CLN-málið: Kaupþingstoppar ákærðir fyrir að lána, og tapa, 72 milljörðum

Aðal­með­ferð í svoköll­uðu CLN-máli Kaup­þings hófst í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Í mál­inu eru Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings og Sigurður Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­maður bank­ans ákærðir fyrir fyrir stór­felld umboðs­svik með því að lánað fjórum eign­ar­halds­fé­lögum 260 millj­ónir evra. Félögin fjögur lán­uðu féð áfram til tveggja ann­arra félaga sem not­uðu það til að kaupa láns­hæf­istengd skulda­bréf (Credit Linked Notes, eða CLN) sem tengd voru skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings. Þegar þýski bank­inn Deutsche Bank hóf veð­köll vegna máls­ins fengu síð­ari félögin tvö 260 millj­ónir evra til við­bótar lánuð. Samtals nemur láns­upp­hæðin 510 millj­ónum evra, eða um 72 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Í ákæru sér­staks sak­sókn­ara kemur fram að talið sé að útlánin séu að öllu leyti töpuð. Þar segir einnig að menn­irnir tveir hafi valdið Kaup­þingi „stór­felldu tjóni“ með hátt­semi sinni.

Magnús Guð­munds­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, er einnig ákærður í mál­inu fyrir hlut­deild í umboðs­svikum.

CLN-málið, sem einnig er þekkt sem Chesterfield-málið, var þing­fest sum­arið 2014. Þá lýstu allir sak­born­ingar yfir sak­leysi sínu. Samkvæmt end­ur­sögn mbl.is sagði Hreiðar Már, þegar hann var spurður um afstöðu sína til ákærunnar: „Hátt­virt­ur dóm­ari. Ég get upp­lýst dóm­inn um það að ég starf­aði í fimmtán ár hjá Kaup­þingi, þar af tíu sem for­stjóri eða aðstoð­ar­for­stjóri. Ég tók á þess­um tíma aldrei ákvörðun gegn hags­mun­um Kaup­þings. Þessi ákæra er röng og ég er sak­laus.“

Vildarviðskiptavinir gátu grætt en ekki tapað

En hvernig er for­saga þessa máls?

Í byrjun febr­úar 2008 fékk Kaupþing þýska stór­bank­ann Deutsche Bank sér til ráð­gjafar um hvernig bank­inn gæti haft áhrif á síhækk­andi skulda­trygg­ing­ar­á­lag á sig. Sumarið eftir sendi starfs­maður Deutsche Bank hug­mynd um við­skipti með láns­hæf­istengd skulda­bréf sem hann taldi að gætu hjálpað til við þetta. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis segir að „í tölvu­bréfum sem gengu á milli Sigurðar Ein­ars­sonar og Hreiðars Más Sig­urðs­sonar í fram­hald­inu komu þeir sér saman um að ekki þurfti að fá líf­eyr­is­sjóði með í planið en að þetta skuli þeir gera „ekki spurn­ing“.

Alls var skulda­trygg­ingin sem um ræðir 750 millj­ónir evra, sem á þeim tíma var á bil­inu 80-90 millj­arðar króna, en væri í dag um 106 millj­arðar króna. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis segir:„Í upp­hafi var ætl­unin að þrjú félög tækju þátt í þessu en þau voru í eigu sex ein­stak­linga sem voru í miklum við­skiptum við Kaupþing. Þessi þrjú félög áttu að kaupa láns­hæf­istengd skulda­bréf að nafn­virði 125 millj­ónir evra hvert, með trygg­ingu upp á 250 millj­ónir hvert. Svo virð­ist þó sem við­skiptin hafi ekki átt sér stað við eitt félagið þegar á hólm­inn var komið. Eigendur tveggja félaga fengu 130 millj­ónir evra að láni frá Kaup­þingi í Lúx­em­borg. 125 millj­ónir evra voru eig­in­fjár­fram­lag til félag­anna en 5 millj­ónir evra gengu til greiðslu þókn­unar til Deutsche Bank. Þar sem samn­ing­ur­inn var 250 millj­óna evra virði þá fengu félögin 125 millj­ónir evra að láni frá Deutsche Bank og var lánið með ákvæði um gjald­fell­ingu ef skulda­trygg­ing­ar­á­lag færi upp fyrir ákveðin mörk.“

Frá 29. ágúst til 8. októ­ber 2008 lán­aði Kaupþing alls 510 millj­ónir evra, sem í dag eru 72 millj­arðar króna, í þessi skulda­trygg­inga­við­skipti. Ekkert eigið fé var lagt í við­skiptin heldur voru þau að fullu fjár­mögnuð af Kaup­þingi. Félögin sem fengu lánin hétu Trenvis Limited, Holly Beach S.A.,Charbon Capital Ltd. og Harlow Equities S.A. Þau félög lán­uðu 250 millj­ónir evra til félag­anna Chesterfield United Inc. og Partridge Mana­gement Group til að þau gætu keypt skulda­bréf tengd skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings.

Auk þess lán­aði Kaupþing 250 millj­ónir evra til Chesterfield og Partridge til að mæta veð­köllum frá Deutsche Bank vegna kaupanna. Öllu umrædd félög voru eign­ar­laus og eig­endur þeirra voru vild­ar­við­skipta­vinir Kaup­þings, sem hefðu grætt ef við­skiptin hefðu skilað arði en gátu aldrei tapað krónu. Þeir voru Skúli Þor­valds­son, Ólafur Ólafsson, Kevin Stanford og Karen Millen og Antonious Yerolemou. Auk þess stóð til að hinn nú þekkti Sjeik Al Thani myndi líka taka þátt í sams­konar við­skiptum. Ekkert varð að þeim við­skiptum annað en að félagið Brooks, í eigu Al-Thani, fékk 50 millj­ónir dala lán­aðar.

Hreiðar Már Sig­urðs­son sagði við skýrslu­töku hjá rann­sókn­ar­nefnd Alþingis „að það hefði ekki verið neitt nema hagn­að­ar­von hjá við­skipta­vinum bank­ans sem seldu þessar skulda­trygg­ingar, það er ef bank­inn færi í greiðslu­þrot þá væri hagn­aður núll en ef hann væri enn í rekstri í októ­ber 2013 þá myndu þessir við­skipta­vinir hagn­ast. Því til við­bótar sagði Hreiðar: „Ja, þetta var, við töldum að þetta væri þess virði að gera þetta, eins og ég segi, við töldum að við værum að nota fjár­muni bank­ans á ágæt­legan hátt, fá ágætis tekjur af þeim fjár­munum. Við töldum að það væri mik­il­vægt að athuga hvort þessi mark­aður væri raun­veru­legur eða ekki og við töldum að þetta væri gott fyrir þessa við­skipta­vini, sem voru stórir við­skipta­vinir og borg­uðu okkur fullar þókn­anir og skuld­uðu okkur nátt­úru­lega pen­inga, svo það að staða þeirra mundi batna væri gott fyrir bank­ann“.

Gríðarlegt og fáheyrt tjón

Í ákæru sér­staks sak­sókn­ara í mál­inu, sem var gefin út í apríl 2014, segir að láns­féð, 510 millj­ónir evra, sé Kaup­þingi glatað og „ljóst að ákærðu hafa með hátt­semi sinni valdið Kaup­þingi hf. gríð­ar­legu og fáheyrðu tjóni. Umboðs­svika­brot ákærðu eru því stór­fellt, hvernig sem á það er litið og sakir ákærðu miklar.

Í gæslu­varð­halds­úr­skurði yfir Magnúsi Guð­munds­syni, frá því í maí 2010, er einnig fjallað um málið. Þar sagði að „gríð­ar­lega háar fjár­hæðir hafi verið lán­aðar eign­ar­lausum félögum til afar áhættu­samra við­skipta og hags­munum hlut­hafa og kröfu­hafa með því stefnt í stór­fellda hættu. Síðustu lán­veit­ing­arnar hafi átt sér stað eftir gild­is­töku neyð­ar­lag­anna og veit­ingu Seðla­banka Íslands á 500.000.000 EUR neyð­ar­láni til Kaup­þings banka hf“.

Við rann­sókn máls­ins hafi komið fram upp­lýs­ingar um að æðstu stjórn­endur Kaup­þings, þeir Sigurður Ein­ars­son,Hreiðar Már og Magnús, hefðu tekið ákvarð­anir um umræddar lán­veit­ingar og við­skipti. Auk þess eru fleiri mál á hendur þeim enn í rann­sókn.

Sigurður skrifar bréf til vina og samstarfsmanna

Sigurður Ein­ars­son rit­aði nán­ustu vinum sínum og sam­starfs­mönnum bréf 26. jan­úar 2009 þar sem hann bar hönd fyrir höfuð sér í þeim málum sem þá höfðu verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum og tengd­ust Kaup­þingi.

Eitt þeirra mála sem hann skrifar um í bréf­inu eru við­skipta Kaup­þings með láns­hæf­istengd skulda­bréf, sem hann og félagar hans hafa nú verið ákærðir fyrir. Þar sagði m.a.: „Að til­lögu Deutsche Bank var ákveðið að láta reyna á hvað myndi ger­ast ef bank­inn myndi sjálfur fara að kaupa þessar trygg­ingar. Það var hins vegar ekki ein­falt mál, þar sem bank­inn gat ekki gefið út trygg­ingar á sjálfan sig. Því var gripið til þess ráðs að fá við­skipta­vini okkar sem við treystum vel og höfðum átt langvar­andi sam­skipti við sem byggð­ust á trausti og holl­ustu til að eiga þessi við­skipti fyrir hönd bank­ans. Vit­an­lega hefðum við aldrei átt þessi við­skipti nema vegna þess­ara sér­stöku aðstæðna. Við­skiptin voru gerð með hags­muni bank­ans að leið­ar­ljósi og í fullu sam­ræmi við lög og reglur.[...]

Þar sem að skulda­bréfin, sem við í Kaup­þingi ásamt við­skipta­fé­lögum okkur höfðum keypt, voru skuld­sett og höfðu nú lækkað í verði var aðeins um tvennt að ræða. Að reiða fram meiri trygg­ingar eða að gef­ast upp, láta selja skulda­bréfin og tapa hluta eða allri upp­haf­legri fjár­fest­ing­unni. Seinni kost­ur­inn var ein­fald­lega frá­leitur í mínum huga. Lausa­fjár­staða Kaup­þings var góð og ekk­ert sem benti til ann­ars en að bank­inn mundi standa þessa ágjöf af sér, rétt eins og bank­inn hafði gert árið 2006 og á vor­dögum 2008. Ef hins vegar skulda­bréfin hefðu verið seld hefði bank­inn orðið fyrir tjóni og hætt við að aukið fram­boð skulda­bréfa hefði enn frekar grafið undan bank­anum og veikt aðgang að hans að lána­línum. Í fjöl­miðlum er nú efast um skyn­semi þess sem er kallað að færa fjár­muni út úr bank­anum vik­urnar fyrir fall hans. Þetta er skýr­ing þeirra fjár­magns­flutn­inga. Til­gangur þeirra var að við­halda Kaup­þingi sem "going concern" og allt útlit var fyrir að það tæk­ist í lok sept­em­ber. Nákvæm­lega hvenær for­sendur breyt­ast er erfitt að segja til um. En ég full­yrði að með þessu var unnið að hags­munum allra kröfu­hafa sem og hlut­hafa Kaup­þings, því um leið og banki hættir að vera "going concern" tap­ast gríð­ar­legir fjár­munir þegar allar eignir bank­ans sem aðrir eiga að veði eru seldar eða not­aðar til skulda­jöfn­unar".

Hægt er að lesa bréf Sigurðar í heild sinni hér.

Sakfelldur í þremur öðrum málum

Allir sak­born­ing­arnir þrír afplána sem stendur dóma á Kvía­bryggju. Þeir hlutu allir dóma í Hæsta­rétti í Al Thani-mál­inu í febr­úar síð­ast­liðnum. Þar var Hreiðar Már dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður í fjög­urra ára fang­elsi og Magnús í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Ólafur Ólafsson, sem var stór eig­andi í Kaup­þingi fyrir hrun, hlaut einnig fjög­urra ára fang­elsi. Voru fjór­menn­ing­arnir dæmdir fyrir mark­aðs­mis­notkun á grund­velli laga um verð­bréfa­við­skipti og umboðs­svik sam­kvæmt hegn­ing­ar­lögum. Hæsti­réttur kall­aði brot mann­anna alvar­leg­ustu efna­hags­brot sem „nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot[…]Ákærðu[...]eiga sér engar máls­bætur“.

Hreiðar Már, Sigurður og Magnús voru einnig allir ákærðir í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings sem hér­aðs­dómur dæmdi í fyrr á þessu ári. Þar var Hreiðar Már dæmdur sekur en hlaut ekki við­bót­ar­refs­ingu. Sigurður var einnig dæmdur sekur og einu ári var bætt við afplánun hans. Tveimur ákæru­liðum gegn Magnúsi var hins vegar vísað frá og hann sýkn­aður í mál­inu að öðru leyti. Nið­ur­stöð­unni hefur verið áfrýjað til Hæsta­réttar.

Þá voru bæði Hreiðar Már og Magnús dæmdir sekir í hér­aðs­dómi í októ­ber 2015 í svoköll­uðu Marple-máli. Hreiðar Már hlaut þá sex mán­aða auka­refs­ingu en Magnús var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Skúli Þor­vald­son var einnig dæmdur til sex mán­aða fang­els­is­vistar en Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var sýknuð af ákæru í mál­inu. Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli var ákærður fyrir hylm­ingu.

Auk þess eru fleiri mál á hendur mönn­unum enn í rann­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár