Kaup­þings og Lands­bank­ans.

Hjá Lands­bank­anum var Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans, Ívar Guð­jóns­son, fyrrum for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, og Júlíus S. Heið­ars­son, sem var sér­fræð­ingur í sömu deild, og Sindri Sveins­son, sem starf­aði við eigin fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­anum, allir dæmdir sekir um mark­aðs­mis­notkun í Hæsta­rétti í febr­úar síð­ast­liðnum. Sigurjón hlaut eins árs og sex mán­aða fang­els­is­dóm. Ívar var dæmdur í tveggja ára fang­elsi en Júlíus og Sindri hlutu eins árs fang­els­is­dóma.

Menn­irnir fjórir voru ákærðir fyr­ir mark­aðs­mis­notk­un á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Samkvæmt ákæru áttu þeir að hafa hand­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­bank­an­um og með því blekkt „fjár­festa, kröfu­hafa, stjórn­völd og sam­fé­lagið í heild.“

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, Sigurður Ein­ars­son, fyrrum stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Ingólfur Helgason, fyrrum for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, Einar Pálmi Sig­munds­son, Birnir Sær Björns­son, Pétur Kristinn Guð­munds­son og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í fyrra­sumar í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Tveimur liðum ákæru á hendur Magnúsi Guð­munds­syni var vísað frá en að öðru leyti var hann sýkn­aður af þeim sökum sem á hann voru bornar. Björk Þór­ar­ins­dóttir var einnig sýknuð í mál­inu. Málinu var áfrýjað til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár