Markaðsmisnotkunarmál Kaupþings: Sjö af níu dæmdir til refsingar

Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sigurður Ein­ars­son, Ingólfur Helgason, Einar Pálmi Sig­munds­son, Birnir Sær Björns­son, Pétur Kristinn Guð­munds­son og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Tveimur liðum ákæru á hendur Magnúsi Guð­munds­syni var vísað frá en að öðru leyti var hann sýkn­aður af þeim sökum sem á hann voru bornar. Björk Þór­ar­ins­dóttir var einnig sýknuð í mál­inu. Enginn sak­born­ingur var við­staddur upp­kvaðn­ingu dóms­ins.

Hreiðari Má var ekki gerð frek­ari refs­ing, en hann afplánar nú þegar fimm og hálfs árs fang­els­is­dóm vegna Al Thani-máls­ins svo­kall­aða. Sigurður Ein­ars­son fékk eins árs hegn­ing­ar­auka við þann fjög­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Thani- mál­inu. Ingólfur Helgason hlaut þyngsta dóm­inn, fjög­urra og hálfs árs fang­elsi að frá­dregnu gæslu­varð­haldi sem hann sætti á sínum tíma. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær og Pétur Kristinn fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm.

Magnús Guð­munds­son og Björk Þór­ar­ins­dóttir voru, líkt og áður sagði, sýknuð af þeim ákærum sem á þau voru bornar auk þess sem tveimur ákæru­liðum á hendur Magnúsi var vísað frá. Dómurinn í mál­inu er 96 blað­síður að lengd.

Farið var fram á að refsirammi yrði fullnýttur


Í mál­inu var hinum ákærðu, sem eru alls níu tals­ins, gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­leika þeirra með „kerf­is­bundnum“ og „stór­felldum“ kaupum, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­hags­legs styrks bank­ans. Stærð og umfang máls­ins á sér ekki hlið­stæðu hér á landi. Aðal­með­ferð þess tók 22 daga og yfir 50 manns voru kall­aðir til sem vitni á meðan að hún stóð yfir. Fimm vikur eru síðan að aðal­með­ferð­inni lauk og málið lagt í dóm.

Þau níu sem voru ákærð eru Sigurður Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, Ingólfur Helgason, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, Bjarki Diego, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri útlána, Einar Pálmi Sig­munds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri eigin við­skipta Kaup­þings, Pétur Freyr Guð­mars­son, fyrr­ver­andi starfs­maður eigin við­skipta, Birnir Sær Björns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður eigin við­skipta, og Björk Þór­ar­ins­dóttir, sem sæti átti í lána­nefnd Kaup­þings.

Við aðal­með­ferð máls­ins fór Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara sem flutti málið, fram á að refsiramm­inn fyrir mark­aðs­mis­notk­un­ar­brot yrði full­nýttur auk þess sem tekið yrði til­lit til 72. greinar almennra hegn­ing­ar­laga um aukna refs­ingu þegar hér­að­dómur fellir dóma yfir Hreiðari Má Sig­urðs­syni, Sigurði Ein­ars­syni og Ingólfi Helga­syni í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Það þýðir að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara fór fram á að þeir myndu allir fá níu ára fang­els­is­dóma.

[caption id="attachment_32519" align="alignnone" width="1024"] Verj­endur hluta sak­born­inga í mál­inu skömmu fyrir dóms­upp­kvaðn­ingu í dag.[/caption]

Þrír sakborninga sitja þegar inni


Þrír sak­born­ing­anna í mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu voru dæmdir til þungrar refs­ingar í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða í febr­úar. Sigurður, Hreiðar Már og Magnús voru þá allir dæmdir sekir, ásamt Ólafi Ólafs­syni, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár. Þeir afplána nú allir dóma sína í opna fang­els­inu á Kvía­bryggju.

Hreiðar, Magnús og Sigurður eru einnig ákærðir í CLN-mál­inu en þar er þeim gefið að sök að hafa mis­notað stöðu sína sem stjórn­endur bank­ans í lán­veit­ingum til nokk­urra félaga sem voru í eigu við­skipta­vina bank­ans. Lánin voru svo notuð til að kaupa skulda­trygg­ingar á Kaupþing banka, eða svokölluð Credit Linked Notes, með það að mark­miði að lækka álagið og freista þess að opna fyrir fjár­veit­ingar til bank­ans á mark­aði.

Þriðja málið sem er fyrir dóm­stólum, og bein­ist að Kaup­þings­stjórn­endum, er Marple-málið svo­nefnda, en Hreiðar Már og Magnús eru ákærðir í því ásamt Guðnýju Örnu Sveins­dóttur, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra bank­ans, og Skúla Þor­valds­syni, fjár­festi og fyrr­ver­andi stórs hlut­hafa Kaup­þings. Ákært er fyrir fjár­drátt, þegar færðir voru átta millj­arðar króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple, sem var í eigu Skúla Þor­valds­sonar, án þess að heim­ild væri fyrir því. Aðal­með­ferð þess fer fram í sept­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár