Menn sem hafa hlotið dóma í hrunmálum eru til rannsóknar í fleiri efnahagsbrotamálum

Í síð­ustu viku féllu tveir dómar í málum sem tengj­ast starf­semi íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja í aðdrag­anda banka­hruns­ins, svoköll­uðum hrun­málum. Annar dóm­ur­inn féll í Ímon-mál­inu svo­kall­aða fyrir Hæsta­rétti og hinn í Marple-mál­inu fyrir hér­aðs­dómi. Alls er því sex stórum hrun­málum lokið með dómi Hæsta­réttar, og hér­aðs­dómur hefur dæmt í átta til við­bótar. Þá bíða þrjú stór mál þess að verða tekin fyrir í hér­aði og rúm­lega 30 mál eru annað hvort enn til rann­sóknar eða bíða ákvörð­unar um hvort ákært verði í þeim eða ekki. Sum þeirra mála snúa að ein­stak­lingum sem þegar hafa hlotið þunga dóma fyrir efna­hags­brot.

Sex málum lokið með dómi Hæstaréttar


Sex stórum hrun­málum lokið með dómi Hæsta­réttar. Það fyrsta var tveggja ára fang­els­is­dómur yfir Baldri Guð­laugs­syni, fyrrum ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, snemma árs 2012 fyrir inn­herja­svik og brot í opin­beru starfi. Brot sín framdi Baldur með því að selja hluta­bréf í Lands­bank­anum 17. og 18. dept­em­ber 2008 á meðan að hann var ráðu­neyt­is­stjóri og sat í sam­ráðs­hópi ís­lenskra stjórn­valda um fjár­mála­stöðug­leika. Sölu­and­virði bréf­anna var 192 millj­ónir króna. Hluta­bréf í Lands­bank­anum urðu verð­laus við banka­hrunið nokkrum vikum eftir sölu bréf­anna.

Sama ár voru Jón Þor­steinn Jónsson, fyrrum stjórn­ar­for­maður Byrs, og Ragnar Z. Guð­jóns­son, fyrrum spari­sjóðs­stjóri Byrs, dæmdir í fjög­urra ára fang­elsi vegna Exeter-máls­ins. Síðar hlaut Styrmir Þór Bragason, fyrrum for­stjóri MP banka, eins árs dóm vegna sama máls. Jón Þor­steinn og Ragnar voru dæmdir fyrir umboðs­svik vegna láns sem Byr veitti til félags­ins Exeter-hold­ing, sem notað var til að kaupa verð­laus stofn­fjár­bréf af mönn­unum tveimr og MP banka. Styrmir var dæmdur fyrir hlut­deild í broti Jóns Þor­steins og Ragnars.

[caption id="attachment_41158" align="alignnone" width="1000"] Lýður Guð­munds­son hlaut dóm í Hæsta­rétti í fyrra. MYND: RÚV/Skjáskot[/caption]

Í mars 2014 dæmdi Hæsti­réttur Lýð Guð­munds­son, fyrrum stjórn­ar­for­mann Exista, í átta mán­aða fang­elsi fyrir brot á hluta­fjár­lögum. Fimm mán­uðir refs­ing­ar­innar voru skil­orðs­bundnir. Bjarn­freður var einnig sviptum lög­manns­rétt­indum í eitt ár. Málið snérist um 50 millj­arða króna hluta­fjár­aukn­ingu í des­em­ber 2008 sem ein­ungis einn millj­arður króna var greiddur fyrir, en sam­kvæmt hluta­fé­laga­lögum þarf að greiða minnst eina krónu fyrir hverja krónu sem hlutafé er hækkað um.

Í sama máli var lög­mað­ur­inn Bjarn­freður Ólafsson dæmdur í sex mán­aða fang­elsi, þar sem þrír mán­uðir voru skil­orðs­bundnir, fyrir að skýra á vill­andi hátt frá hluta­fjár­aukn­ing­unni.

Alvarlegasta efnahagsbrot í íslenskri dómaframkvæmd


Þann 12. febr­úar 2015 féll þyngsti dómur sem fallið hefur í efna­hags­brota­máli á Íslandi. Þá voru Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, dæmdir sekir í Al Thani-mál­inu. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár. Voru fjór­menn­ing­arnir dæmdir fyrir mark­aðs­mis­notkun á grund­velli laga um verð­bréfa­við­skipti og umboðs­svik sam­kvæmt hegn­ing­ar­lögum. Hæsti­réttur kall­aði brot mann­anna alvar­leg­ustu efna­hags­brot sem „nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot[…]Ákærðu[...]eiga sér engar máls­bætur“.

[caption id="attachment_20433" align="alignnone" width="640"] Ólafur Ólafsson og Sigurður Ein­ars­son voru á meðal þeirra sem dæmdir voru í Al Thani-mál­inu.[/caption]

Í síð­ustu viku féll svo dómur í Ímon-mál­inu svo­kall­aða í Hæsta­rétti. Þar var Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans, var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­elsi. Elín Sig­fús­dóttir, fyrrum fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, var dæmd í 18 mán­aða fang­elsi. Steinþór Gunn­ars­son, fyrrum for­stöðu­maður verð­bréfa­miðl­unar bank­ans, var dæmdur í níu mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi.Sigurjón var fund­inn sekur um að hafa framið umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun. Elín var fundin sek um umboðs­svik og hlut­deild í mark­aðs­mis­notkun og Steinþór var sak­felldur fyrir mark­aðs­mis­notkun.Ímon-málið snérist um sölu Lands­bank­ans á eig­in bréf­um til tveggja eign­ar­halds­fé­laga í lok sept­em­ber og byrj­un októ­ber árið 2008. Fé­lög­in tvö voru Imon ehf. og Aza­lea Resources Ltd. Lands­bank­inn fjár­magn­aði kaupin að fullu og tók á sig alla áhættu af við­skipt­unum. Samhliða los­aði bank­inn sig við eigin bréf á góðu verði miðað við aðstæður sem þá voru uppi í íslensku efna­hags­lífi.

Hæsti­réttur hefur sýknað í einu stóru hrun­máli, hinu svo­kall­aða Vafn­ings­máli. Sá dómur féll í febr­úar 2014. Þar voru Lárus Welding, fyrrum for­stjóri Glitnis, og Guð­mundur Hjalta­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Glitnis, sýkn­aðir af ákæru um umboðs­svik þegar bank­inn veitti félag­inu Milestone pen­inga­mark­aðs­lán í febr­úar 2008. Í dómi Hæsta­réttar kom fram að engin vafi hafi leikið á ásetn­ingi mann­anna, en að skil­yrði þess að sak­fellt sé fyrir umboðs­sik sé að fyrir liggi að tjón hafi orðið. Ákæru­valdið hafi ekki sýnt fram á að hátt­semi Lárusar og Guð­mundar hafi falið í sér slíka áhættu.

Átta mál til viðbótar búin í héraði


Til við­bótar við þau stóru hrun­mál sem hafa verið leidd til lykta í Hæsta­rétti er með­ferð átta mála lokið fyrir hér­aðs­dómi. Þeim hefur öllum nema einu þegar verið áfrýjað til Hæsta­réttar.

Málin eru stóra mark­aðsmið­snotk­un­ar­mál Kaup­þings, mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál Lands­bank­ans, mál kaup­rétt­ar­fé­laga Lands­bank­ans, SPRON-málið, Milestone-málið, BK-málið, mál Hannesar Smára­sonar vegna ætl­aðs láns FL Group til Fons og að end­ingu Marple-málið, sem hér­aðs­dómur dæmdi í á föstu­dag. Þessum málum hefur sumum hverjum lokið með sýknu hér­aðs­dóms en öðrum með sak­fell­ingu.

Þrjú mál bíða þess að vera tekin fyrir í hér­aðs­dómi. Þau eru Stím-málið, CLN-mál Kaup­þings og Aurum-málið svo­kall­aða. Í Aurum-mál­inu var hér­aðs­dómur reyndar búinn að sýkna sak­born­inga en Hæsti­réttur vís­aði mál­inu aftur í hérað vegna van­hæfis eins dóm­ar­ans í mál­inu.

[caption id="attachment_16493" align="alignnone" width="687"] Mál gegn Hannesi Smára­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra FL-Group, á enn eftir að verða tekið fyrir í Hæsta­rétti.[/caption]

Yfir 30 mál enn í rannsókn eða bíða ákvörðunar um framhald


Enn eru fjöl­mörg hrun­mál í rann­sókn. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara þá er rann­sókn lokið í 16-18 málum og bíða þau ákvörð­unar um hvort sak­sótt verði í þeim eða hvort málin verði látin niður falla. Til við­bótar eru 15 hrun­mál enn skráð í rann­sókn hjá emb­ætt­inu. Þá er hið svo­kallað Lindsor-mál enn til rann­sóknar hjá yfir­völdum á Íslandi og í Lúx­em­borg.

Vert er að taka fram að sum mál­anna geta runnið saman í eina afgreiðslu og því afar ólík­legt að ákærur í mál­unum, ef ákært verður í þeim öllu, verði svona margar.

Ljóst er að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara horfir til þeirra dóma sem fallnir eru í Hæsta­rétti þegar ákvarð­anir um áfram­hald mál­anna er tekið. Þar koma fram vís­bend­ingar um hvaða atriði það eru sem dóm­stólar horfa til þegar dæmt er í þessum stóru efna­hags­brota­málum.

Verður hegningarauka beitt?


Auk þess skiptir máli hvað Hæsti­réttur gerir varð­andi refsiramma mála. Í Al Thani-mál­inu var Hreiðar Már Sig­urðs­son dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi og Magnús Guð­munds­son í fjögur og hálfs árs fang­elsi. Hreiðar Már hefur síðan þá hlotið tvo við­bót­ar­dóma í hér­aði, ann­ars vegar í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings þar sem honum var ekki gerður hegn­ing­ar­auki og hins vegar í Marple-mál­inu þar sem sex mán­uðir bætt­ust við dóm hans. Magnús hlaut einnig dóm í hér­aði í Marple-mál­inu þar sem 18 mán­uðum var bætt við dóm hans. Refsiramm­inn fyrir brot þeirra er sex ár og er því full­nýttur sam­kvæmt þess­ari nið­ur­stöðu.

[caption id="attachment_10477" align="alignnone" width="1024"] Hreiðar Már Sig­urðs­son hefur hlotið einn dóm í Hæsta­rétti og tvo til við­bótar í hér­aðs­dómi.[/caption]

Hegn­ing­ar­lög gera hins vegar ráð fyrir fyrir að auka megi við refs­ing­una um allt að þrjú ár ef sak­born­ingar leggja í vana sinn að fremja brot. Því geta dóm­stólar bætt þremur árum við refs­ingu Hreiðars Más og Magnúsar í þeim málum gegn þeim sem eiga eftir að klár­ast fyrir dóm­stólum og yrði heild­ar­refs­ing þeirra þá níu ár. Sama gildir vit­an­lega um aðra sak­born­inga sem hafa verið, eða verða, sak­sóttir oftar en einu sinni fyrir efna­hags­brot.

Þegar dæmdir menn enn til rannsóknar


Í Marple-mál­inu fór sak­sókn­ari máls­ins, Arn­þrúður Þór­ar­ins­dóttir, fram á að horft yrði til hegn­ing­ar­auka þegar refs­ing Hreiðars Más og Magnúsar yrði ákvörðuð. Við því var ekki orðið.

Komist Hæsti­réttur að sömu nið­ur­stöðu í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings og Marple-mál­inu, að Hreiðar Már sé sekur í þeim báðum og Magnús í öðru, mun dóm­ur­inn þurfa að taka afstöðu til þess hvort beita eigi heg­ing­ar­auk­anum og dæma þá í lengri refs­ingu en sex ára fang­elsi.

Verði það nið­ur­staða hans að það eigi ekki að beita hegn­ing­ar­auka þá þarf emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara að taka ákvörðun um hvort það muni sak­sækja í málum sem eru enn til rann­sóknar og menn­irnir tveir eru á meðal grun­aðra.

Það eru nefni­lega hrun­mál enn í rann­sókn gagn­vart ein­stak­lingum sem þegar hafa hlotið dóma vegna ann­arra hrun­mála, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þar á meðal eru mál sem snúa að Kaup­þingi og hluta þeirra sak­born­inga sem þegar hafa hlotið dóma í Al Thani-mál­inu fyrir Hæsta­rétti og stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu og Marple-mál­inu í hér­aðs­dómi. Þá eru einnig mál til rann­sóknar sem snúa að stjórn­endum Glitnis og Lands­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár