Hæstiréttur sakfelldi alla í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings

Hæsti­réttur Íslands dæmdi í dag alla níu sak­born­ing­anna í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings seka. Refsing sex sak­born­inga var ákveðin sú sama og í hér­aði, refs­ing eins var þyngd en tveimur var ekki gerð sér­stök refs­ing.

Ingólfur Helga­son hlaut þyngstan dóm í mál­inu, fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi Sig­munds­son tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær Björns­son og Pétur Krist­inn Guð­mars­son fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm. Sig­urður Ein­ars­son fékk eins árs hegn­ing­ar­auka við þann fjög­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Than­i-­mál­in­u. Magnúsi Guð­munds­syni og Björk Þór­ar­ins­dóttur var ekki gerð sér­stök refs­ing fyrir þau brot sem þau voru dæmd fyrir.

Refsing Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, var þyngd og honum gerður sex mán­aða hegn­ing­ar­auki. Hægt er að lesa dóm Hæsta­réttar hér.

Í mál­inu, sem kallað hefur verið stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál Kaup­þings, voru níu fyrr­ver­andi starfs­menn Kaup­þings ákærð­ir. Þau níu sem voru ákærð eru Sig­­urður Ein­­ar­s­­son, fyrrum starf­andi stjórn­­­ar­­for­­maður Kaup­­þings, Hreiðar Már Sig­­urðs­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings, Magnús Guð­­munds­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings í Lúx­em­­borg, Ingólfur Helga­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Kaup­­þings á Íslandi, Bjarki Diego, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri útlána, Einar Pálmi Sig­­munds­­son, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri eigin við­­skipta Kaup­­þings, Pétur Freyr Guð­mar­s­­son, fyrr­ver­andi starfs­­maður eigin við­­skipta, Birnir Sær Björns­­son, fyrr­ver­andi starfs­­maður eigin við­­skipta, og Björk Þór­­ar­ins­dótt­ir, sem sæti átti í lána­­nefnd Kaup­­þings. Bjarki og Björk voru ákærð fyrir umboðs­svik í mál­inu, ekki mark­aðs­mis­notk­un.

Í mál­inu var hinum ákærðu gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­­leika þeirra með „kerf­is­bundn­um“ og „stór­­felld­um“ kaup­um, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­­hags­­legs styrks bank­ans. 

Stærð og umfang máls­ins á sér ekki hlið­­stæðu hér á landi. Aðal­­­með­­­ferð þess í hér­aðs­dómi Reykja­víkur tók 22 daga og yfir 50 manns voru kall­aðir til­­ ­­sem vitn­i á meðan að hún stóð yfir. Það liðu fimm vikur frá því að aðal­­­með­­­ferð­ í mál­inu lauk og þangað til að dómur fékkst.

Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu 26. júní í fyrra að Hreiðar Már, Sig­urð­ur, Ingólf­ur, Einar Pálmi, Birnir Snær, Pétur Krist­inn og Bjarki væru sekir í mál­inu. Bjarki var ein­ungis dæmdur vegna ákæru fyrir umboðs­svik. Tveimur liður ákæru á hendur Magn­úsi var vísað frá en að öðru leyti var hann sýkn­aður af þeim sökum sem á hann voru born­­ar. Björk var sýknuð af ákærðu um umboðs­svik í mál­inu. Í Hæsta­rétti var Magnús sak­felldur fyrir hlut­deild í mark­aðs­mis­notkun og fyrir hlut­deild í umboðs­svikum. Björk var sak­felld fyrir ónot­hæfa til­raun til umboðs­svika vegna einnar lán­veit­ingar.

Í sept­em­ber voru Hreiðar Már og Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Kaup­þings, hafa verið ákærð af hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir umboðs- og inn­herja­svik. Í ákæru þess máls kom fram að ef Hreiðar Már yrði sýkn­aður í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu yrði fallið frá ákærunni um inn­herja­svik. Hægt er að lesa um þá ákæru hér.

Fréttinni var breytt klukkan 15:34.

Í upp­haf­legri frétt RÚV, sem birt­ist áður en að dómur Hæsta­réttar var birtur á vefnum, kom fram að sjö hefði verið sak­felldir. Kjarninn byggði sína frétt á þeim upp­lýs­ingum. Það reynd­ist ekki rétt og hefur fréttin nú verið lag­færð í sam­ræmi við dóm­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár