Aurum-málið fer aftur fyrir Héraðsdóm, fyrri niðurstaða ómerkt

Aurum-málið svo­kall­aða fer aftur fyrir hér­aðs­dóm. Hæsti­réttur Íslands kvað upp þá nið­ur­stöðu sína í dag og féllst þar með á ómerk­ing­ar­kröfu sak­sókn­ara í mál­inu. Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari hafði kraf­ist ómerk­ingar á með­ferð máls­ins fyrir hér­aðs­dómi, þar sem allir sak­born­ingar voru sýkn­aðir, á grund­velli þess að einn með­dóm­ari máls­ins hefði verið van­hæfur til að fjalla um það. Umræddur með­dóm­ari er Sverrir Ólafsson, fjár­mála­verk­fræð­ingur, en hann er bróðir Ólafs Ólafs­sonar, kenndur við Samskip, sem hlaut þungan fang­els­is­dóm vegna aðildar sinnar að Al-Thani flétt­unni svoköll­uðu.

Sak­born­ingar í Aurum-mál­inu, þeir Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrrum aðal­eig­andi Glitnis, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri bank­ans, voru allir sýkn­aðir af ákæru sér­staks sak­sókn­ara um umboðs­svik í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 5. júní síð­ast­lið­inn. Einn dóm­ari máls­ins, Arn­grímur Ísberg, skil­aði sér­at­kvæði og taldi að sak­fella ætti Lárus, Magnús Arnar og Jón Ásgeir.

Hæstiréttur segir rétt að draga óhlutdrægni í efa


Eftir að nið­ur­staða hér­aðs­dóms í Aurum-mál­inu lá fyrir komust fjöl­miðlar á snoðir um að Sverrir og Ólafur væru bræður. Þeir spurðu Ólaf Þór Hauksson, sér­stakan sak­sókn­ara, hvort hann hefði vitað af þeim tengslum, sem hann neit­aði. Í kjöl­farið, nánar til­tekið 9. júní 2014, ræddi frétta­stofa RÚV við Sverri. Í frétt hennar sagði hann: „Ég fór til dóm­ar­ans, Guðjóns St. Mart­eins­sonar, sagði honum frá tengslum mínum. Hann taldi að það væru ekki vand­kvæði á því að ég tæki þetta að mér … Ég trúi því ekki í eina sek­úndu að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upp­hafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengslum, þá ber það vott um afskap­lega léleg og yfir­borðs­kennd vinnu­brögð. Mér finnst við­brögð hans, sko, hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­ar­fullar og jafn­vel óheið­ar­legar aðgerðir. Og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar að trú­verð­ug­leiki hans stofn­unar er eig­in­lega í molum.“

Í sjón­varps­fréttum saman kvöld bætt­ust eft­ir­far­andi ummæli Sverris við frétt­ina: "„Ég trúi því fast­lega að sér­stakur sak­sókn­ari hafi vitað allan tím­ann hver ég var, hann telji það hins vegar kost að full­yrða núna að hann hafi ekki vitað það. Það laum­ast að mér sá grunur að sak­sókn­ari sé í raun­inni að gera þetta til þess að veikja dóm­inn.“

Í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar segir að hann telji "óhjá­kvæmi­legt að virtum atvikum máls­ins að líta svo á að ummæli með­dóms­manns­ins gæfu til­efni til að draga með réttu í efa að hann hefði verið óhlut­drægur í garð ákæru­valds­ins fyrir upp­kvaðn­ingu hér­aðs­dóms­ins."

Ómerking lá í loftinu


Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að yfir­gnæf­andi líkur væru á því að Hæsti­réttur Íslands myndi vísa Aurum-mál­inu í heild sinni aftur til með­ferðar í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Boðuð dóms­upp­saga í mál­inu í Hæsta­rétti í dag, þótti benda sterk­lega til þess.

Aðal­með­ferð fyrir Hæsta­rétti laut ein­vörð­ungu að ómerk­ing­ar­kröfu rík­is­sak­sókn­ara. Áður en mál­flutn­ingur hófst var verj­endum og sak­sókn­ara til­kynnt um að það yrði aðeins boðað til dóms­upp­kvaðn­ingar ef fall­ist yrði á kröfu ákæru­valds­ins um ómerk­ingu og heim­vísun. Ella myndi málið halda áfram fyrir Hæsta­rétti og boðað yrði til mál­flutn­ings um málið í heild sinni.

Snýst um sex milljarða króna lán til eignarlaus félags


Málið snýst um sex millj­arða króna lán­veit­ingu til félags­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­magna kaup FS38, eign­ar­laust félag í eigu Pálma Har­alds­sonar, á 25,7 pró­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Holding Limited. Hluti láns­ins, einn millj­arður króna, var ráð­stafað inn á per­sónu­legan banka­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­arð síðan í að borga meðal ann­ars 705 millj­óna króna yfir­drátt­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Sér­stakur sak­sókn­ari vill meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­ar­ins.

Sér­stakur sak­sókn­ari fór fram á sex ára fang­elsi yfir Lárusi Welding þegar málið var flutt í hér­aði og fjög­urra ára fang­elsi yfir þeim Jóni Ásgeiri, Magnúsi Arnari og Bjarna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár