Hreiðar Már ákærður fyrir umboðs- og innherjasvik

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Kaup­þings, hafa verið ákærð af hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir umboðs- og inn­herja­svik. Þetta kemur fram í ákæru á hendur honum sem Kjarninn hefur undir höndum.

Hreiðari Má er gefið að sök að hafa mis­notað aðstöðu sína gróf­lega með því að láta Kaupþing veita einka­hluta­fé­lagi sínu tæp­lega 600 millj­óna króna ein­greiðslu­lán, sem hann hafi fengið án þess að fyrir lægi sam­þykki stjórnar eða full­nægj­andi trygg­ing.

Hann hafi svo keypt hluta­bréf í bank­anum fyrir 246 millj­ónir í eigin nafni sam­kvæmt kaup­rétti. Þetta gerð­ist þann 6. ágúst 2008. Sama dag hafi svo einka­hluta­fé­lag hans sjálfs keypt hlut­ina af honum fyrir 572 millj­ónir króna, sem var fjár­magnað með lán­inu sem hann fékk hjá Kaup­þingi. Mis­mun­ur­inn, 324 millj­ónir króna, rann svo inn á banka­reikn­ing Hreiðars Más seinna í sama mán­uði og hann hafi því grætt þá upp­hæð á við­skipt­unum. Lánið var á gjald­daga árið 2011, en þá var búið að taka einka­hluta­fé­lagið til gjald­þrota­skipta.

Í ákærunni segir að hafa verði í huga við hvaða aðstæður og á hvaða tíma þetta átti sér stað, hluta­bréfa­verð hafi fallið veru­lega á þessum tíma.

Hér­aðs­sak­sókn­ari segir í ákærunni að Hreiðar Már hafi á þessum tíma búið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum um að skráð mark­aðs­verð hluta­bréfa í bank­anum hafi ekki gefið rétta mynd af verð­mæti þeirra heldur verið hærri en efni stóðu til vegna „langvar­andi og stór­felldrar mark­aðs­mis­notk­unar með hluta­bréf í bank­anum“ frá nóv­em­ber 2007, sem hann sjálfur átti þátt í.

Hreiðar er því ákærður að hluta á grund­velli þess að búið er að sak­fella hann í hér­aðs­dómi fyrir mark­aðs­mis­notkun. Það mál er hins vegar til með­ferðar Hæsta­réttar og ef hann verður sýkn­aður í Hæsta­rétti verður fallið frá ákærunni um inn­herja­svik.

Guðný Arna er ákærð fyrir hlut­deild í umboðs­svikum. Hún er sögð hafa aðstoðað við að koma þeim fram, sér­stak­lega með fyr­ir­mælum og sam­skiptum við lægra setta starfs­menn bank­ans um upp­gjör og frá­gang vegna verð­bréfa­við­skipta og lán­veit­inga til félags Hreiðars Más. Hún hafi vitað eða henni ekki getað dulist að ófull­nægj­andi trygg­ingar væru fyrir lán­veit­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár