Dómar mildaðir í BK-44 máli - Birkir og Elmar í fjögurra ára fangelsi

Birkir Krist­ins­son, fyrrum lands­liðs­mark­vörður í knatt­spyrnu, var í dag dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi í Hæsta­rétti Íslandi fyrir sína aðild að BK-44 mál­inu. Elmar Svav­ars­son hlaut fjög­urra ára dóm, Jóhannes Bald­urs­son þriggja ára dóm og Magnús Arn­ar Arn­gríms­son tveggja ára dóm. Engin dómanna er skil­orðs­bund­inn. Menn­irnir voru allir dæmdir sekir í hér­aði en til þyngri refs­ingar. Hæsti­réttur mild­aði því dóma þeirra. Í dómi Hæsta­réttar segir að gögn máls­ins bæru þess engin merki að 3,8 millj­arða króna lán­veit­ing sem málið snýst um hefði verið til með­ferðar hjá við­eig­andi lána­nefndum innan Glitnis banka og hefði hún því átt sér stað án full­nægj­andi umboðs eða heim­ildar. Háttsemi allra ákærðu hefði varðað gríð­ar­legar fjár­hæðir og valdið Glitni stór­felldu tjóni. Hægt er að lesa dóm­inn í heild sinni hér.

Í mál­inu ákærði sér­stakur sak­sókn­ari fjóra fyrrum starfs­menn Glitnis fyrir umboðs­svik, mark­aðs­mis­notkun og brot á lögum um árs­reikn­inga í tengslum við 3,8 millj­arða króna lán­veit­ingu bank­ans til félags sem hét BK-44 í nóv­em­ber 2007. Lánið var notað til að kaupa bréf í Glitni af Glitni. Í mál­inu voru þrír mann­anna dæmdir í fimm ára fang­elsi og einn í fjög­urra ára fang­elsi í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í júní 2014.

Birkir Krist­ins­son, sem var starfs­maður einka­banka­þjón­ustu Glitnis og fyrrum lands­liðs­mark­vörður Íslands í knatt­spyrnu, hlaut fimm ára dóm í hér­aði. Hann var eig­andi félags­ins BK-44 ehf. sem keypti bréfin. Hann var ákærður fyrir hlut­deild í umboðs­svikum. Auk hans voru þeir Elm­ar Svavars­son verð­bréfa­miðl­ari og Jó­hann­es Bald­urs­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Glitn­is, einnig dæmd­ir í fimm ára fang­elsi. Magnús Arn­ar Arn­gríms­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Glitnis, var dæmd­ur í fjög­urra ára fang­elsi í hér­aði.

Dómar allra voru, eins og áður sagði, mild­aðir í Hæsta­rétti í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár